Kiwanisfréttir - 01.03.1972, Side 16
Svæðis-
þing
Sögu
Svæðisfundur var haldinn á fjórðungs-
svæðinu Sögu laugardaginn 11. september
1971 í Vestmannaeyjum. Þar sem svæðis-
stjórinn, Haraldur Gíslason, gat ekki mætt
(en hann var veðurtepptur á Hornafirði)
setti í hans stað mótið Kristinn Albertsson.
Mættir voru á mótið 36 félagsmenn. Krist-
inn Albertsson ræddi um svæðismótið og
sagði að það væri nauðsynlegt fyrir klúbb-
félaga að koma saman eftir hvert starfsár
til þess að getað miðlað reynslu hvers
klúbbs sem nýir stjórnendur klúbbanna
gætu lært mikið af. Bað hann síðan for-
menn klúbbanna að gefa skýrslu um stórf
klúbbanna á árinu.
Einar Kristjánsson gaf skýrslu fyrir
Kötlu, Bjarni Magnússon fyrir Eldborgu,
Hörður Bjarnason fyrir Helgafell, Guðm.
Örn fyrir Keili og Ólafur Haraldsson fyrir
Búrfell.
Páll H. Pálsson ræddi um húsakaup
fyrir hreyfinguna og sagði, að klúbbfélag-
ar í Helgafelli hefðu gefið það fordæmi í
húsmálum með því að koma sér upp eigið
húsnæði hér í Eyjum, að það væri hvatn-
ing fyrir aðra klúbba að gera það sama.
Kötlufélagar hefðu rætt þetta mál og kom
fram tillaga að setja á stað happdrætti,
þannig að hver klúbbur tæki vissan miða-
fjölda og helmingur af seldum miðum
16 — K-FRÉTTIR
væri eign svæðisins, en hinn helmingur-
inn eign viðkomandi klúbbs og taldi Páll
H. Pálsson að með þessu móti væri hægt
að ná inn um 1—2 milljónum króna, sem
Umræður spunnust um þetta mál og tóku
þessir til máls: Sigurður Tómasson, Gísli
Kristjánsson, Bjarni Magnússon og Sveinn
Guðbjartsson.
Ekki var þessu máli sinnt sem skyldi og
má ef til vill kenna um að von var á Ki-
wanisfélögum, sem veðurtepptir voru á
Hornafirði og var tahð rétt að bíða með
þetta mál þar til þeir kæmu (en þeir komu
ekki) og var málið ekki tekið upp aftur,
vegna þess hve þingið tafðist við að bíða
eftir þeim félögum.
Hringborðsumræður voru, en þeim er
þannig háttað að einn forsvarsmaður var
settur fyrir hverju máli á borði og rætt
var um þau mál, sem mest varða klúbb-
ana. Ræddu fráfarandi formenn við þá,
sem eiga að taka við, gjaldkerar, ritarar
og ýmsir, sem eru í sérstökum nefndum.
Að hringborðsumræðunum loknum gat
forsvarsmaður hvers og eins um niður-
stöðu á sínu borði.
Ný svæðisstjórn var skipuð fyrir Eddu-
svæðið og í henni eru Kristinn Alberts-
son, Kjartan Kristjánsson og Sveinn Guð-
bjartsson.
Vígsla Gerpis
Vígsluhátíð Gerpis á Neskaupstað verð-
ur væntanlega 18. marz n.k. Stjórn klúbbs-
ins er þannig skipuð:
Forseti: Friðjón Þorleifsson.
Varaforseti: Karl H. Bjarnason.
Ritari: Þorleifur Már Friðjónsson.
Féhirðir: Reynir Jónsson.
Meðstj.: Steingrímur Kolbeins, Jón
Svanbjömsson, Jón Mýrdal.
Fundir Gerpis fara fram í Hótel Egils-
búð á sunnudögum kl. 16.