Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.07.2017, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 19.07.2017, Qupperneq 8
Fjölbreytt, fljótleg og spennandi næring til að grípa með sér í ferðalagið, í útivistina eða á snúningum í amstri dagsins. ferskari kostur FERSKT 66····· Þú grípur það með þér á Olís Fyrir fólk á ferðinni ··· ·· ·· ·· ·· ·· · Samfélag Orsök á vandræðagangi neyðarloku Veitna við Faxaskjól má rekja til þess að legur í opnunar- búnaði voru ekki úr ryðfríu stáli og voru því hjól, öxlar og legur ónýtar og tærðar í burtu. Skipt var um opnunarbúnaðinn árið 2014. Skipt var um svipaðan búnað í dælustöð sem er við Hörpu og er full ástæða til að taka hana upp í ljósi atburða síðustu mánaða. Mun því óhreinsað skólp leka út um neyðarúthlaup milli Hörpu og Sól- farsins þegar það verður gert. Þetta kemur fram í minnisblaði Ingu Dóru Hrólfsdóttur, fram- kvæmdastjóra Veitna, til stjórnar Orkuveitunnar sem óskaði eftir svörum við spurningum um orsök og afleiðingar bilunar í dælustöð fráveitu við Faxaskjól. Starfsmenn Veitna höfðu veitt því athygli að mikill sjór barst inn í dælustöðina. Við skoðun kom ryðið í ljós. Smiðjan sem smíðaði lokuna sérsmíðaði öxla og hjól og tók það tvo daga. Strax varð ljóst að lokan var ekki nógu þétt og sjór streymdi enn inn í stöðina. Bráða- birgðabúnaði var komið fyrir þann- ig að í neyðartilfellum myndi lúgan opnast. Þannig var komið í veg fyrir hættuna á því að skólp flæddi inn til viðskiptavina. Áætla má að tæplega ein milljón rúmmetra af skólpi hafi farið í sjó- inn vegna bilunarinnar í Faxaskjóli. Fyrir uppsetningu núverandi kerfis Notuðu ekki ryðfrítt og því brást lokan Erfitt er að segja nákvæm- lega til um hvað það tekur langan tíma fyrir mengunina að hverfa úr flæðarmálinu. Þegar talað er um mengun frá skólpi er oftast rætt um saurkólígerla, því þeir eru vísbending um skólpmengun. Saurkólígerlar fjölga sér lítið eða ekki í vatni og líftími þeirra er almennt talinn mjög stuttur, sér- staklega þegar sólarljóss nýtur við. Frétta- blaðið/VilhElm „Vona að þetta dót virki og að við hættum að svína út fjöruna.“ Í minnisblaðinu kemur fram að Veitur hefðu mátt átta sig á því að upplýsingar um losun á óhreinsuðu skólpi um neyðar- lúgu í Faxaskjóli ættu erindi til almennings. Tímar hafi breyst og fólk nýti sjóinn meira til útivistar. Mikil reiði braust út þegar ljóst var að um 750 sekúndulítrar af skólpi runnu óhindrað til sjávar. Í minnisblaðinu eru tekin saman samskipti milli Veitna, Orkuveitu Reykjavíkur og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur vegna málsins. Ekki var unnið um helgar að viðgerð. Í tölvupósti frá Veitum, þann 5. júlí, kemur fram að neyðarlúgan eigi að fara niður og verði prófuð sama dag og aftur daginn eftir. „ Nú verður að krossa putta og vona að þetta dót virki og að við hættum að svína út fjöruna,“ segir í tölvupóstinum. Svava Svanborg Steinarsdóttir heil- brigðisfulltrúi svarar fyrir eftir- litið. „Takk fyrir þetta. Þetta ætlar að ganga illa að ná þessu í lag.“ RÚV greindi svo fyrst fjölmiðla frá í tíu fréttum sínum sama kvöld Áætla má að tæplega ein milljón rúmmetra af skólpi hafi farið í sjóinn vegna bilunarinnar í Faxaskjóli. Bilunin orsakaðist vegna þess að smiðjan sem gerði við neyðarlokuna árið 2014 notaði ekki ryðfrítt stál. Þarf að skoða svipaðan búnað við Hörpu og mun óhreinsað skólp því leka þar út. á skólplosun árið 1992 má gera ráð fyrir að um 60 milljónir rúmmetra af skólpi hafi flætt óhreinsaðir í sjó árlega við strendur höfuðborgar- svæðisins. Mörg sveitarfélög í land- inu eru ekki með neina skólphreins- un þannig að skólp flæðir óhreinsað í sjó, ár eða vötn allan ársins hring. Ein helsta ástæða fyrir neyðar- losun er að ekki flæði upp í kerfin til notenda, þegar dælustöðvar eru ekki í gangi eða hafa ekki undan því skólpi sem að þeim berst. Saurkólí- gerlar fjölga sér lítið eða ekki í vatni og líftími þeirra er almennt talinn mjög stuttur. Talið er að 90 prósent gerlanna séu nú þegar dauð. Búist var við að viðgerð á neyðarlúgunni í Faxaskjóli myndi ljúka á seint í gær- kvöldi gengi allt eftir. benediktboas@365.is 1 9 . j ú l í 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a g U R8 f R é t t I R ∙ f R é t t a B l a Ð I Ð 1 9 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :5 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 5 7 -1 A B 8 1 D 5 7 -1 9 7 C 1 D 5 7 -1 8 4 0 1 D 5 7 -1 7 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 1 8 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.