Fréttablaðið - 19.07.2017, Page 20

Fréttablaðið - 19.07.2017, Page 20
„Mér finnst plássið bara stækka og stækka og ég vil hvergi annars staðar vera,“ segir Hallur Ingi Hallsson um húsbílinn sinn. MyndIr/Stefán Hallur ætlar sér að ferðast um heiminn í bílnum þegar fram líða stundir. Framhald af forsíðu ➛ Fyrsta nóttin var ótrúlega góð, ég hafði aldrei sofið betur. Nú hef ég búið í bílnum í þrjár vikur. Mér finnst plássið bara stækka og stækka og ég vil hvergi annars staðar vera. Þetta er orðið ansi kósí hjá mér,“ segir Hallur Ingi Hallson en hann inn- réttaði Renault Master sendibíl sem húsbíl og ætlar sér að búa að staðaldri í bílnum. „Ég fékk hann ódýrt, á 850 þús- und kall, reif allt innan úr honum, þreif hann vel og málaði og byggði innan í hann aftur. Veggir, loft og gólf er allt einangrað með 25 mm steinull og bíllinn heldur hitanum vel inni. Ég er með lítinn rafmagnsofn sem er meira en nóg, rýmið funhitnar strax. Fyrir veturinn ætla ég að setja inn olíumiðstöð. Ég frýs ekkert í hel hérna,“ segir hann hress. Hallur vinnur við smíðar og verkefnið vafðist ekki fyrir honum. Það tók hann tvo mánuði að gera bílinn gistihæfan. Hann stendur í bílastæði fyrir framan hús foreldra Halls og er þar í sambandi við rafmagn. Hallur er að setja upp eldunaraðstöðu í bílnum en hefur fram að þessu bjargað sér með samlokum. Auk þess er honum boðið í mat inn til mömmu. „Það verður hægt að elda hérna inni en ég er enn þá að smíða eldhúsið. Keypti skáp í IKEA og setti ryðfría stálplötu ofan á hann. Ég er með gaseldunargræju og pönnu og mun setja ryðfría plötu upp á vegginn líka. Kraftmikil vifta verður einnig sett upp svo það verði engin steikingarbræla í bílnum. Svo á ég safapressu, en það fylgja henni reyndar svo mikil þrif að það gæti orðið vesen. Verð frekar með lítinn blandara. Ég hef verið að ná mér í Subway og borða líka inni hjá mömmu. Til skrauts hengdi ég upp nokkur gerviblóm og langar í heilan frumskóg hérna inni. Búinn að setja upp gullkeðjur og glasahald- ara sem hangir í keðju. Ég læt bara ráðast hvernig þetta kemur til með að líta út á endanum,“ segir Hallur. Hann búi einn í bílnum og geti haft sína hentisemi. „Ég gekk aldrei út,“ segir hann hlæjandi og bætir við að foreldrarnir séu ánægðir með þetta framtak hans. Sjálfur hefur hann fulla trú á að smáhýsi séu það sem koma skal. „Ég kom meira að segja þeirri hugmynd á framfæri við Mos- fellsbæ, að skaffa götu þar sem ungt fólk gæti reist sér smáhýsi. En bærinn var ekkert hrifinn, græðir líklega ekki neina peninga á því. En það er úrelt pæling að allir séu að kaupa sér 250 fer- metra einbýlishús. Þetta einfaldar lífsstílinn og sparar líka helling af peningum. Ég er allavega orðinn mjög góður í að spara peninga,“ segir hann. Hugmyndin að bílnum hafi einmitt kviknað þegar hann ákvað fara betur með aurana. „Ég ákvað bara að hætta að eyða peningum á barnum og gera eitthvað sniðugt við þá í staðinn. Nú er ég kominn með fínan bíl sem ég get búið í. Ég ætla að vera hérna í sumar og næsta vetur og svo fer ég bara að ferðast þegar allt verður tilbúið, skoða heiminn og svindla mér í skíðalyfturnar í Austurríki.“ Ragnheiður Tryggvadóttir heida@365.is Ég ákvað bara að hætta að eyða peningum á barnum og gera eitthvað sniðugt við þá í staðinn. Nú er ég kominn með fínan bíl sem ég get búið í. Hallur Ingi Hallsson Í bílnum hefur Hallur komið fyrir rúmi, ísskáp og eldun- araðstöðu. Kírópraktorarnir, Guðmundur Freyr Pálsson og Andri Roland Ford, hafa hafið störf hjá Kírópraktorstofu Íslands. 2 KynnInGArBLAÐ fÓLK 1 9 . j ú l í 2 0 1 7 M I ÐV I KU dAG U r 1 9 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :5 3 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 5 7 -1 0 D 8 1 D 5 7 -0 F 9 C 1 D 5 7 -0 E 6 0 1 D 5 7 -0 D 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 1 8 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.