Fréttablaðið - 15.07.2017, Blaðsíða 22
M jölnisfólk á eftir að naga n e g l u r n a r alla helgina því þeirra a t v i n n u -
menn á stóra sviðinu, Gunn-
ar Nelson og Sunna Rannveig
Davíðsdóttir, verða í eldlín-
unni. Á laugardagskvöld berst
Sunna, sem kallar sig Tsu-
nami, við hina bandarísku
Kelly D’Angelo í Kansas
og á sunnudeginum er
komið að Gunnari er
hann mætir Argentínu-
manninum Santiago
Ponzinibbio í Glasgow.
A n d s t æ ð i n g u r
Sunnu er þrítug
og rétt eins og
Sunna þá þekkir
hún það ekki að
tapa. Hún á fimm
boxbardaga að baki
sem hún vann alla og
hefur einnig unnið alla
MMA-bardagana sína sem
eru orðnir fimm. Síðustu tveir eru
atvinnumannabardagar.
Sunna hefur unnið báða sína
bardaga hjá Invicta-bardagasam-
bandinu en þetta verður frumraun
D’Angelo hjá því sambandi en ferill
hennar gefur til kynna að hún sé
grjóthörð og kunni ýmislegt fyrir
sér. Sérstaklega í hnefaleikum. Þetta
er áhugaverð kona sem starfar sem
sjúkraliði og slökkviliðskona og þar
kynntist hún boxinu og síðar MMA.
Hún kemur frá Missouri og ætti því
að vera með fjölda fólks á bak við
sig á bardagakvöldinu.
Sjálf sagði hún reyndar í viðtali
við MMAfréttir.is að hún ætti von
á vinum og ættingjum á kvöldið
stóra en væri ekki að búast við
neinum heimavelli þó að hún sé frá
þessum slóðum. Sunna væri orðin
vel þekkt í Invicta, sem og vinsæl, og
því myndi Sunna klárlega fá góðan
stuðning líka úr stúkunni.
Sunna okkar hefur vakið mikla
athygli fyrir frammistöðu sína
hjá Invicta hingað til og bardagar
hennar verið rosalegir. Hún vann
fyrst sannfærandi sigur á stigum
gegn Ashley Greenway í september
í fyrra og fylgdi því eftir með sigri á
Mallory Martin í maí. Það var jafn
bardagi sem valinn var bardagi
kvöldsins. Okkar kona sýndi þá
ótrúlegt ljónshjarta sem hefur fleytt
henni langt.
Það er ekkert launungarmál að
Sunna stefnir á að komast inn um
dyrnar hjá UFC sem er stærsta bar-
dagasamband heims. Leiðin þangað
úr Invicta þarf ekkert að vera rosa-
lega löng ef fólk stendur sig vel.
Haraldur Dean Nelson hjá Mjölni
er með sterk tengsl innan UFC og
hefur þegar verið í sambandi við
fólk þar vegna Sunnu.
Fari svo að hún sýni allar sínar
bestu hliðar á nýjan leik og klári
D’Angelo með stæl gæti vel farið
svo að UFC opni dyrnar og hleypi
henni inn. Það er því til mikils að
vinna fyrir Sunnu í Kansas City á
laugardagskvöld.
Gunnar Nelson er löngu kominn
inn fyrir dyrnar hjá UFC og er í átt-
unda sæti á styrkleikalista veltivigt-
arinnar. Hann fær þann heiður að
vera aðalnúmerið á bardagakvöld-
inu í Glasgow á sunnudag. Það segir
ýmislegt um sterka stöðu Gunnars
innan UFC. Þetta er í annað sinn
sem Gunnar er í aðalbardaga kvölds
hjá UFC en hann var það einnig er
hann barðist við Rick Story í Stokk-
hólmi í október árið 2014.
Að hann sé í aðalbardaga kvölds
þýðir að bardagi hans sé fimm lotur
en ekki þrjár eins og allir hinir bar-
dagarnir. Gunnar fór í fimm lotur
gegn Story á sínum tíma og varð
þá að sætta sig við sitt fyrsta tap í
búrinu. Hann hefur lært mikið á
þeim bardaga og sneri tvíefldur til
baka. Ef hann lendir aftur í því að
þurfa að fara í fimm lotur mun hann
ráða mun betur við það en hann
gerði gegn Story. Hann er þess utan
í betra formi í dag.
Andstæðingur Gunnars að þessu
sinni er grjótharður Argentínumað-
ur. Hann hefur unnið 24 bardaga
en aðeins tapað þremur. Þret-
tán af sigrum Ponzinibbio
hafa komið með rothöggi.
Hann er mikill stríðsmaður
sem þarf að hafa mikið fyrir
að vinna. Hann virðist eflast
við hverja raun en hefur aldr-
ei lent í eins hæfileikaríkum
bardagamanni og Gunnari.
Þetta verður níundi
bardagi Ponzin-
ibbio í UFC en
hann hefur tapað
tveimur af átta
bardögunum þar
hingað til. Hann
er aftur á móti á
mikilli siglingu
og hefur unnið
fjóra bardaga í
röð. Argentínu-
maðurinn mun
því mæta með
sjálfstraustið í
botni og kass-
ann úti gegn Gunnari. Þessi bar-
dagi er nefnilega risatækifæri fyrir
hann að blanda sér í umræðuna
um þá bestu í vigtinni. Hann er sem
stendur í fjórtánda sæti á styrkleika-
listanum eftir að hafa tapað síðast
fyrir rúmum tveimur árum.
Þó að Gunnar hafi mátt sætta sig
við tvö töp hjá UFC til þessa þá hafa
markmið hans alls ekkert breyst.
Hann ætlar sér að verða heims-
meistari hjá UFC og hefur tekið
neikvæðu reynsluna af töpunum og
snúið þeim upp í jákvæða reynslu
sem hjálpar honum að komast
þangað sem hann ætlar sér. Leiðin
á toppinn hefur verið örlítið grýtt-
ari en hann ætlaði sér en stígurinn
þangað er í sjónmáli.
Gunnar barðist aðeins þrisvar á
árunum 2015 og 2016. Hann veit að
hann þarf að berjast oftar og er að
vinna í því í ár. Að öllum líkindum
mun hann ná þremur bardögum á
þessu ári. Því miður hafa hlutirnir
ekki spilast eins vel fyrir hann og
hann ætlaði sér.
Í nóvember á síðasta ári varð
hann að draga sig út úr bardaga
gegn Kóreubúanum Dong Hyun-
Kim en sigur þar hefði gefið honum
enn stærri bardaga í kjölfarið. Flest-
ir af þeim sem eru fyrir ofan hann
hafa annaðhvort verið meiddir eða
bókaðir í aðra bardaga á þessu ári.
Gunnar þarf því að slökkva á spræk-
um strákum sem eru á uppleið á
meðan hann bíður eftir að mæta
hákörlunum. Hann afgreiddi Alan
Jouban smekklega í mars og ætlar
sér að senda enn sterkari skilaboð
með því að klára Ponzinibbio.
Auðvitað er miklu meira undir
hjá Gunnari sem er eðlilega að taka
talsverða áhættu með því að berjast
við gaura sem eru fyrir neðan hann
á styrkleikalistanum. Hann er aftur
á móti að sýna að hann óttast ekki
áskoranir og ef allt fer að óskum á
morgun þá geta forráðamenn UFC
ekki annað en gefið honum
næst bardaga gegn ein-
hverjum af þeim bestu.
Þá er leiðin í heims-
meistaratitilinn sem
Gunnar horfir á ekk-
ert svo löng þó að
steinarnir sem þarf
að henda af stígn-
um séu ívið stærri
en þeir sem hann
hefur verið að
velta við
á síðustu
árum.
Gunnar og Sunna
á leið í stríð
Henry Birgir
Gunnarsson
henry@fretta
bladid.is
Það er risastór helgi
hjá Mjölnisfólkinu
Gunnari Nelson og
Sunnu „Tsunami“
Davíðsdóttur. Þau
berjast sitt í hvorri
heimsálfunni í afar
mikilvægum bar-
dögum. Sigur gæti
opnað stórar dyr
fyrir þau bæði.
Á laugardagskvöld
berst sunna, sem
kallar sig tsunami,
við hina bandarísku
kelly d‘angelo og Á
sunnudaginn mætir
gunnar argentínu-
manninum santiago
Ponzinibbio.
1
5
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:1
2
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
5
2
-E
1
6
8
1
D
5
2
-E
0
2
C
1
D
5
2
-D
E
F
0
1
D
5
2
-D
D
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
0
4
s
_
1
4
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K