Fréttablaðið - 13.07.2017, Side 40

Fréttablaðið - 13.07.2017, Side 40
Listamenn frá Kína, Evr-ópu, Ameríku og Íslandi eiga verk á sýningunni Rúllandi snjóbolti/9 sem verður opnuð á Djúpavogi á laugardag- inn klukkan 15. „Þetta eru allt vinir mínir úr listheimum. Þeir segja alltaf já við mig,“ segir Sigurður Guðmundsson myndlistarmaður sem er sýningarstjóri ásamt Þór Vigfússyni. „Við eigum, mörg hver, langa for- tíð saman, höfum sýnt í sömu gall- eríum og jafnvel á sömu sýningum. Til dæmis hefur Marlene Dumas, ein þekktasta listakona heims, verið góð vinkona mín alveg frá því hún fór að sýna sín fyrstu verk. Hún er frá Suður-Afríku en býr í Amst- erdam í Hollandi og á nokkrum öðrum stöðum í heiminum.“ Sigurður er í bíl þegar viðtalið fer fram. „Ég er með aðstoðarkonu sem keyrir mig, var of timbraður til að keyra sjálfur. Við skruppum frá Djúpavogi upp á Egilsstaði til að ná í gler og erum á bakaleið, meðfram Lagarfljótinu. Ætlum Öxi til baka.“ Sýningin sem er í Bræðslunni er skipulögð af Chinese European Art Center (CEAC) í samstarfi við Djúpavogshrepp. „Við erum með alla verksmiðjuna, stórt pláss, fleiri hundruð fermetra,“ lýsir Sigurður og segir listamennina vera að tín- ast að. „Þetta er svakalega flott lið, það vantar ekki, það komust samt ekki allir enda illmögulegt að fá gistipláss úti á landi á þessum árs- tíma,“ segir hann og tekur fram að Haraldur Jónsson muni standa fyrir gjörningi á opnuninni. Þetta níunda sýningin sem CEAC stendur fyrir undir heitinu Rúllandi snjóbolti en hún er sú fjórða á Djúpavogi á jafn mörgum árum. „Konan mín, hún Ineke Guðmundsson, startaði kínversk- evrópsku menningarmiðstöðinni í Kína fyrir 20 árum til að stuðla að menningarlegum samskiptum milli Kína og Vesturlanda og þessi samvinna milli Djúpavogs og CEAK er komin til að vera. Þetta er mjög flott verkefni og við viljum halda því áfram,“ segir Sigurður sem kom- inn er fram á fjallsbrúnir í Berufirði þegar við slítum samtalinu. Sýningin stendur til 20. ágúst. Þetta er svakalega flott lið Alþjóðlega myndlistarsýningin Rúllandi snjóbolti/9 verður opnuð á laugardaginn, 15. júlí, í Bræðslunni á Djúpavogi. „Þetta eru allt vinir mínir úr listheimum. Þeir segja alltaf já við mig,“ segir Sigurður Guðmundsson um listamannahópinn. Fréttablaðið/GVa Fólk á leið í bræðsluna á rúllandi snjóbolta. listaverk Sigurðar, Eggin, eru á stöplum í röð á hafnarbakkanum. Listamenn sem taka þátt í ár Árni ingólfsson, Árni Páll Jó- hannsson, arnout Mik, Dagrún aðalsteinsdóttir, Egill Sæbjörns- son, Gjörningaklúbburinn, Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, Guido van der Werve, Haraldur Jónsson, Helgi Þórsson, Hrafn- kell Sigurðsson, Hreinn Frið- finnsson, Kan Xiuan, Kristján Guðmundsson, Magnús logi Kristinsson, Margrét blöndal, Marlene Dumas, Meiya lin, Mercedes azpilicueta, Ólafur Elíasson, Pauline Curnier-Jardin, ragnar Kjartansson, Sara björns- dóttir, Sigurður Guðjónsson, Sigurður Guðmundsson, Sirra Sigrún Sigurðardóttir, Stevens Vaughn, tumi Magnússon, Þór Vigfússon, Wei Na/ Yang Jian. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Save the Children á Íslandi Við eigum, möRg hVeR, lAngA foRtíð sAmAn, höfum sýnt í sömu gAlleRíum og jAfnVel á sömu sýningum. 1 3 . j ú l í 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R32 M e n n I n G ∙ F R É T T A B l A ð I ð menning 1 3 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :1 9 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 4 F -2 D 6 8 1 D 4 F -2 C 2 C 1 D 4 F -2 A F 0 1 D 4 F -2 9 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 1 2 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.