Kiwanisfréttir - 01.03.1972, Síða 4
Trimm trimm .... í Hafnarfirði
Á síðastliðnum vetri iðkuðu
nokkrir félagar úr Eldborg
gönguferðir á sunnudags-
morgnum. Gengið var um ná-
grenni Hafnarfjarðar. Þótti
þetta hin bezta skemmtun og
ágætasta heilsubót, svo sem sjá
má á meðfylgjandi mynd.
Stærsta fjáröflunarleið Eld-
borgarbræðra síðastliðið starfs-
ár var útgáfa viðskipta- og
þjónustuskrár til hagræðis fyr-
ir bæjarbúa. Greiddu auglýs-
endur ákveðið verð fyrir
hverja línu í skránni, en hún
var borin inn á hvert heimili í
bænum. Undirbúningur vegna
útkomu nýrrar skrár er í full-
um gangi.
Eldborgarmenn i sunnudags-trimmi og kilóin twerfa,
eÖa er það ekki?
benda á aðrar leiðir, sem að mínu áliti eru
æskilegri fyrir okkar hreyfingu. I hinum
frjálsa heimi eru starfandi margar alþjóð-
legar unglingahreyfingar, sem eiga í vök
að verjast, aðallega vegna fátæktar og
einnig að miklu leyti vegna skorts á að-
stöðu, svo sem húsnæði, tækja, landrýmis
og fleiru. Á ég þarna við íþróttafélög,
skátafélög, ungmennafélög, góðtemplara
og fleiri slíka ópólitíska aðila. Flest þess-
ara félaga hafa á að skipa þrautþjálfuðum
foringjum, sem hafa alizt upp í félaginu
sínu og eru reiðubúnir að vinna því allt
það gagn, er þeir geta, án nokkurs endur-
gjalds nema þess, að vita sig hafa orðið
samfélögum sínum að liði. Er ekki þarna
verðugt verkefni fyrir Kiwanisklúbba Ev-
rópu? Munum við ekki þarna geta gert
jafnvel meira gagn og mundi ekki aðstoð
okkar virka fljótar, ef klúbbarnir okkar
tækju að sér að styðja starfsemi íþrótta-
4 — K-FRÉTTIR
félagsins, eða skátafélagsins í borginni
okkar? Þama gætum við látið aðstoðina
koma fram í fjárveitingu í eitt skipti fyrir
öll, eða sem stöðuga leiðsögn í starfi.
Margir okkar hafa á yngri árum starfað
í einhverju áðurtöldu félagi. Við eigum
ljúfar endurminningar frá gömlum æsku-
dögum, sem tengdar eru þessu starfi.
Margir okkar hafa þá dýrmætu reynslu í
starfi þessara félaga, að við teljum okkur
vita, hvað er þeim fyrir beztu. Væri ekki
ákjósanlegt að hefja slíkt starf ? Þess vegna
legg ég til, að okkar fyrsta markmið á
næsta ári verði:
VINNIÐ MEÐ UNGDÓMNUM
Kiwanishreyfingin í Evrópu hefur nú
starfað í nærri níu ár. Vöxtur hennar hef-
ur verið hægur en öruggur í fyrstu, en nú
fjölgar óðum í hreyfingunni. Á þessum
árum hefur hreyfingin hazlað sér völl í
þeim löndum, sem hún starfar, svo nú