Fréttablaðið - 15.07.2017, Page 68

Fréttablaðið - 15.07.2017, Page 68
sigurstranglegt. Það má að mörgu leyti þakka fyrrverandi þjálfara liðsins sem er hin goðsagna- kennda Silvia Neid. Þessi 53 ára gamli þjálfari þýska liðsins var einn farsælasti knattspyrnu- maður Þýskalands en hún vann sjö meistaratitla sem leik- maður og sex bikartitla. Hún spilaði þess utan 111 landsleiki og skoraði í þeim leikjum 48 mörk. Um leið og Neid lagði skóna á hilluna var hún komin í vinnu hjá þýska knattspyrnusambandinu. Hún byrjaði á að þjálfa U-19 ára lið Þjóð- verja og gerði það að heimsmeist- urum árið 2004. Hún varð svo aðstoðarþjálfari A-landsliðsins en tók við stjórnar- taumunum þar í lok júní árið 2005. Hún stýrði liðinu í ellefu ár en hætti á síðasta ári en þá var hún löngu búin að gera þýska landsliðið að stórveldi. Þýska liðið lék 169 leiki undir stjórn Neid. Liðið vann 125 þeirra, gerði 22 jafntefli og tapaði 22 leikjum. Hún er því með vinnings- hlutfall upp á tæp 74 prósent. Ekki amalegt. Það er því pressa á Steffi Jones í Hollandi að halda áfram því starfi sem Neid hafði unnið árin á undan henni. Það eru margir sem spá því að Þýskaland vinni Evrópumótið í Hollandi. Ekki að ástæðu- lausu því Þýskaland hefur hampað bikarnum í sjö af þeim átta skiptum sem mótið hefur farið fram. Það var aðeins árið 1993 sem önnur þjóð vann en það var Noregur með 1-0 sigri í úrslitaleik gegn Ítalíu. Það ár varð Þýskaland að sætta sig við fjórða sætið á mótinu. Noregi hefur iðulega gengið vel á EM og farið fjórum sinnum í úrslit. Norska liðið hefur aftur á móti lent á þýska stálveggnum eins og allar hinar þjóðirnar. Þýskaland er búið Saga EM er saga Þýskalands Bianca Schmidt og Birgit Prinz eru goðsagnir hjá þýska liðinu. Prinz, til hægri, var þrí- vegis valin besta knattspyrnu- kona heims á mögnuðum ferli. Sex í röð. Þýskaland hefur unnið EM sex sinnum í röð. Þýska liðið fagnar hér titlinum á síðasta EM. Myndir/nordicPhotoS/gEtty EM kvenna í knattspyrnu fer nú fram í níunda sinn. Byrjað var með EM kvenna árið 1991 en til- raunir voru gerðar með álíka mót áður. Þýskaland hefur haft mikla yfirburði. drottningin. hin magnaða Silvia neid gerði þýska landsliðið að stór- veldi. að vinna EM núna sex sinnum í röð og þýsku stelpurnar hafa ekki fengið nóg. Þær elska að vinna og sigur- hefðin er rík í þýska boltanum. Saga EM kvenna er ekki löng en svo sannarlega á réttri leið. Fyrsta óopin- bera EM fór fram árið 1969 en þá tóku fjórar þjóðir þátt. Ítalía vann þá Dan- mörku, 3-1, í úrslitaleiknum á meðan England vann 2-0 sigur á Frakklandi í bronsleiknum. Það liðu tíu ár þar til annað óopin- bert EM fór fram. Þá snerist dæmið við og Danmörk vann sigur á Ítalíu í úrslitaleiknum, 2-0. Tólf þjóðir tóku þátt að þessu sinni og Svíþjóð fékk brons eftir sigur á Englandi í víta- spyrnukeppni. Á þessum tíma var áhuginn að aukast á kvennaknattspyrnu og Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, fór þá loksins að setja á mót fyrir kvennalið. UEFA fór þó varlega af stað og árin 1984, 1987 og 1989 fengu aðeins fjögur lið að taka þátt í mótinu. Sví- þjóð, Noregur og Vestur-Þýskaland unnu þessi þrjú mót. Árið 1991 var loksins byrjað að kalla mótið EM eins og hjá strákun- um. Mótið fór þá fram í Danmörku en þó aðeins með fjórum liðum líkt og áður. Þýskaland vann úrslitaleikinn gegn Noregi, 3-1, eftir framlengingu. Noregur vann árið 1993 og Þýskaland tveimur árum síðar. Í öll skiptin voru aðeins fjögur lið á mótinu. Það er ekki fyrr en árið 1997 sem mótið er loksins stækkað og átta þjóðir unnu sér inn farseðil á loka- mótið. Það breytti engu um niður- stöðuna. Þýskaland varð Evrópu- meistari. Eftir mótið árið 2001, sem Þýska- land vann auðvitað, var ákveðið að láta fjögur ár líða á milli móta líkt og þekkist í stórmótum hjá körlunum. Það er samt ekki fyrr en 2009 sem þjóðum á lokamótinu er fjölgað í tólf. Árin 2009 og 2013 voru tólf þjóðir á EM en núna verða í fyrsta skipti sextán þjóðir á lokamóti EM. EM kvenna heldur áfram að stækka og verður veglegra í hvert einasta skipti. Áhorfendum fjölgar líka og áhugi fjöl- miðla á mótinu hefur aukist í takt við fjölgun þjóða á lokakeppninni. Eins og áður segir verða augu margra á þýska liðinu sem er alltaf 22 áfraM íSland 1 5 . j ú l í 2 0 1 7 l aU g a r dag U r Áfram Ísland Styðjum stelpurnar til sigurs 1 5 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :1 2 F B 1 0 4 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 5 3 -2 1 9 8 1 D 5 3 -2 0 5 C 1 D 5 3 -1 F 2 0 1 D 5 3 -1 D E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 0 4 s _ 1 4 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.