Kiwanisfréttir - 01.03.1972, Side 10
álkæði á húsgögn þessi, sem hönnuð voru
af félögunum).
Að síðustu komu svo Sinawik-konur og
gengu frá öllum gluggatjöldum og borð-
dúkum, og var efni og vinna gjöf þeirra
til hússins. Þær hafa að auki fært húsinu
marga gripi til skrauts og sýnt mikinn
áhuga og fórnfýsi, t. d. sjá þær okkur fyrir
fæði annan hvern fund gegn vægu gjaldi.
(Einn félaginn sem rekur hér matstofu,
hefur séð okkur fyrir mat hina fundina.
Hann selur máltíðina á föstu verði, en tek-
ur svo aðeins fyrir kostnaði. Mismuninn
gefur hann líknarsjóði og er það drjúg
upphæð).
Nú loks kom að því að hægt var að
vígja húsið og komu þá nokkrir góðir
Kiwanisbræður í heimsókn, m. a. Greena-
way, Jakob Jensen, Einar Jónsson o. fl.
Síðan höfum við haft okkar fundi og
skemmtikvöld í húsnæðinu, og einnig höf-
um við leigt það út til fundarhalda og
dansleikja, og hefur ágóðinn af húsaleigu
og ölsölu verið dágóður. Teljum við okkur
hafa náð þarna í örugga fjáröflunarleið, en
áður var aðeins um að ræða ágóða af sæl-
gætissölu og blómasölu. Félögunum er
skipt niður í þriggja manna hópa, sem
taka að sér vinnu við húsið endurgjalds-
laust, þegar það er leigt út.
Eins og áður var vikið að voru stjórnar-
skipti. Kjartan B. Kristjánsson svæðis-
stjóri sá um að þakka fráfarandi stjórn og
koma hinni nýju að. Skýrði hann hverjum
og einum nýjum stjórnarmeðlim í hverju
starf hans væri fólgið. Hin nýja stjóm er
þannig skipuð:
Forseti: Erlendur Eyjólfsson, varafor-
seti: Gunnl. Axelsson, ritari: Helgi Guð-
jónsson, erl. ritari: Hörður Bjarnason, fé-
hirðir: Hallgr. Þórðarson, gjaldkeri: Krist-
ján Egilsson.
Djammið
★ ★ ★ ★
Konukvöld Heklu
í Glæsibæ, efri sal, laugardaginn 4. marz.
Spilakvöld Sinawik í Reykjavík
í Átthagasal Hótel Sögu sunnudaginn 5.
marz.
Vígsluhátíð Gerpis, Neskaupstað
í Hótel Egilsbúð laugardaginn 18. marz.
Umdæmisþing íslenzka umdæmisins
í Glæsibæ laugardaginn 29. apríl og sunnu-
daginn 30. apríl. (Til að fyrirbyggja mis-
skilning vegna heiti þessa dálkar, þá er
þetta háalvarlegt þing sem endar með
„djammi“ á vígsluhátíð Eldeyjar).
Vígsluhátíð Eldeyjar, Kópavogi
í Glæsibæ sunnudaginn 30. apríl.
Evrópuþing í Mílanó
9.—11. júní
Ráðgert er að skipuleggja 15 daga sum-
arfrísferð fyrir Kiwanisfélaga og gesti
þeirra og er áætlað að hún hefjist 28. maí
og ljúki 12. júní. Dvalið verður við bað-
strönd á Ítalíu meiri hluta dvalartímans
og er áætlaður ferðakostnaður rúmlega
kr. 30.000 á mann, auk þátttökugjalds í
Mílanó. Allar nánari upplýsingar verða
hjá stjórnarmeðlimum Umdæmisins eftir
6. febrúar. Þeir sem hafa hug á því cð
dvelja lengur en 15 daga, geta prjónað
það við áðurnefnt ferðalag.
10 — K-FRÉTTIR