Kiwanisfréttir - 01.03.1972, Blaðsíða 13
í nóvember s.l. hélt Hekla sinn 400.
fund, en fyrsti undirbúningsfundur að
stofnun Heklu, sem jafnframt var fyrsti
fundur í nafni Kiwanishreyfingarinnar á
íslandi, var haldinn í nóvember 1963.
Stofndagur Heklu var svo 14. janúar 1964.
Þessi fundur var hátíðarfundur og var
boðið til þessa fundar framámönnum Ki-
wanishreyfingarinnar ásamt forsetum Ki-
wanisklúbba hér í nágrenninu og konum
Heklufélaga. Mættu á þessum fundi á ann-
að hundrað manns. A þessum fundi barst
Heklu að gjöf „frænka“ frá þeim félögum
Páli H. Pálssyni, Asgeiri Hjörleifssyni og
Bjarna B. Asgeirssyni, einnig sendu Katla
og Esja blómakörfu.
Hekla og Esja héldu sameiginlegt
„Herrakvöld“ í nóvember að Hótel Loft-
leiðum.
I nóvember hófst undirbúningur að
skemmtikvöldi fyrir vistmenn í Hrafnistu,
Heklu-
starf
sem haldið var í janúar í Hrafnistu. Þessa
kvöldvöku sóttu á fjórða hundrað vist-
menn og starfsfólk. Þar var flutt margs-
konar skemmtiefni af atvinnumönnum, á-
hugamönnum og Heklufélögum sjálfum.
Happdrætti var og fengu allir vinning.
Þótti mörgum það merkilegt happdrætti,
sem gæfi miðana og úthlutaði vinning á
hvert númer. Ymsir vistmenn höfðu ekki
heilsu eða aðstöðu til að vera á kvöldvök-
unni, og voru þeim færðar gjafir. Forustu-
menn Hrafnistu töldu, að þessi kvöldvaka
hefði verið sú bezta og fjölmennasta, sem
haldin hefði verið í Hrafnistu. Þaklæti til
Heklufélaga barst frá vistmönnum og
stjórn Laugarásbíós bauð Heklufélögum
og konum þeirra á frumsýningu á hinni
frábæru mynd Flugstöðin.
í vor verður svo farið með vistmenn
Hrafnistu í ferðalag um nágrenni Reykja-
víkur, eins og gert hefur verið á undan-
förnum árrnn.
Þann 4. marz verður Konukvöld Heklu
haldið í Glæsibæ, og er öllum Kiwanis-
mönnum heimil þátttaka.
Næstu framkvæmdir í líknarmálum á
vegum Heklu eru nú í athugun og mun
verða tekin ákvörðun innan tíðar.
Kveðja írá
íslandsvin
Eftirfarandi orð voru hripuð niður af
hinum kunna vini íslenzkra Kiwanis-
manna, Jakob Jensen, rétt áður en hann
hélt heim frá fyrsta umdæmisþingi ís-
lenzkra Kiwanismanna:
Til Kiwanismedlemer pá Island.
Má jeg fá gratulere dere med et meget
bra konvent. Det var pá alle máter slik et
distrikskonvent bör være. Jeg vil gjeme
fá önske de nyvalgte tillitsmenn tillykke
med embedene og hápe at de liksom sine
forgjengere vil opprettholde og styrke de
gode bánd som etterhvert er blitt mellom
Kiwanis pá Island og i resten av Norden.
Det har vært en stor ære for meg á ha
fátt være med pá den historiske begiven-
het som dette konvent har vært. Jeg tak-
ker for den store gjestfrihet som er blitt
vist meg og de mange varme önsker som
er blitt meg og min familie tildel. Det har
vært en deilig opplevelse á se sá mange
av mine venner igjen. Mine beste önsker
til dere alle. Mátee jeg snart se dere igjen.
Jakob Jensen.
K-FRETTIR— 13