Kiwanisfréttir - 01.03.1972, Side 8
Nes-menn í
fjölbreyttu
starfi
Nes-menn Imilast á ,^kakinu".
Dagana 18. og 19. júní fóru 13 Nesfélagar
ásamt 8 félögum úr öðrum klúbbum í
veiðiferð á M.b. Ásþór RE. Þrátt fyrir
ágæta leiðsögn hins kunna aflaskipstjóra
Þorvalds Árnasonar, tókst ekki að fylla
skipið af þeim gula né öðrum fiski í þetta
sinn, enda hamlaði bræla því að beztu
miðin yrðu nýtt í þetta sinn. Vonum við
að betur takist í næsta skipti hvað þetta
snertir. Ferðin þótti takast með ágætum,
þrátt fyrir fiskileysi, og hefur verið sagt,
að iðnaði „skakarar“ hafi ekki verið á sjó
þessa dagana en þeir Kiwanisfélagar.
Hinn 18. nóvember 1971 mættu um 14
félagar úr Nesklúbbnum að Háaleitisbraut
13, þar sem Styrktarfélag lamaðra og fatl-
aðra er til húsa, en tilgangur þessarar
heimsóknar var að færa félaginu að gjöf
Fclagar úr Nes-klúbbnum við afhendingu gjafarimiar til Styrktarfclags lamaðra og fatlaðra.
8 — K-FRETTIR