Kiwanisfréttir - 01.03.1972, Side 6
Sinawik i jólaundirbúningi.
Sinawik i fullum blóma
Sinawik-klúbburinn í Reykjavík starfar
af fullum krafti — í svipuðu formi og að
undanförnu. Fundir eru haldnir fyrsta
þriðjudag í hverjum mánuði.
wanishreyfingunni, á að njóta þess, sem
hreyfingin hefur að bjóða. Hann á að njóta
þeirrar andlegu fróunar, að vera þátttak-
andi í þjónustustörfunum. Hann á að njóta
vináttu Kiwanisbræðranna, hvort sem það
er á klúbbfundum, á konukvöldum, í úti-
legunum, á barnaskemmtununum eða á
herrakvöldunum.
Þannig störfum við. Þetta þarf að gera
heyrum kunnugt. Því hef ég valið eftir-
farandi kjörorð fyrir árið 1971 til 1972:
KIWANIS LÉTTIR LÍFIÐ
Köku. og jólaskreytingabazar var hald-
inn um mánaðamótin nóv./des. Unnið var
úr könglum, sem Kiwanis-vinir í Dram-
men sendu s.l. haust. Svona vinnukvöld
eru ómetanleg til aukinna kynna klúbb-
kvenna. Andvirði bazarsins skal varið til
kaupa á vönduðu segulbandi til kennslu
að vistheimilinu að Tjaldanesi í Mosfells-
sveit.
A jólafundinn kom síra Bragi Bene-
diktsson úr Hafnarfirði og flutti okkur
jólaguðspjalhð — mjög hátíðleg stund.
A febrúarfundinum verður kynning á
íslenzkum ullarvörum.
Marzfundurinn verður spilakvöld með
eiginmönnunum. A aprílfundi verður rætt
um garðrækt.
6 — K-FRETTIR