Fréttablaðið - 15.07.2017, Page 72

Fréttablaðið - 15.07.2017, Page 72
Þetta var söguleg undankeppni fyrir íslenska kvennalandsliðið í fótbolta. Stelpunum okkar tókst nú í fyrsta sinn að tryggja sig inn á EM án þess að fara í gegnum umspil. Íslenska liðið vann sinn riðil og var búið að tryggja sér sæti á Evrópumótinu fyrir tvo síðustu leiki sína. Íslensku stelpurnar fögnuðu EM-sætinu með því að vinna sinn sjöunda sigur í röð sem kom á móti Slóveníu 17. september en lokaleik- urinn var við Skota aðeins þremur dögum síðar. Þegar lagt var í hann í upphafi undankeppninnar stefndi alltaf í hreinan úrslitaleik við Skota í lokaleiknum en þegar 20. septem- ber 2016 rann upp þá skipti sá leikur litlu máli. Íslenska liðið hafði þó bæði þá gulrót að landa fullkomni undan- keppni og vinna riðilinn. Annað markmiðið náðist en 2-1 tap þýddi að liðið tapaði sínum fyrstu stigum og fékk á sig fyrstu mörkin. Markatala íslenska liðsins fyrir lokaleikinn var 33-0 og liðið var búið að halda hreinu í 655 mínútur þegar Skotar komust í 1-0 í Laugardalnum. Einum þýðingarlitlum lokaleik frá fullkomnun Harpa Þorsteins- dóttir skoraði 10 mörk í aðeins 6 leikjum í undan- keppninni. Hér fagnar hún einu af mörkum sínum. Mynd/KSÍ/ HilMar Þór Guð- MundSSon Það var mjög gaman á laugardalsvellinum í september síðastliðnum þegar stelpurnar okkar voru búnar að tryggja sér sæti á EM. Hér fagna þær sigri á Slóveníu sem tryggði þeim endanlega EM- sætið. Fréttablaðið/anton brinK Íslensku stelpurn- ar komust í fyrsta sinn inn á EM án þess að þurfa að fara í gegnum umspilsleiki. Ís- lenska liðið vann riðil sinn í fyrsta sinn og var meira að segja komið inn á EM fyrir tvo síðustu leiki sína. Ísland átti líka markahæsta leik- mann riðilsins og undankeppninnar. Árangur íslensku stelpnanna á útivelli var afar athyglisverður en íslenska liðið vann alla fjóra úti- leikina og það með markatölunni 19-0. Meðal þeirra var 4-0 sigur á Skotum í júní 2016 en með þeim sigri lagði íslenska liðið grunninn að sigri í riðlinum. 6-0 sigurinn úti í Slóveníu í síðasta leiknum haustið 2015 kom íslenska liðinu líka í mjög góða stöðu og gaf um leið skýr skilaboð um að íslensku stelpurnar væru til alls líklegar. Þessir tveir útileikir voru líklega bestu leikir íslenska liðsins í undankeppninni, tveir sannfærandi útisigrar á liðunum sem enduðu í 2. og 3. sæti riðilsins. Harpa Þorsteinsdóttir var ekki aðeins markahæsti leikmaður íslenska riðilsins með tíu mörk heldur var hún markahæst í allri undankeppninni. Norska stelpan Ada Hegerberg og Skotinn Jane Ross skoruðu 10 mörk eins og Stjörnu- konan. Dagný Brynjarsdóttir skoraði sjö mörk í riðlinum og varð þar þriðja markahæst á eftir þeim Hörpu og Ross. Alls skoruðu sex leikmenn íslenska liðsins tvö mörk eða fleiri í undankeppninni. Íslensku stelpurnar voru meðal efstu liða bæði hvað varðar sóknar- leik og varnarleik. Aðeins tvö lið skoruðu fleiri mörk en íslenska liðið í undankeppninni, Spánn (39) og Þýskaland (35), og bara Frakkland (0 mörk á sig), Þýskaland (0), Danmörk (1) og England (1) fengu á sig færri mörk 21 .3 24 4/ 7. 17 Molta er náttúrleg afurð mynduð við jarðgerð. Jarðgerð er niðurbrot á lífrænum úrgangi við stýrðar aðstæður. Ýmsir efnaferlar og örverur umbreyta efninu í moldarkenndan jarðvegsbætandi massa með töluvert áburðargildi. Moltu er gott að blanda annarri mold eða dreifa moltunni yfir beð og grasflatir í þunnu lagi. Sendum moltuna heim í stórsekkjum gegn vægu gjaldi. Þá er öllum velkomið að koma til okkar á Gámavelli í Berghellu 1 í Hafnarfirði og moka moltu í eigin fólksbílakerru án endurgjalds. Berghellu 1 • 221 Hafnarfjörður • Sími 535 2500 • soludeild@gamar.is • www.gamar.is MOLTA er kraftmikill jarðvegsbætir 26 áFraM ÍSland 1 5 . j ú l Í 2 0 1 7 l au G a r daG u r 1 5 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :1 2 F B 1 0 4 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 5 2 -F A 1 8 1 D 5 2 -F 8 D C 1 D 5 2 -F 7 A 0 1 D 5 2 -F 6 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 0 4 s _ 1 4 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.