Fréttablaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 28
Milkhouse saman­stendur af þeim Vict­ori Karli Magnússyni, Auðuni Orra Sigur­vinssyni, Andrési Þór Þorvarðarsyni, Katr­ ínu Helgu Ólafsdóttur og Sævari Andra Sigurðarsyni. „Hljómsveitin Milkhouse var stofnuð vorið 2012. Meðlimir hennar voru þá í 10. bekk en þekktust fyrir, þar sem þau voru nemendur í grunnskólum í Hafnarfirði og öll í Tónlistarskóla Hafnar­ fjarðar,“ segir Victor spurður út í hljóm­ sveitina sem hann er meðlimur í. „Rætur tónsmíðanna liggja í djassi en nýir áhrifavaldur og aukin reynsla hefur fært tónlistina einhvert allt annað. Erfitt er að máta hana við tiltekna tónlistar­ stefnu en e.t.v. mætti staðsetja hana á vegamótum lista­rokks og drauma­ popps. Áhrifavaldarnir eru margir, enda meðlimirnir fimm,“ segir Victor um Milk­ house sem var valin Hljómsveit fólksins á úrslitakvöldi Músíktilrauna 2014. Í síðustu viku gaf bandið út sína fyrstu breiðskífu sem ber heitið Painted Mirr­ ors. „Painted Mirrors er tólf laga plata. Lögin eru mörg hver ólík en þrátt fyrir það er heildarsvipur á plötunni; eitthvert samhengi sem situr eftir. Lögin fjalla um mannleg samskipti og sambönd: sam­ bönd vina, fjölskyldna og elskhuga. Enn fremur fjalla þau um hvernig við sem ein­ staklingar smíðum eigin sjálfsmynd eftir því hvaða sambönd við kjósum að rækta eða ekki. Titill plötunnar vísar að ein­ hverju leyti í það. Einstaklingurinn reynir eftir bestu getu að mála eða skapa spegil­ mynd sína, en er þó ávallt berskjaldaður fyrir því hvernig samfélagið sér hann,“ útskýrir Victor. Gífurleg vinna að baki Aðspurður hvernig hafi gengið að vinna þessa fyrstu plötu hljómsveitarinnar segir Victor: „Það gekk vel. Vinnan sem liggur að baki er gífurleg, en sú vinna var bæði gefandi og skemmtileg. Ætlunin var að vinna þetta af mikilli vandvirkni og það tókst, einkum vegna frábærra samstarfs­ félaga, en þeir Gestur Sveinsson og Tómas Guðmundsson stýrðu upptökum og eftirvinnslu. Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir hannaði plötuumslagið og Agnar Freyr Stefánsson sá um umbrotið, og vorum við afar ánægð með útkomuna. Afmynduð brjóstmynd prýðir umslagið, en mann­ eskjan er sett saman úr andlitum allra hljómsveitarmeðlima og vísar aftur að einhverju leyti í titil plötunnar,“ útskýrir Victor. Hann segir þau öll í hljómsveit­ inni vera mjög stolt af afurðinni. „Ég er sérlega stoltur af þeirri staðreynd að allir aðstandendur plötunnar eru ungir. Hljómsveitin, upptökustjórar, graf­ ískir listamenn, við erum öll um tvítugt. Grósku er bersýnilega að finna í íslensku listalífi, ef þú spyrð mig.“ Til viðbótar við plötuútgáfuna sendi hljómsveitin líka frá sér tónlistarmynd­ band við lagið Say My Name. „Tónlist­ armyndbandið við Say My Name var frumsýnt í síðustu viku, þegar platan kom út. Myndbandið segir sögu tveggja einstaklinga, en sjón er sögu ríkari,“ segir Victor sem hvetur áhugasama til að horfa á myndbandið á YouTube. Hvað er svo fram undan? „Við höldum útgáfutónleika í Iðnó á föstudaginn þar sem hópur tónlistar­ manna mun spila með okkur. Miðar eru til sölu á Tix.is og í Iðnó. Svo eru fleiri tónlistarmyndbönd væntanleg á næstu vikum og mánuðum.“ gudnyhronn@365.is Fyrsta platan komin út eftir fimm ára starfsemi Hljómsveitin Milkhouse var að gefa út sína fyrstu breiðskífu. Bandið hefur verið starf- andi í fimm ár þrátt fyrir frekar ungan aldur hljómsveitarmeðlima en þau eru öll fædd árið 1996. Nýja platan ber heitið Painted Mirrors og fjallar um samskipti og sambönd. Milkhouse var stofnuð þegar meðlimir voru í 10. bekk. MYND/BOLLI MAGNÚSSON Ég er sérlega stoltur af þeirri staðreynd að allir aðstandendur plötunnar eru ungir. Merkisatburðir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Þóra Guðrún Stefánsdóttir Dalbraut 20, lést í faðmi fjölskyldunnar á Vífilsstöðum þann 14. júlí. Útför hennar fer fram frá Laugarneskirkju mánudaginn 24. júlí kl. 13.00. Þóra Ólafsdóttir Stefán Ólafsson Ingunn Magnúsdóttir Kolbrún Ólafsdóttir Magnús Sigurðsson Sigrún Ólafsdóttir Fjalar Kristjánsson Sólrún Ólafsdóttir Gunnar Sigmundsson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar innilegustu þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts elsku sonar okkar og bróður, Óðins Einarssonar og sérstakar þakkir til Sverris Einarssonar, besta vinar Óðins. Einar Ingvarsson Sigrún Rosenberg Ingvar Einarsson Katarína Einarsdóttir Hjartanlegar þakkir til ykkar allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför okkar ástkæra Ingibjörns Guðjónssonar líffræðings, Sílakvísl 17, Reykjavík. Stuðningur ykkar hefur verið okkur mjög dýrmætur styrkur. Sérstaklega vildum við færa Eysteini Orra Gunnarssyni sjúkrahúspresti þakkir fyrir ómetanlega aðstoð. Eydís Þórunn Guðmundsdóttir Baltasar Jón Ingibjörnsson Þorlákur Flóki Ingibjörnsson Guðjón Atli Auðunsson Guðbjörg Jórunn Sigurjónsd. Auður Guðjónsdóttir Brynjar Pétursson Young Júlía Sif Guðjónsdóttir Erla Hlöðversdóttir Guðmundur Jónsson Ingibjörg Þorbergsdóttir Eyrún María Guðmundsd. Gunnar Már Gestsson Guðrún Dúna Guðmundsd. Einþór Þorsteinsson Bjarki Guðmundsson Þórunn Jónsdóttir Guðríður Jónsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og vinur, Halldór Þórðarson Litla-Fljóti, verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju fimmtudaginn 20. júlí kl. 14.00. Jarðsett verður á Torfastöðum. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Björgunarsveit Biskupstungna eða Lauf, félag flogaveikra. Jóhannes, Tyrfingur, Björg, Kristín, Einar og fjölskyldur. Maðurinn minn, Axel Sigurðsson Miðleiti 7, Reykjavík, lést á heimili sínu 3. júlí síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Inda Dan Benjamínsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðmundur Þórhallsson bókbindari, lést á Hrafnistu í Reykjavík 8. júlí. Útför hans fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 21. júlí kl. 13. Magnea Guðmundsdóttir Kjartan Ólafsson Guðjón Guðmundsson Elísabet Sigurðardóttir Rannveig S. Guðmundsdóttir Þorgrímur Guðmundsson Þórhallur Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkæri sonur okkar, Guðni Baldursson Grandavegi 3, Reykjavík, varð bráðkvaddur á heimili sínu 8. júlí 2017. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 20. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á HIV Ísland (áður Alnæmissamtökin), kt. 541288-1129, bankanr. 0513-26-603485. Baldur H. Aspar Þóra Guðnadóttir 1255 Bardagi var háður á Þveráreyrum í Eyjafirði, Þverár- fundur. Þar áttust við hundruð manna og á annan tug manna féll, þeirra á meðal Eyjólfur ofsi Þorsteinsson. 1627 Tyrkjaráninu lauk. Ræningjar frá Algeirsborg héldu heim á leið eftir að hafa numið á brott allt að fjögur hundruð manns, myrt fjörutíu og rænt miklum fjármunum. 1813 Gengið var á hæsta tind Íslands, Hvannadalshnúk í Öræfajökli, í fyrsta sinn. Það gerði Hans Frisak, norskur landmælingamaður, og fylgdarmaður hans, Jón Árnason hreppstjóri. 1953 Minnisvarði um Stephan G. Stephansson skáld var afhjúpaður við há- tíðlega athöfn við Arnarstapa í Vatns- skarði í Skagafirði en þá voru um hundrað ár frá fæðingu hans. 1968 Jónas Jóns- son frá Hriflu lést 83 ára. Hann var lengi skólastjóri Samvinnuskólans, alþingismaður í rúman aldarfjórð- ung, dómsmálaráð- herra 1927-32 og formaður Fram- sóknarflokksins 1934-44. Jónas skrifaði mikið um sagnfræði og stjórn- mál. 1 9 . j ú l í 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R16 t í M A M ó t ∙ F R É t t A B l A Ð I Ð tímamót 1 9 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :5 3 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 5 7 -1 0 D 8 1 D 5 7 -0 F 9 C 1 D 5 7 -0 E 6 0 1 D 5 7 -0 D 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 1 8 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.