Fréttablaðið - 13.07.2017, Blaðsíða 44
KviKmyndir
War for the Planet of the Apes
HHHHH
Leikstjóri: Matt Reeves
Handrit: Mark Bomback, Matt
Reeves
Kvikmyndataka: Michael Seresin
Tónlist: Michael Giacchino
Aðalhlutverk: Andy Serkis, Woody
Harrelson, Amiah Miller
Tæp fimmtíu ár eru liðin frá því að
upprunalega Apaplánetu-myndin
með Charlton Heston leit dagsins
ljós. Það sem byrjaði í fyrstu sem
sjálfstæð aðlögun á skáldsögu höf-
undarins Pierre Boulle varð fljótt að
vinsælum myndaflokki, sem hefur
þróast merkilega síðan þá, rétt eins
og tæknin og aðferðirnar sem hafa
farið í það að gæða apana lífi.
Upp úr aldamótunum reyndi
leikstjórinn Tim Burton að koma
seríunni í gang á ný, með miklu
skrauti en slöppum árangri. Áratug
seinna var svo gerð önnur tilraun
til endurræsingar. Þá kom forsagan
Rise of the Planet of the Apes þar
sem stillt var upp breiðari sögu um
háþróaða simpansann Caesar og hið
óumflýjanlega stríð á milli manna og
ofurapa, sem hann hefur reynt sitt
besta til að koma í veg fyrir.
Fyrsta myndin fjallaði um upp-
vaxtarár Caesars og hvernig hann
öðlaðist greind og sjálfstæði. Í Dawn
of the Planet of the Apes er mann-
fólkið komið í útrýmingarhættu
vegna veirusýkingar og gerist Caesar
formlegur leiðtogi á meðan tog-
streita myndast úr öllum áttum. Sú
þriðja segir frá þróun hans til þess að
verða goðsögn á meðan hann tekst á
við erfiðari djöfla en áður.
Nýju Apaplánetumyndirnar
nálgast árekstur ólíku hópanna á
athyglisverðan máta og í þokkabót
eru þær skýrt dæmi um það hvernig
skal gera framhalds- eða forsögur.
Hver tilheyrandi eining er hæfilega
sjálfstæð en hver kafli dýpkar per-
sónusköpunina og bætir náttúru-
lega ofan á forvera sinn án þess að
apa beint eftir honum.
Útkoman hér er hiklaust átakan-
legasta, metnaðarfyllsta og útlits-
lega séð langflottasta eintakið í trí-
lógíunni. War for the Planet of the
Apes er vægast sagt tilkomumikil og
góð áminning um það að rándýrar
brellumyndir geta oft verið list-
rænar og gerðar fyrir hugsandi fólk.
Eins og titillinn gefur til kynna er
atburðarásin allt annað en hressileg
og myndin er langt frá því að vera
hefðbundin sumarafþreying.
Í staðinn kemur hæg, grimm og
bítandi „and-stríðsmynd“ þar sem
merkilega lítið af hasar er í boði. Til
viðbótar eru orustusenur aldrei stíl-
færðar eins og þær eigi að vera eitt-
hvað sérstaklega „töff“ í ljósi þess
að sagan sýnir af fullri hörku eðli
stríðs og afleiðingar slíks. Vissulega
er hasarinn mikilvægur og öflugur
fylgihlutur í myndinni en algjört
aukaatriði í samanburði við þemun
og karakterana.
Það er ekki annað hægt en að
dást að þessari mynd. Öll umgjörð
er óaðfinnanleg, frá listilegri kvik-
myndatöku til tónlistar sem eflir
andrúmsloftið afbragðsvel, og
tölvuvinnan sem hér er til sýnis
er helbert kraftaverk. Brellurnar
eru fyrst og fremst nýttar til þess
að þjóna sögunni og persónunum
frekar en væntingum áhorfenda um
sjónarspil. Það
vantar heldur
ekkert upp á
að Andy Serkis
komi með enn
einn leiksigur-
inn í þessu
ógleymanlega
aðalhlutverki.
Þjáning Caes-
ars og myrkt
hugarástand
skín í gegn
um pixlana
og magnast
hvort tveggja
með tilþrifum
leikarans.
Hnökralaus
frammistaða
Serkis skyggir
þó ekki á
aðra leikara
f r e k a r e n
áður. Flestir,
ef ekki allir,
standa fyrir
sínu. Woody
Harrelson er réttur maður á réttum
stað og heldur ekki eins einhliða
andstæðingur og hann virðist vera
í fyrstu. Hin unga Amiah Miller er
áhrifarík í hlutverki munaðarlausrar
stúlku sem verður á vegi Caesars og
Steve Zahn bætir við þörfum létt-
leika í blönduna án þess að ganga of
langt með það.
Í röngum höndum hefði efnivið-
urinn léttilega getað misheppnast
eða orðið kjánalegur. Leikstjórinn
Matt Reeves hefur aftur tekið að sér
ýkta vísindaskáldssögu með æpandi
ádeilu og neitað að búa til heilalaust
bíó úr því. Hann sýður hér saman
ýmsa tóna; stríðsmynd, flóttamynd
og hljóðlátan vestra svo úr verður
minnisstæð heild þar sem fasismi,
dýrslegt eðli, ótti, fordómar, sam-
kennd og þrautseigja eru skoðuð af
mikilli einlægni.
Það er með
h r e i n u m
ó l í k i n d u m
hvað Reeves
nær heppi-
lega að forð-
ast alla til-
gerð og ná
oft ansi langt
með afar litlu,
eins og með
það hvernig
hann spilar
með þagnir,
táknmál, ein-
falt augnaráð
e ð a ö n n u r
s m á a t r i ð i ,
gjarnan í nær-
myndum. Það
kemur fyrir en
örsjaldan að
sumt er meira
útskýrt heldur
en þörf er á
en á rúmum
tveimur tímum
er aldrei teygða eða tilgangslausa
mínútu að finna í öllu flæðinu.
En auðvitað er magnað að Holly-
wood-framleiðendur hafi dælt svona
miklum peningum í vandaða, kraft-
mikla „poppkornsmynd“ þar sem
áhorfandinn er fenginn til þess að
styðja útrýmingarhættu manneskj-
unnar og halda með öpunum. Heill
sé þér, Caesar!
Tómas Valgeirsson
niðurstAðA: Hér er búið að dulbúa
fallega, bitastæða og dökka „and-
stríðsmynd“ sem sumarafþreyingu. En
frásögnin er vönduð, tilfinningalega
lifandi og brellurnar hreint ótrúlegar.
Stórkostlegur endir á flottum þríleik
Leikarahópurinn stendur sig vel í War for the Planet of the Apes. NORDICPHOTOS/AFP
Bíó
Skemmtanir
Árshátíðir
Grímuböll
Dimmisjón
ofl. & ofl.
Ykkar skemmtun....
....okkar fókus
1
3
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:1
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
4
F
-2
8
7
8
1
D
4
F
-2
7
3
C
1
D
4
F
-2
6
0
0
1
D
4
F
-2
4
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K