Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.07.2017, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 19.07.2017, Qupperneq 16
Dohop þarf að sækja sér 65 millj­ ónir króna að lágmarki á þessu ári til þess að halda rekstrinum gangandi. Ef gengi krónunnar heldur áfram að styrkjast gæti fjárhæðin orðið allt að eitt hundrað milljónir króna. Þetta kemur fram í fundar­ gerð aðalfundar félagsins sem haldinn var 23. maí síðastlið­ inn og Markaðurinn hefur undir höndum. Haft er eftir D av í ð G u n n ­ arssyni, fram­ kvæmdastjóra Dohop, í fundar­ g e r ð i n n i a ð gengisstyrking krónunnar hafi haft mikil áhrif á rekstur félagsins. Stjórnendur Dohop sögðu meðal annars upp tíu starfsmönnum hér á Íslandi á fyrsta fjórðungi árs­ ins og réðu þess í stað starfs­ menn í Hvíta­Rússlandi og Úkraínu. Davíð útskýrði jafn­ framt á fundinum hvernig aukið hlutafé hefði drifið tekjuvöxt félagsins áfram. Miðað við þá reynslu ættu stjórn og hlut­ hafar að huga mögu­ lega að því að sækja meira fé en minna. Hann bætti við að ef einhvern tímann væri tími til þess að hafa félagið vel fjár­ magnað, þá væri það núna. Ve l t a D o h o p jókst um 41 prósent og nam 305 milljónum króna í fyrra. Varð um 200 milljóna króna tap á rekstr­ inum. Davíð sagði í samtali við Við­ skiptablaðið í lok marsmánaðar að útlit væri fyrir að veltan myndi aukast um fimmtíu prósent í ár og verða um 405 milljónir króna. Yrði afkoman í kringum núllið. Hann benti á að stærstur hluti tekna félagsins – ríflega 75 prósent – væru laun í íslenskum krónum og um 90 prósent teknanna væru í erlendri mynt. Styrking krón­ unnar hefði því áhrif á báðar hliðar rekstrar reikningsins sem væri veru­ lega óþægilegt. Gerði hann ráð fyrir að styrkingin myndi kosta félag­ ið um fimmtíu til áttatíu milljónir króna á þessu ári. Dohop var stofnað árið 2004 og rek ur ferðal eit ar vef inn Dohop.is. – kij Dohop þarf að sækja sér 65 milljónir Davíð Gunnarsson, framkvæmdastjóri Dohop markaðurinn Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is – Tengir þig við framtíðina! Sjónvarpsdreifikerfi fyrir hótel, gistiheimili og skip. Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660 oreind@oreind.is • www.oreind.is 244 milljóna króna tap varð af rekstri Brunns vaxtarsjóðs, sem er í rekstri Landsbréfa og SA Fram­ taks GP, í fyrra. Jókst tapið um 156 milljónir króna á milli ára. Sjóðurinn færði jafnframt niður virði eignar­ hlutar síns í tæknifyrirtækinu ATMO Select á árinu. Sjóðurinn, sem var settur á stofn í febrúar árið 2015, fjárfestir í íslensk­ um sprota­ og vaxtarfyrirtækjum. Eigið fé sjóðsins nam 759,5 millj­ ónum króna í lok síðasta árs og jókst um 514 milljónir á milli ára. Sjóðurinn fjárfesti í tveimur nýjum félögum, DT Equipment og Oculis, á árinu, en fyrir átti sjóðurinn hlut í ATMO Select og Ark Techno­ logy. Bókfært virði 28,3 prósenta hlutar sjóðsins í ATMO Select var 40 milljónir í lok árs 2016, en til samanburðar átti sjóðurinn 18,4 prósenta hlut í félaginu að virði 100 milljónir króna í lok 2015. Þá var 44 prósenta hlutur sjóðsins í Ark Technology metinn á tæpar 150 milljónir í lok síðasta árs. Lífeyrissjóður verslunarmanna, Gildi – lífeyrissjóður og Birta eru stærstu hluthafar sjóðsins, með samanlagt yfir 75 prósenta hlut, og þá á Landsbankinn rúmlega fimmt­ ungshlut í Brunni. – kij Brunnur vaxtarsjóður tapaði 244 milljónum Helgi Júlíusson, framkvæmda- stjóri Brunns vaxtarsjóðs Stjórnendur smásölurisans Haga lýstu sig reiðubúna til þess að selja verslanir Heilsuhússins og heild­ verslunina Heilsu til þess að þóknast Samkeppniseftirlitinu. Þeir vildu hins vegar ekki ganga lengra og töldu að Lyfja myndi bíða „verulegt“ fjár­ hagslegt tjón af frekari sölu eigna. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í ákvörðun Samkeppnis­ eftirlitsins um að heimila ekki kaup Haga á Lyfju. Ákvörðunin var birt á vef eftirlitsins í gær. Í ákvörðuninni er rakið að stjórn­ endum Haga hafi verið tilkynnt 26. maí það mat Samkeppnis­ eftirlitsins að kaupin röskuðu samkeppni. Í kjölfarið lýstu stjórn­ endurnir sig reiðubúna til þess að gangast undir tiltekin skilyrði sem væru til þess fallin að koma í veg fyrir þau skaðlegu samkeppnis­ legu áhrif sem eftirlitið taldi stafa af kaupunum. Á meðal skilyrðanna var að Hagar myndu selja frá sér heildverslunina Heilsu og verslanir Heilsuhússins, sem hafa verið í eigu Lyfju um ára­ bil. Auk þess skuldbundu Hagar sig meðal annars til þess að hrófla ekki við staðsetningum apóteka Lyfju í Borgarnesi, Reykjanesbæ og á Egils­ stöðum.  Samkeppniseftirlitið taldi hins vegar tillögur Haga ekki duga til. Þær væru ekki fullnægjandi til þess að eyða þeim skaðlegu áhrifum sem kaupin hefðu annars á samkeppni. Stjórnendur Haga óskuðu eftir fundi með Samkeppniseftirlitinu 11. júlí síðastliðinn þar sem ræða átti möguleika á fleiri skilyrðum, sem fælust þá í frekari sölu á eignum umfram það sem Hagar hefðu þegar lagt til. Í símtali lögmanns Haga við fulltrúa Samkeppniseftirlitsins kom fram að til álita kæmi af hálfu Haga að selja frá sér tilteknar verslanir, til dæmis þær þar sem velta á snyrti­ vöru er hvað mest. Fundurinn fór fram daginn eftir, 12. júlí, en þar kom ekki fram nein ósk af hálfu Haga um frekari skil­ yrði. Sagði lögmaður Haga að við nánari skoðun félagsins á mögulegri sölu frekari eigna hefði komið í ljós að Lyfja hefði beðið mikinn skaða af. Þær einingar sem félagið þyrfti að selja gætu heldur ekki talist sölu­ vænar og kaupendahópurinn væri fámennur. Því væri ljóst að fjárhags­ legt tjón af frekari uppskiptingu Lyfju yrði verulegt.– kij Vildu selja Heilsuhúsið en ekki ganga lengra Samkeppniseftirlitið taldi tillögur Haga ekki duga til þess að eyða þeim skað- legu áhrifum sem samruninn hefði á samkeppni. Yfirmaður hjá Icelandair hefur verið sendur í leyfi frá störfum vegna rannsóknar Fjármálaeftirlitsins (FME) á meintum brotum á lögum um verðbréfaviðskipti. Beinist rann­ sókn FME, samkvæmt heimildum Markaðarins, að viðskiptum með bréf í félaginu í aðdraganda þess að Icelandair Group sendi frá sér tilkynningu til Kauphallarinnar 1. febrúar þar sem afkomuspá félagsins fyrir 2017 var lækkuð um liðlega 30 prósent. Í skriflegu svari við fyrirspurn Markaðarins staðfestir Icelandair að félagið hafi í lok maí síðastliðins fengið upplýsingar um að starfs­ maður þess hefði stöðu grunaðs í rannsókn vegna meintra brota á lögum um verðbréfaviðskipti. „Við­ komandi starfsmaður fór þá strax í leyfi frá störfum sínum og verður þar til rannsókninni lýkur,“ segir í svari Icelandair. Félagið segist ekki hafa frekari upplýsingar um málið. Kom fjárfestum í opna skjöldu Í kolsvartri afkomuviðvörun sem Icelandair Group sendi frá sér rétt fyrir opnun markaða miðvikudag­ inn 1. febrúar síðastliðinn kom fram að EBITDA­hagnaður félagsins – afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta – myndi lækka um 60 til 70 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði um átta milljarða króna, og verða á bilinu 140 til 150 milljónir dala. Vísað var til þess að bókanir hefðu verið hægari en gert var ráð fyrir og að meðalfargjöld á mörkuðum hefðu lækkað umfram spár. „Þessa þróun má einkum rekja til aukinn­ ar samkeppni en einnig má leiða líkur að því að óvissa vegna breyt­ inga í alþjóðastjórnmálum hafi áhrif á eftirspurn,“ sagði meðal ann­ ars í tilkynningu Icelandair. Afkomuviðvörun flugfélagsins kom fjárfestum á markaði í opna skjöldu og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Hlutabréfaverð félags­ ins lækkaði um 24 prósent – úr 22,1 krónum á hlut í 16,8 krónur á hlut – og 27 milljarðar af markaðsvirði Icelandair Group þurrkuðust út á aðeins einum viðskiptadegi. Þegar hlutabréfaverð Icelandair var í hæstu hæðum í apríl 2016 var Ice­ landair metið á um 195 milljarða en í kjölfar afkomuviðvörunar félags­ ins í byrjun febrúar hafði virði þess lækkað samanlagt um 110 milljarða á aðeins níu mánuðum. Gengi bréfa Icelandair hafði lækkað nokkuð dagana áður en afkomuviðvörun félagsins var gerð opinber. Þannig stóð hlutabréfa­ verð félagsins í 23,4 krónum á hlut við lokun markaða 25. janúar en gengið lækkaði samtals um ríflega fimm prósent það sem eftir lifði janúarmánaðar. Hlutabréfaverð Icelandair hélt áfram að falla næstu vikur og mánuði eftir afkomuvið­ vörun félagsins og fór lægst í rúm­ lega 13 krónur á hlut í apríl. Frá því í byrjun júnímánaðar hefur gengi bréfa flugfélagsins rétt nokkuð úr kútnum og hækkað um liðlega 20 prósent. Þannig sendi félagið frá sér tilkynningu eftir lokun markaða 6. júlí síðastliðinn um að farþegum Icelandair hafi í júní fjölgað um um 11 prósent á milli ára. Þá jókst framboðsnýting um 11 prósent og sætanýting hækk­ aði einnig nokkuð frá fyrra ári og var 85,7 prósent. hordur@frettabladid.is Sendur í leyfi vegna rannsóknar FME Yfirmaður hjá Icelandair grunaður um brot á lögum um verðbréfaviðskipti. Var sendur í leyfi frá störfum í lok maí. Rannsóknin beinist að viðskiptum með bréf í aðdraganda kolsvartrar afkomuviðvörunar sem félagið sendi frá sér 1. febrúar. Hlutabréfaverð Icelandair hefur rétt úr kútnum og hækkað um 20 prósent frá því í byrjun júní. FréttaBlaðIð/VIlHelm 27 milljarðar gufuðu upp af markaðsvirði icelandair daginn sem afkomuviðvörun félagsins var send út. 1 9 . j Ú l í 2 0 1 7 M I Ð V I K u D a g u R2 markaðurinn 1 9 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :5 3 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 5 7 -2 9 8 8 1 D 5 7 -2 8 4 C 1 D 5 7 -2 7 1 0 1 D 5 7 -2 5 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 1 8 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.