Fréttablaðið - 15.07.2017, Qupperneq 74
Margrét María
(lengst til hægri)
á góðri stundu
á Pæjumótinu
í Vestmanna-
eyjum, með
einu af liðunum
sem hún þjálfar.
Mynd/GuðMund-
ur Kr. Gíslason
Einbeitingin
leynir sér ekki
hjá þessari ungu
knattspyrnu-
konu sem tók
þátt í símamót-
inu í fyrra.
Þessar stelpur eru alltaf að verða
betri og betri og það eru klárlega
ansi margar sem munu gera tilkall til
sætis í kvennalandsliðinu okkar eftir
nokkur ár.
Gott kvennalandslið hefur ansi mikla þýðingu fyrir okkur þjálfara yngri flokka. Þessar
landsliðskonur voru allar einu sinni
stelpur og iðkendur okkar sjá að
með góðu hugarfari og dugnaði geti
þeir komist jafn langt einn daginn.
Stelpurnar í landsliðinu eru þannig
frábærar fyrirmyndir og ýta undir
áhuga yngri iðkenda,“ segir Margrét
María sem þjálfar 4., 5. og 6. flokk
kvenna hjá Breiðabliki auk þess
sem hún spilar sjálf með KR í Pepsi-
deildinni.
Hún segist dugleg að nýta sér vel-
gengni landsliðsins í þjálfun sinni.
„Við tölum reglulega um hversu langt
er hægt að ná ef maður ætlar sér
það og hversu mikilvægt það sé fyrir
okkur að eiga sér draum og stefna að
honum,“ segir Margrét María en hún
telur að stelpurnar sem hún þjálfar
eigi sér allar uppáhaldsleikmann
í landsliðinu. „Stelpurnar eru ansi
duglegar að mæta á völlinn og þekkja
því vel til í landsliðinu. Þá þekkja
þær suma leikmennina betur en aðra
enda margar landsliðskonur sem
spila með Breiðabliki og eru duglegar
að gefa af sér til yngri iðkenda.“
landsliðið frábær fyrirmynd
Að vera með gott kvennalandslið í knattspyrnu ýtir undir áhuga stúlkna
á að æfa íþróttina og leggja meira á sig til að ná langt að sögn Margrétar
Maríu Hólmarsdóttur, þjálfara yngri flokka hjá Breiðabliki.
Staðreyndir um Símamótið
l Símamótið verður haldið í 18.
sinn nú um helgina en þetta er
í 32. skiptið sem stúlknamót er
haldið hjá Breiðabliki.
l Mótið varð til fyrir tilstilli
nokkurra feðra ungra knatt-
spyrnukvenna í Breiðabliki.
Þeim fannst ekki næg verkefni
fyrir stelpurnar sínar og vildu
að Breiðablik gengi á undan
með góðu fordæmi til eflingar
kvennaknattspyrnu á Íslandi.
Fyrstu mótin voru smá í sniðum,
nokkrum liðum var boðin þátt-
taka og mótið stóð aðeins í einn
laugardag. En eftirspurn eftir því
að komast á mótið jókst jafnt og
þétt og fyrr en varði var farið að
spila mótið á föstudegi, laugar-
degi og sunnudegi auk þess sem
setningarathöfnin fór fram á
fimmtudagskvöldi.
l Keppendur á Símamótinu í ár
eru um tvö þúsund.
l Keppendur eru stelpur á aldr-
inum fimm til tólf ára.
l Keppendur koma frá 38 félögum
víða af landinu.
l Um 500 manns, starfsmenn
Breiðabliks, foreldrar og iðk-
endur, starfa á mótinu.
Eitt stærsta mótið
Breiðablik stendur fyrir hinu
vinsæla Símamóti um helgina.
Er ekki mikil spenna fyrir því hjá
stelpunum? „Jú, mjög mikil spenna.
Þetta er eitt af stærri mótunum sem
stelpurnar bíða eftir allt sumarið.
Margar hverjar eru farnar að telja
niður nokkrum vikum á undan,“
svarar Margrét María og telur að
mót á borð við þetta hafi mikið að
segja til að viðhalda áhuga stelpn-
anna. „Þetta er það sem stelpurnar
stefna að og hlakka mest til allt
árið. Þær æfa vel allt árið til að geta
tekið þátt í þessum mótum. Mótin
búa líka til svo margar skemmti-
legar minningar.“ solveig@365.is
Björt framtíð
Í sinni þjálfun segist Margrét
María leggja áherslu á að kenna
stelpunum leikinn og að spila
skemmtilegan fótbolta. „Ég vil
sýna þeim að fótbolti er ekki bara
einhver ein ákveðin leið heldur svo
miklu meira. Mér finnst mikilvægt
að stelpurnar öðlist sjálfstraust og
séu óhræddar við að gera mistök.
Ég hvet þær til að leggja sig alltaf
allar fram við æfingar og leiki, æfa
aukalega og njóta þess að vera í
fótbolta,“ lýsir hún og er bjartsýn
á framtíð íslenskrar kvennaknatt-
spyrnu.
„Þessar stelpur eru alltaf að
verða betri og betri og það eru
klárlega ansi margar sem munu
gera tilkall til sætis í kvennalands-
liðinu okkar eftir nokkur ár.“
Taktu þátt á
frettabladid.is/sumarleikur
28 áfraM ísland 1 5 . j ú l Í 2 0 1 7 l au G a r daG u r
1
5
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:1
2
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
5
2
-B
9
E
8
1
D
5
2
-B
8
A
C
1
D
5
2
-B
7
7
0
1
D
5
2
-B
6
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
0
4
s
_
1
4
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K