Kiwanisfréttir - 01.03.1972, Síða 17
Ræða Bjarna B. Ásgeirssonar fyrrv. umd.stj. á 1. umdæmisþingi
ísland sjálfstætt
umdæmi
Þótt aðeins IVz mánuður sé liðinn af
starfstíma þessarar stjórnar, þá má segja,
að nú liggi fyrir nokkumveginn sá árang-
ur, sem vænta megi af klúbbunum á þessu
ári. Starfsárið hefst 1. okt. ár hvert, en
það er raunverulega strax að loknu Um-
dæmisþingi, sem starfið hefst, því þá kem-
ur hin nýkjörna Umdæmisstjóm saman og
gerir lauslega áætlun um leiðbeiningar-
fund fyrir hina nýkjörnu svæðisstjóra, svo
og fræðslufundi innan hvers svæðis fyrir
embættismenn klúbba og formenn nefnda.
Þesi háttur var viðhafður í fyrsta skipti í
ár innan okkar umdæmis og er enginn vafi
á því, að þetta fyrirkomulag hefur ýtt mik-
ið undir starfsemi klúbbanna í Noregi og
Svíþjóð. Þetta má ekki taka sem last á
fyrrverandi Umdæmisstjórnir, því að þær
hafa unnið mikið starf, hver á sína vísu,
þó þær hafi ekki borið gæfu til að taka
upp þetta fyrirkomulag fyrr en nú. Hvað
íslenzka hlutann snertir, þá var hluti af
dagskrá svæðisþingsins á Vopnafirði í
sept. s.l. tileinkaður verðandi embættis-
mönnum, og verður þeim hluta dagskrár-
innar haldið áfram, þótt ísland verði Um-
dæmi 1. okt. n.k. Umdæmisþingið tekur
nú yfir ákveðna þætti svæðisþingsins, sem
var á svæðisþingunum á Vopnafirði og í
Vestmannaeyjum. Eg geri því ráð fyrir,
að svæðisþingin í framtíðinni verði aðal-
lega byggð upp sem fræðslunámskeið, en
það er að sjálfsögðu á valdi hverrar svæð-
isstjórnar fyrir sig hvort þær vilja hafa
það stærra í sniðum en það.
1. október 1970 voru 30 klúbbar í Um-
dæminu með 871 meðlim, en voru um síð-
ustu mánaðamót orðnir 39 með 1119 með-
limi. Þetta skiptist þannig: Danmörk 1
klúbbur með 22 meðlimi, nú óbreytt, ís-
land 10 klúbbar, 347 meðlimi, nú 14 klúbb-
ar með 468 meðlimi. Noregur 17 klúbbar
með 446 meðlimi, nú 20 klúbbar með 532
meðlimi, Svíþjóð 2 klúbbar með 56 með-
limi, nú 4 klúbbar með 96 meðlimi.
Þetta gefur þó ekki rétta hugmynd af
því starfi, sem þegar er unnið í útbreiðslu
hreyfingarinnar innan Umdæmisins. Sam-
kvæmt þeim upplýsingum, sem fyrir liggja
frá svæðisstjórnum sambandsins, þá má
búast við að Noregur verði kominn með
10 nýja klúbba í árslok, Svíþjóð 2 og Is-
land 8, eða samtals 20 nýja klúbba, og mun
þá meðlimafjöldi Norræna Umdæmisins
30. sept. n.k. verða eitthvað á fjórtánda
hundrað eða rúmlega 50% aukning á þessu
ári.
Starfsemi klúbbanna hefur verið með
svipuðu sniði og undanfarin ár og verður
nánar skýrt frá því í skýrslum svæðis-
stjóranna hér á eftir. Tveir fundir voru
haldnir í Osló með svæðisstjórum Noregs
og Svíþjóðar þ. 7. okt. og 25. marz s.l. og
þar kom fram að starf klúbbanna þar hef-
ur verið allgott það sem af er þessu ári.
í ár eru tvö Umdæmisþing haldin innan
Norræna Umdæmisins, vegna breytingar
þeirrar, sem ákveðin er 1. okt. n.k. Undir-
búningur beggja þessara þinga er á ábyrgð
þessarar stjórnar og hefur töluverður tími
K-FRÉTTIR — 17