Fréttablaðið - 15.07.2017, Side 10
MMa Nú er aðeins einn dagur þar til
Gunnar Nelson stígur inn í búrið í
Glasgow þar sem hann mun mæta
Argentínumanninum Santiago
Ponzinibbio í aðalbardaga kvölds-
ins. Mikið undir hjá okkar manni
sem hefur lagt mikið á sig í aðdrag-
anda bardagans.
Undirbúningurinn hefur þó
verið óhefðbundinn að því leyti að
hinn írski þjálfari Gunnars, John
Kavanagh, hefur ekkert verið með
Gunnari og var að sjá hann í fyrsta
sinn í langan tíma er hann kom til
Glasgow. Gunnar er vanur að klára
sínar æfingabúðir hjá Kavanagh
í Dublin en að þessu sinni æfði
Gunnar allan tímann á Íslandi enda
aðstæður hjá Mjölni í heimsklassa.
Vildi ekki fara frá syninum
„Gunnar vildi líklega ekki fara frá
syni sínum en Gunnar veit alveg
hvað hann er að gera. Við sendum
honum góða æfingafélaga frá Írlandi
og ég fékk að sjá mikið af mynd-
böndum frá æfingunum þannig að
þetta var allt í góðu,“ segir hinn geð-
Gunnar er í geggjuðu formi
Hinn írski þjálfari Gunnars Nelson, John Kavanagh, er sem fyrr á því að Gunnar muni berjast um heims-
meistarabeltið í veltivigt UFC. Hann segir að Santiago Ponzinibbio sé mjög verðugur andstæðingur en að
Gunnar muni klára hann í þriðju lotu. „Gunni er sjóðheitur þessa dagana,“ segir John Kavanagh.
Gunnar Nelson er hér í miðjunni ásamt þjálfurum sínum, John Kavanagh og Jóni Viðari Arnþórssyni, úti í Glasgow. MyNd/MJolNir.is/sóllilJA bAltAsArsdóttir
þekki Kavanagh en honum líst afar
vel á lærisvein sinn frá Íslandi.
„Gunni er sjóðheitur þessa dagana.
Hann er búinn að klára tvo stráka
sem eru líkir Ponzinibbio. Jouban
og Tumenov voru boxarar eins og
þessi er að stóru leyti. Duglegir og
erfitt að ná þeim niður. Gunnar lítur
svakalega vel út og ég veit að hann
er í geggjuðu formi. Þetta gæti farið í
fimm lotur enda er þessi gaur enginn
aumingi. Það verður ekki auðvelt að
taka hann niður. Ég sé ekki fyrir mér
að þessi bardagi klárist í fyrstu lotu
og því þarf formið að vera geðbilað
gott, eins og við köllum það, fyrir
svona bardaga. Ég veit að Gunni er í
slíku formi.“
Þjálfar einnig Conor
Þessi skemmtilegi írski strákur, sem
einnig þjálfar Conor McGregor, er
alltaf óhræddur að spá í hvernig bar-
dagar Gunnars verða og ég sleppti
honum ekki með það nú frekar en
áður.
„Ég held að þessi bardagi klárist í
annarri eða þriðju lotu. Ég hef skoð-
að Ponzinibbio og hann er í mjög
góður formi sem og hraður. Hann
hefur lent á móti stórum strákum
sem hafa verið í vandræðum með
að ná honum í gólfið. Ef menn ná
honum niður þá er mjög erfitt að
halda honum þar. Á móti kemur að
það væri heimskulegt hjá honum
að gera sömu mistök og Brandon
Thatch gerði meðal annars og það er
að vanmeta hversu góður Gunni er
standandi. Fyrir mér er Gunni sterk-
ari bæði standandi sem og í gólfinu
þannig að ég hallast að því að Gunni
klári þetta í þriðju lotu,“ segir Írinn
og meinar það sem hann segir.
Fer í taugarnar á Íranum
Þetta verður þriðji bardaginn í röð
þar sem Gunnar berst við menn sem
eru fyrir neðan hann á styrkleika-
lista UFC og það fer aðeins í taug-
arnar á Íranum.
„Það fer aðeins í taugarnar á mér
því mér finnst Gunni eiga skilið að
vera í umræðunni um þá gaura sem
eru að fara að gera atlögu að beltinu.
Samt flott hjá Gunna að vera fag-
mannlegur. Taka þá bardaga sem
hann fær og gera það vel,“ segir
Kavanagh.
„Þessi strákur er samt verulega
krefjandi og ég held að það kveiki
í Gunna. Ef hann klárar þennan
bardaga þá fær hann vonandi að
berjast við mann á topp tíu nema
þeir séu að þvo á sér hárið eða hvað
þeir voru að gera er þeir vildu ekki
fara í hann síðast,“ sagði Kavanagh
sposkur en venju samkvæmt sér
hann stóra hluti í framtíðinni.
Er með Evrópu við bakið á sér
„Ég verð mjög svekktur ef við verð-
um ekki að tala um beltið þegar við
spjöllum næst eða þarnæst. Hann er
að fara að gera tilkall til þess og er
með Evrópu við bakið á sér. Ég vona
að næsta sumar verðum við á leið í
titilbardaga eða að minnsta kosti
einum bardaga frá titilbardaga.“
Bardagakvöldið með Gunnari
hefst klukkan sjö annað kvöld og er
í beinni á Stöð 2 Sport.
henry@frettabladid.is
Henry B. Gunnarsson
henry@frettabladid.is
Það fer aðeins í
taugarnar á mér því
mér finnst Gunni eiga það
skilið að vera í umræðunni
um þá gaura sem eru að fara
að gera atlögu að beltinu.
John Kavanagh, þjálfari Gunnars
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg • Bíldshöfða 6 • Sími 515 7070 • volvopenta.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUM HÖNDUM
hjá volvo penta á íslandi
Öflug Volvo Penta þjónusta
Hjá Volvo Penta á Íslandi | Brimborg starfar framúrskarandi
teymi sem samanstendur af öflugum fagmönnum
Brimborgar og samstarfsaðilum um land allt.
Komdu í dag og ræddu við ráðgjafa.
HAFÐU SAMBAND Í DAG
• Sími: 515 7067 | 869 7537 Guðmundur Gísli
• Netfang: volvopenta@brimborg.is
• Heimasíða: volvopenta.is
Kauptu bestu varahlutina
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg er með gott úrval varahluta
á lager og á mjög hagstæðu verði. Varahlutasérfræðingar
okkar veita þér fyrirtaksþjónustu og ráðgjöf við kaup.
Volvo Penta Kubbur_10x10_20170615_Draft1.indd 1 20.6.2017 13:47:16
sportrásir stöðvar 2
l08.55 F1: Æfing Sport
l11.50 F1: tímataka Sport
l14.00 AAM scottish open Golfst.
l14.50 Grótta - leiknir F. Sport
l18.00 Us open Sport 4
l19.00 John deere Classic Golfst.
l19.30 Formúla E: New york Sport
l00.00 sunna - d’Angelo Sport
l02.00 lA Gal. - Man. Utd Sport 2
s11.30 F1: bretland Sport
s14.00 AAM scottish open Golfst.
s16.30 Formúla E: New york Sport
s18.00 Us open Sport 4
s19.00 John deere Classic Golfst.
s19.00 Gunnar - Ponzinibbo Sport
s19.45 Víkingur r. - Valur Sport 2
Pepsi-deild karla
s16.00 KA - ÍbV
s20.00 Víkingur r. - Valur
inkasso-deildin
l14.00 Ír - selfoss
l14.00 Keflavík - leiknir r.
l14.00 Fram - HK
l14.00 Þór - Fylkir
l14.00 Haukar - Þróttur
l14.00 Grótta - leiknir F.
Í dag
Nýjast
VAlDÍS ÞórA úr lEiK
Valdís Þóra Jónsdóttir komst ekki
í gegnum niðurskurðinn á Opna
bandaríska meistaramótinu í golfi
sem fer fram á Trump National
Golf Club í Bedminster í New Jer-
sey. Þetta var
fyrsta risamót
Valdísar Þóru
á ferlinum.
Skagakonan var
á sex höggum yfir
pari eftir fyrsta
hringinn og
þrátt fyrir
betri spila-
mennsku í gær
dugði það ekki
til að komast í
gegnum niður-
skurðinn.
Valdís Þóra
lék á þremur
höggum yfir
pari í gær og var
því samtals á
níu höggum
yfir pari og var
talsvert langt frá
því að komast í
gegnum niður-
skurðinn.
TVEir lANDSliðSMENN
HöFðU ViSTASKiPTi Í Gær
Tveir landsliðsmenn í fótbolta, Jón
Daði Böðvarsson og Kári Árnason,
skiptu um lið í gær. Jón Daði gekk
til liðs við reading frá Wolves. Sel-
fyssingurinn skrifaði undir þriggja
ára samning við reading sem var
hársbreidd frá því að komast upp
í ensku úrvalsdeildina á síðasta
tímabili. Kári gerði hins vegar eins
árs samning við Aberdeen. Hann
þekkir vel til hjá skoska liðinu en
hann lék með því tímabilið 2011-
12 og var í miklum metum hjá
stuðningsmönnum þess.
GETA MæTT FrEiBUrG
Dregið var í næstu umferðir í
Meistaradeild Evrópu og Evrópu-
deildinni í gær. Ef FH slær Víking
frá Götu út í forkeppni Meistara-
deildarinnar mætir liðið Zrinjski
Mostar frá Bosníu eða Maribor
frá Slóveníu í næstu umferð. Slái
Valsmenn Domzale út í forkeppni
Evrópudeildarinnar mæta þeir
þýska úrvalsdeildarliðinu Freiburg
í næstu umferð. Kr-ingar fá svo
annaðhvort Panionios frá Grikk-
landi eða Gorica frá Slóveníu takist
þeim að slá ísraelska liðið Maccabi
Tel Aviv úr leik.
1 5 . j ú l í 2 0 1 7 l a U G a R D a G U R10 S p o R t ∙ F R É t t a B l a ð i ð
sport
1
5
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:1
2
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
5
2
-E
6
5
8
1
D
5
2
-E
5
1
C
1
D
5
2
-E
3
E
0
1
D
5
2
-E
2
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
0
4
s
_
1
4
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K