Kiwanisfréttir - 01.03.1972, Blaðsíða 19
Svæðis-
þing
Eddu
Svæðisþing Eddu var haldið á Akranesi
laugardaginn 4. september s.l. Klúbbar í
Eddu-svæðinu eru nú, og miðast það við
þá breytingu sem varð formleg 1. októ-
ber s.l.: Hekla, Reykjavík, Þyrill, Akra-
nesi, Esja, Reykjavík og Nes, Seltjarnar-
nesi.
Allur undirbúningur að þinghaldinu var
í höndum Þyrils, og samkvæmt dagskrá
sem svæðisstjórnin gaf út fyrir þingið,
hófst það raunverulega föstudagskvöldið
3. september, en þá um kvöldið komu
nokkrir Kiwanis-félagar úr Reykjavík og
tóku þátt í notalegri samverustund með
Þyrilsfélögum og konum þeirra.
Morguninn eftir, laugardaginn 4. sept-
ember, bættust nokkrir Kiwanisfélagar úr
Reykjavík í hópinn, og þ. á m. umdæmis-
stjóri Bjarni B. Asgeirsson.
Sjálft þinghaldið hófst síðan kl. 11:15
með því að Svavar Sigurðsson, forseti Þyr-
ils, bauð þátttakendur velkomna og sagði
þingið sett, en síðan tók svæðisstjóri Arn-
ór K. D. Hjálmarsson við stjóm þingsins.
Bjami B. Asgeirsson, umdæmisstjóri,
flutti síðan ávarp. Gat hann um þróun
Kiwanis á íslandi s.l. 8 ár eða frá því að
vera aðeins einn klúbbur í Reykjavík í
það að vera nú orðið sjálfstætt umdæmi
innan Kiwanis-Evrópu, og væri þetta
fyrsta svæðisþingið sem haldið væri innan
Arrtór Hjálmarsson, fyrrv. svaðisstjóri Eddu.
íslandsumdæmis. Hann árnaði klúbbum
innan svæðisins allra heilla í framtíðinni
og kvaðst vona að á næsta þingi yrðu
klúbbarnir innan svæðisins orðnir helm-
ingi fleiri.
Þá tók til máls svæðisstjóri, Arnór K. D.
Hjálmarsson. Bauð hann alla velkomna til
þingsins og gerði grein fyrir þeim ástæð-
um að halda þetta þing á Akranesi. Þyrill
væri næstelzti klúbburinn innan svæðis-
ins og hefði á skömmum tíma starfað af
miklum eldmóði, sem vænta mætti mikils
af í framtíðinni. Var því talið eðlilegt að
halda þetta þing á Akranesi, og hefði
svæðisstjórnin falið Þyrilsfélögum að ann-
ast allan undirbúning, sem hefði farið
þeim sérstaklega vel úr hendi og flutti
hann þakklæti til Þyrilsfélaga fyrir fram-
úrskarandi móttöku og góðan undirbún-
ing. Ræddi Arnór síðan nokkuð um þingið
sem haldið var í Strassbourg s.l. sumar,
en þar hlotnaðist Islandi sá heiður, að
Páll H. Pálsson var kjörinn forseti KIE
fyrir næsta starfsár. Oskaði hann Páli til
hamingju með þetta embætti og tóku allir
undir það með dynjandi lófataki.
K-FRÉTTIR — 19