Kiwanisfréttir - 01.03.1972, Síða 7
Ahugaleysi fyrir K-fréttum
Þegar ákveðið var að reyna útgáfu blaðs
á vegum íslenzku Kiwanishreyfingarinn-
ar fyrir réttu ári síðan, og rætt var við
undirritaðan um það, hvort hann vildi
gera tilraun með að ritstýra slíku blaði,
voru ýmsar hugmyndir á lofti um útlit
þess, hversu miklu mætti fórna af fjár-
munum í slíkt blað, og hve oft það ætti
að koma út á ári.
Eg sagðist vera reiðubúinn að gera þessa
tilraun, með því skilyrði þó, að blaðið
yrði prentað, en ekki fjölritað.
Hugmynd mín var samþykkt með þeim
skilyrðum þó, að ég sæi um að koma út
2—3 blöðum á ári, 8 síðum hverju, og ann-
að sem var það erfiðasta, að sjá um að
blaðið kæmi út, umdæminu að kostnaðar-
lausu, sem sagt, að sjá um að blaðið bæri
sig.
Þótt skilyrðin væru hörð, þá lét ég til-
leiðast að reyna. A umdæmisþinginu um
mánaðamótin apríl—maí á s.l. ári kom
út 2. tbl. 16 bls. og áður hafði komið út
1. tbl. 8 síður í marz.
Báðum þessum blöðum tókst að koma
út án halla, en þau voru samtals 24 síður.
A umdæmisþinginu var aðeins rætt um
útgáfu blaðsins, og þar gafst mér tækifæri
til að benda fulltrúum á, að ef blaðið ætti
að koma út áfram væri mikið atriði að
hver klúbbur skipaði sérstakan blaðfull-
trúa, sem myndi sjá um að senda blaðinu
efni, m. a. um starf klúbbsins, greinar frá
einstaklingum o. fl. A þessu þingi voru
fulltrúar frá öllum starfandi klúbbum á
landinu, svo að ekki átti þessi beiðni að
fara framhjá neinum. Eg sagði m. a. frá
því, að ég myndi reyna að koma út blaði
áður en starfsári lyki, það er að segja fyrir
1. okt. s.l. Hvatti ég fulltrúa til að sjá um
að mér bærist efni hið allra fyrsta.
Árangur af þessari beiðni var sáralítill
og vægast sagt gat maður haldið að klúbb-
arnir væru algerlega áhugalausir um út-
gáfu blaðsins. Þess ber þó að geta, að Esja
sendi efni strax í júní s.l., en ekkert annað
efni barst fyrr en í október s.l. og þá ekki
fyrr en eftir margítrekaðar beiðnir til
klúbbanna.
Sumir klúbbar hafa alls ekki sent blað-
inu efni ennþá, og ýmsir einstaklingar,
sem hafa lofað blaðinu efni, hafa algerlega
brugðist.
Ég hef ennþá þá trú, að hægt sé að gefa
út Kiwanisfréttir öðru hvoru og með því
hugarfari er þetta blað komið út. Kostn-
aður við þetta blað er á milli 35 og 40 þús.
krónur og það tókst að ná endum saman.
Ég mun á næsta umdæmisþingi, ef kost-
ur er á, leggja fram hugmyndir um, hvern-
ig ég tel að framkvæma eigi útgáfu þessa
blaðs í framtíðinni.
Eyj. Sig.
Eldey í Kópavogi
Mánudaginn 14. febrúar s.l. var stofn-
aður fyrsti Kiwanisklúbburinn í Kópa-
vogi og hefur hann hlotið nafnið Eldey.
Félagar í Eldey eru nú þegar orðnir 26,
góður hópur stórhuga manna. Forseti Eld-
eyjar er Friðrik Hróbjartsson, varaforseti:
Andrés Guðmundsson, ritari: Þorkell
Skúlason. Vígsluhátíð Eldeyjar er ákveð-
in í lok umdæmisþings, sunnudaginn 30.
apríl. Stofnklúbbur Eldeyjar er Hekla í
Reykjavík.
K-FRÉTTIR — 7