Fréttablaðið - 19.07.2017, Síða 4

Fréttablaðið - 19.07.2017, Síða 4
FRAMÚRSKARANDI HÖNNUN Á STELLI SÆTISPÓSTUR HANNAÐUR TIL AÐ DRAGA ÚR TITRINGISTÍFT Á LYKILSTÖÐUM OG MJÚKT Á LYKILSTÖÐUM HÆGT AÐ KOMA 28 MM DEKKJUM GEFUR MÖGULEIKA Á UPPRÉTTARI STÖÐU WWW.GÁP.IS FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200 SYNAPSE MÖGULEGA BESTI RACERINN FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR Samfélag „Ég geri þetta aldrei aftur. Þetta er alltof erfitt,“ segir Svavar Hreiðarsson, 46 ára hestamaður á Syðra-Garðshorni í Eyjafirði. Svavar berst við MS-sjúkdóminn en ætlar að komast á heimsmeistaramót íslenska hestsins í Hollandi. Svavar fær að öllum líkindum ekki fleiri tækifæri í lífinu til að takast á við þennan draum sinn sökum sífellt hrakandi heilsu. Draumur hans er að verða heimsmeistari í skeiði á merinni Heklu frá Akureyri. Hann hefur misst mátt og þrek og er orðinn blindur á öðru auga en þrátt fyrir allt þetta ætlar hann sér stóra hluti í Hol- landi. Vinir hans hafa sett af stað söfnun til þess að hann geti upplifað draum sinn, skeiðkappreið á stærsta sviði hestaíþrótta í gegnum troðfullan leikvang. „Þetta er alltaf barátta við sjúk- dóminn. Núna er þetta erfitt og hel- vítis puð ef ég á að vera hreinskilinn. Ég er búinn að vera að reyna að safna styrkjum en það gengur erfiðlega. Þess á milli er ég að hreyfa hrossið því það snýst allt um þetta, ég geri ekkert annað,“ segir Svavar. Hann hefur skilning á þeim fyrir- tækjum sem eru háð íslensku krón- unni því hann hefur fengið vilyrði frá mörgum sem þurfa að halda fast í hverja krónu. Svavar þarf sjálfur að útvega fé fyrir stórum hluta þess sem ferðin kostar. Nú ætla vinir hans að létta undir og hafa hafið söfnun á góðgerðarsöfn- unarsíðunni www.generosity.com. Hægt er að finna styrkinn með því að leita undir Svabbi. – bb Ætlar að verða heimsmeistari þrátt fyrir að vera plagaður af MS Svavar á baki Heklu. Vinir hans hafa hafið fjársöfnun til að styrkja hann til þátttöku á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Hollandi. Mynd/Bjarney anna ÞóriSdóttir andlát Ólafur H. Torfason, rithöf- undur, fjölmiðlamaður og kvik- myndasérfræðingur, er látinn. Lést hann á mánudag á sjötugasta aldursári. Ólafur fæddist í Reykjavík þann 27. júlí árið 1947. Hann átti farsælan feril í íslenskum fjölmiðlum og starf- aði meðal annars fyrir DV og RÚV auk þess sem hann varð ritstjóri Þjóðviljans árið 1989. Ólafur greindist með Parkin- sonssjúkdóminn árið 2009 og síðar krabbamein og Lewy body heila- bilunarsjúkdóm. Dvaldi hann á Droplaugarstöðum síðustu ár ævi sinnar. Útför Ólafs verður gerð frá Kristskirkju, Landakoti, á föstudag klukkan 13. – þea Ólafur H. Torfason látinn fjarSkipti „Síminn telur það með öllu óviðeigandi að Reykjavíkurborg taki sér það vald í gegn um fyrirtæki í sinni eigu að ákveða hvar samkeppni í Reykjavík fái að þrífast og hvar opinber einokun að ríkja,“ segir Orri Hauksson, forstjóri Símans, í bréfi til stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur. Orri hefur áður skrifað stjórnar- mönnum Orkuveitunnar bréf og kvartað undan framgöngu Gagna- veitu Reykjavíkur, dótturfélags OR, á ljósleiðaramarkaði. Bréf sem hann skrifaði í apríl var í júní tekið fyrir á fundi stjórnar OR þar sem meiri- hlutinn ákvað að aðhafast ekki eftir að hafa leitað skýringa hjá Gagna- veitunni. Þrír stjórnarmenn sátu hjá. Orri segir við Fréttablaðið að þótt stjórn Orkuveitunnar telji sig hafa fengið fullnægjandi skýringar frá Gagnaveitunni sé málinu ekki lokið. Það snúist um að Síminn hafi í nokkur ár reynt án árangurs að fá samvinnu við Gagnaveitu Reykjavíkur varðandi samnýtingu innviða, bæði þeirra sem þegar séu til og eins þess sem eftir eigi að framkvæma. Markmiðið sé að fyrir tækin séu ekki í kapphlaupi að grafa allar götur með tilheyrandi sóun á fé og raski fyrir íbúa. „Það gerðist til dæmis núna í júní að Gagnaveitan var að fara að grafa nokkrar götur í Kópavogi og Míla vildi gjarnan fá að vera með í þeim skurði eins og gerist þegar veitufyrir- tæki og verktakar eru að opna jörð á annað borð. En Gagnaveitan hafði ekki áhuga á því og það endaði eftir margra vikna reiptog með að Kópa- vogsbær sá til þess að Gagnaveitan fékk ekki framkvæmdaleyfi nema að starfa með þeim öðrum sem ætluðu að vinna í sama hverfi,“ segir Orri. Í nýju bréfi skorar Orri á Orku- veituna að tryggja að  Gagnaveitan starfi í samræmi við lög og í þágu samkeppni. Ljóst sé að fyrirtækið starfi í dag í andstöðu við fjarskipta- lög, samkeppnislög og evrópskt reglu- verk. „Opinbert fjármagn hefur verið nýtt með ólögmætum hætti og til þess að réttlæta slíka nýtingu hefur GR gripið til ólögmætra aðgerða til þess að styrkja og tryggja markaðsráðandi stöðu félagsins,“ skrifar forstjóri Sím- ans sem segir Gagnaveituna leggja sig fram um að takmarka samkeppni og reyna að bola keppinautum af mark- aðnum. „Það eru einkennileg skila- boð til atvinnulífsins að hið opinbera vald, sem Reykjavíkurborg og OR/GR er falið, sé nýtt í því skyni að draga markvisst úr samkeppni í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum í stærsta hluta fjarskiptakeðjunnar.“ Fullyrt er í bréfi Símaforstjórans að sá aðgangur að kerfi Gagnaveitunnar sem Síminn hafi óskað eftir sé í fullu samræmi við stefnu bæði íslenska ríkisins og framkvæmdastjórnar ESB um að auka skuli samkeppni í innviðatækni fjarskipta. Orri nefnir sérstaklega sex atriði sem hann segir til marks um að Gagnaveitan leggi sig fram um að takmarka samkeppni. Eitt þeirra sé að Gagnaveitan hafi verið fjármögnuð með ólögmætum hætti og brotið fjarskiptalög. „Síminn telur reyndar augljóst að ólögmæt ríkisaðstoð eigi við í fleiri og alvar- legri tilfellum,“ skrifar Orri Hauksson. gar@frettabladid.is Símaforstjóri segir opinbert fé vera misnotað í Gagnaveitunni Forstjóri Símans ber Gagnaveituna þungum sökum í bréfi til Orkuveitunnar og skorar á stjórnarmenn að tryggja að starfað sé í samræmi við lög“. Meirihluti stjórnar OR hefur áður hafnað aðfinnslum forstjórans. Starfsmenn Gagnaveitu reykjavíkur vinna við að leggja ljósleiðara í jörð. Mynd/GaGnaVeita reykjaVíkur ólafur H. torfason. Orri Hauksson, forstjóri Símans. SlyS Banaslys varð í Hafnarfirði á mánudag þegar karlmaður lést eftir að hann féll úr byggingar- krana á vinnusvæði í bænum. Þetta segir í tilkynningu sem lög- reglan sendi frá sér í gær. Lögreglu barst tilkynning um slysið síðdegis á mánudag og héldu lögregla og sjúkraflutn- ingamenn þegar á vettvang og hófu endurlífgunartilraunir. Var maðurinn í kjölfarið fluttur á Landspítalann en þar var hann úrskurðaður látinn. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ekki sé hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Lögregl- an og Vinnueftirlitið rannsaki nú tildrög slyssins. – þea Banaslys í Hafnarfirði 1 9 . j ú l í 2 0 1 7 m i Ð V i k U d a g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð 1 9 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :5 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 5 7 -0 B E 8 1 D 5 7 -0 A A C 1 D 5 7 -0 9 7 0 1 D 5 7 -0 8 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 1 8 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.