Fréttablaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 32
Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Skiptu um lit! iGreen V4.02.005 umgjörð kr. 14.900,- Með iGreen umgjörðum getur þú útbúið þá litasamsetningu sem þú vilt. TónlisT Popptónleikar ★★★★ ludovico Einaudi lék eigin tónlist ásamt fimm manna hljómsveit. Eldborg í Hörpu mánudaginn 17. júlí Einfaldleikinn var í fyrirrúmi á tón- leikum Ludovico Einaudi í Eldborg í Hörpu á mánudagskvöldið. Hann spilaði sjálfur á píanó, en með honum voru fimm hljóðfæraleikarar. Tón- listin samanstóð af innhverfum hend- ingum, en inn á milli voru hápunktar sífelldra endurtekninga. Rólega píanó- spilið var frekar væmið, en hápunkt- arnir yfirþyrmandi. Útkoman var ódýr, hún var eins og leikari sem kann bara að sýna tvenn svipbrigði. Tónlistin var endalaus klisja, þar var fátt sem hefur ekki heyrst hundrað sinnum áður. Það var enginn frum- leiki, engin spennandi úrvinnsla, engin framvinda, lítið sem raunveru- lega gerðist annað en effektar. Þetta eru slæmu fréttirnar. Góðu fréttirnar eru að tónlist þarf ekkert endilega að vera frumleg. Stundum á ostborgari ekki að vera neitt annað en ostborgari. Tónlistin, þó hún hafi verið væmin, var fallega leikin og prýðilega útsett. Einaudi sýndi að vísu aldrei nein meistaraleg tilþrif við píanóið, en hann lék af mýkt og tón- arnir voru fagurlega mótaðir. Hinir hljóðfæraleikararnir spiluðu líka af fagmennsku. Þeir léku m.a. á fiðlu og selló og það hljómaði ákaflega vel. Strengjaleikurinn gaf tónlistinni munúðarfullt andrúmsloft. Útsetningarnar voru einnig góðar. Þær voru fjölbreyttar, hvert hljóð- færi var notað til hins ýtrasta. Þarna voru strengjaflaututónar ofarlega á tónsviðinu, seiðandi tölvuhljómar, mjög djúpar bassatrommur og alls konar annað slagverk. Á einum tíma- punkti var meira að segja leikið á lítið þrumuspjald sem dýft var í fiskabúr. Það framkallaði óljósar drunur, eins og af sjávarbotni. Hið sjónræna var auk þess fallegt. Hljómsveitin spilaði í myrkri, en á tjaldið fyrir ofan var varpað heillandi grafík. Þetta voru ýmiss konar mynst- ur og litbrigði sem breyttust lag frá lagi. Það skapaði viðeigandi umgjörð, lyfti tónlistinni, léði henni vængi. Einaudi hefur samið töluvert af tónlist fyrir kvikmyndir, þ.  á  m. hina frönsku The Intouchables, og það heyrðist. Í kvikmyndum gengur sjaldan að hafa flókna músík, því þá stelur hún athyglinni frá því sem er að gerast. Framvindan, sem er svo mikilvæg í klassískri tónlist, er ekki í kvikmyndatónlistinni, hún er í kvik- myndinni sjálfri. Hlutverk tónlistar- innar er að magna upp atburðarásina, búa til rétta andrúmsloftið hverju sinni. Á tónleikunum var slík stemn- ing framkölluð aftur og aftur. Það var nánast hægt að sjá kvikmynda- senurnar fyrir sér. Þrátt fyrir að tónlistin hafi í sjálfri sér verið afar klisjukennd, var a.m.k. mikil einlægni í henni. Einaudi spilaði greinilega frá hjartanu, og það hreyfði við áheyrendum. Tónleikarnir stóðu yfir í rúma tvo klukkutíma án hlés, en manni leiddist aldrei. Flutningurinn var það glæsilegur, tónleikarnir svo vandaðir að það var ekki hægt annað en að dást að. Jónas Sen niðursTaða: Mínímalísk tónlist, væmin og klisjukennd en snyrtilega sett fram; flutningurinn var magn- aður og útsetningarnar flottar.  Klisjur sem virkuðu Ludovico Einaudi píanisti. Arfur seinni heims-styrjaldar í örnefn-um á höfuðborgar-svæðinu  nefnist grein í nýútkomnu hefti ritsins Orð og tunga sem Stofnun Árna Magnús- sonar í íslenskum fræðum gefur út. Greinin er eftir Guðlaug Rúnar Guðmundsson sagnfræðing. Þar  fjallar hann um ensk heiti á höfuðborgarsvæðinu sem breski og bandaríski herinn skráði á kort og notaði í skjölum og mæltu máli.  Þegar Guðlaugur komst yfir þau kort fyrst, í upphafi 7. ára- tugarins, hvíldi yfir þeim leynd sem nú hefur verið aflétt. „Sum íslensk nöfn  gátu  her- mennirnir notað eins og Grótta, Viðey og Kársnes, sem þeir nefndu Grotta, Vidhey og Korsnes. En Skólavörðuholt var þeim álíka mikill tungubrjótur og Eyjafjalla- jökull varð mörgum þegar hann gaus, svo holtið skírðu þeir Skip- ton Hill og kampinn Camp Skip- ton,“ nefnir Guðlaugur sem dæmi. Sjálfur bjó  Guðlaugur nærri Skólavörðuholtinu meðan Camp Skipton var þar og kveðst hafa sótt dálítið þangað inn. „Þar voru litlar flugvélar með þýskum merkjum, svona hálfur metri á lengd, úr hörðu gúmmíi, þeim var stillt upp og hermennirnir skutu á þær. Við  strákarnir reyndum að ná þessum skutlum og ég átti lengi tvær,“ rifjar hann upp. „Þá voru krakkar úti allan daginn og þvældust um, við fórum alveg vestur í Kamp Knox sem var þar sem Vesturbæjarlaug er nú. Þetta var ævintýralegt líf og Kanarnir voru ekkert að stugga við okkur krökkunum, gáfu okkur frekar tyggjó.“ En að örnefnunum. Gamli Bú staða vegur heitir á kortum hersins Edward Road. Hann lá að gatnamótum sem Bretar nefndu Piccadilly Circus og er þar sem Bústaðavegur mætir nú Grensás- vegi – Harley Street. Sogavegur hét Tower Hill Road. „Erlendu örnefnin náðu aldr- ei fótfestu, þótt þau væru mikið notuð, sérstaklega eftir að Banda- ríkjamenn komu því þeir voru með svo mikla tækni í sambandi við loftmyndir og gerðu góð kort. Þeir notuðu mörg af örnefnunum sem Bretarnir höfðu gefið stöðum, hverfum og vegum og voru öll frá Englandi. Skírðu þó suma staði upp og voru hrifnari af nöfnum sem  tengdust hershöfðingjum og hetjum úr ameríska hernum. Það sem ég minnist á í greininni er bara örlítill hluti af þessum nöfnum, því kamparnir á landinu voru yfir 300 þegar þeir voru flest- ir, þar af 80 á Reykjavíkursvæðinu og hermennirnir voru tæplega 40 þúsund þegar þeir voru flestir.“ Guðlaugur telur  íslenska mál- verndarsinna hafa látið  þessi erlendu örnefni óátalin. „Þeir Íslendingar sem fengust við skipu- lag og fleira í tengslum við herinn þekktu þessi nöfn en það voru líka íslensk nöfn á öllum kömp- unum  sem Íslendingar notuðu sín á milli en erlendu  nöfnin í samskiptum við hermennina svo enginn misskilningur  skapaðist í tengslum við  starfsemina. Sér- staklega var það mikilvægt í sam- bandi við  götur og aðrar leiðir milli staða  ef innrás hefði verið gerð. Erlendu nöfnin hurfu ótrú- lega fljótt úr máli manna eftir að herinn fór. Það kom meðal annars til af því að Íslendingar voru svo nýkomnir á mölina og héldu sinni menningu en voru kannski ekkert svo sleipir í ensku. Það siðrof sem varð á þessum hernámstíma varð ekki eins áberandi í þessum efnum og mörgum öðrum.“ Skólavörðuholt var Skipton Hill Pimple Hill og Handle Ridge eru meðal fjölmargra örnefna á höfuð borgarsvæðinu sem hernámsliðin bjuggu til og merktu inn á kort. Guðlaugur R. Guðmundsson sagnfræðingur veit allt um þau. „Ég kynntist Vestur-Íslendingnum Ragnari Stefánssyni í háskólanum 1962. Hann gaf mér kortin með ensku örnefn- unum sem trúnaðarmál. En nú hefur banninu verið aflétt,“ segir Guðlaugur. FRÉttabLaðið/andRi MaRinó Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 1 9 . j ú l í 2 0 1 7 M i ð V i K u D a G u r20 M E n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð menning 1 9 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :5 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 5 7 -0 B E 8 1 D 5 7 -0 A A C 1 D 5 7 -0 9 7 0 1 D 5 7 -0 8 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 1 8 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.