Kiwanisfréttir - 01.03.1972, Blaðsíða 18
stjórnarinnar farið í það starf. Þó er það
starf framkvæmdanefnda þinganna sem
mest reynir á og hefur hvor nefndin fyrir
sig unnið mjög ötullega að því að gera
þetta sem bezt úr garði, og vil ég nota
tækifærið og þakka framkvæmdanefnd ís-
lenzka þingsins, svo og þeim félögum, sem
hafa aðstoðað þá, fyrir alla þá vinnu, sem
þeir hafa lagt í þetta, með þeim árangri,
sem raun ber vitni um.
Eins og flestir vita, þá var ákveðið á
svæðisþinginu í Vestmannaeyjum að
reyna að koma hér upp birgðum af rekstr-
arvörum og gjafavörum fyrir íslenzku
klúbbana og var gengið frá stórri pöntun
á vörum í Hamborg í júní s.l. Afgreiðsla
á þeim vörum var með slíkum endemum,
að eftir 6 mánaða bið fengum við hluta af
pöntuninni, en það sem ekki fékkst af-
greitt, var síðan fengið frá Ameríku fyrir
milligöngu K. P. Greenaway í Ziirich og
vona ég, að í framtíðinni verði ætíð fyrir
hendi í tíma þeir hlutir, sem klúbbarnir
þarfnast.
Nú á þessu þingi er í fyrsta skipti lögð
fram fjárhagsáætlun fyrir komandi starfs-
ár og er hún byggð á þeirri reynslu, sem
fyrir er, en það mun nánar verða skýrt af
Umdæmisféhirði hér á eftir.
Eitt er það verkefni, sem ég vil sérstak-
lega geta um, en það var hin landsfræga
eða eigum við að segja heimsfræga skyndi-
söfnun vegna kaupa á Geirfuglinum. Þar
kom greinilega í ljós, hvað hægt er að gera
þegar margir taka höndum saman, þótt svo
að tíminn sem til stefnu var, hafi verið
ótrúlega lítill, miðað við þann árangur sem
út kom, en það er eftir því sem ég bezt
veit tæpar 2 milljónir króna, sem inn hafa
komið. Samvinna þjónustuhreyfinganna
þriggja var til fyrirmyndar og ég tel, að
þetta hafi bætt skilning hinna eldri þjón-
ustuhreyfinga, hvor á öðrum, að ég tali
nú ekki um skilning þeirra á starfsemi
okkar, sem komum mörgum árum á eftir
þeim inn í íslenzkt þjóðlíf.
Hafið allir þökk fyrir, sem þar lögðu
hönd á plóginn.
Ein er sú hugmynd, sem hefur verið
rædd innan allrar stjórnarinnar, en það er
að veita bezta svæðinu viðurkenningu fyr-
ir beztu mætinguna á starfsárinu, svo og
bezta klúbbnum í umdæminu. Myndi við-
urkenning þessi verða veitt Svæðisstjór-
anum persónulega og svo viðkomandi
klúbb. Viðurkenningin gæti verið í formi
innrammaðs skjals og yrði það afhent á
Umdæmisþingi hverju sinni, að loknu
starfsárinu. Þegar þetta var rætt í Noregi,
þá komu fram mjög mismunandi túlkanir
á því hvernig bæri að meta fullgildar af-
sakanir gagnvart mætingaskrá og virtist
vera um mjög mismunandi skilning hjá
klúbbum. Oskað var eftir því að ég sendi
sérstaka lýsingu á því, hvað væri rétt í
þessum efnum, og vísaði ég þá til Stofn-
skrá og laga K. I. E., en það virtist ekki
vera nægjanlegt, og frestaði ég því þar
með þessari tillögu gagnvart þessari
stjóm. Hins vegar tel ég að þetta sé ekk-
ert vandamál hér heima, og finnst mér
rétt að þetta verði gert á næsta starfsári
hér í þessu umdæmi, og vísa því hér með
til næstu stjómar.
I sambandi við skiptingu Umdæmisins
var það ákveðið af Umdæmisstjórn, að til
að viðhalda samvinnu milli Umdæmanna í
framtíðinni skyldu Umdæmin senda 1—2
gestafulltrúa á Umdæmisþing hvors á
hverju ári og er Jakob Jensen hér sem
opinber fulltrúi þeirra í þetta sinn.
Eg vil svo að lokum lýsa ánægju minni
yfir góðri þátttöku félaganna í þessu þingi
og vona að allir fari héðan ánægðir og rík-
ari í þekkingu sinni á gildi Kiwanis hreyf-
ingarinnar fyrir okkur sjálfa, bæjarfélög
okkar og þjóðfélagið í heild.
18 — K-FRÉTTIR