Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Side 11

Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Side 11
Ágætu Kiwanisbræður, Enn einu starfsári Kiwanishreyfingar- innar er að ljúka og nýtt tekur við. Á slíkum tímamótum sem þessum er sjálfsagt að líta yfir farinn veg, — læra af reynslu liðinna ára og hagnýta sér á komandi ári það sem vel hefur tekist og líklegt er að skili betri árangri í störfum á næsta starfsári. Þó svo að vel hafi verið unnið á liðnum árum að hugsjónum hreyf- ingarinnar skulum við ávallt setja okkur það markmið að vinna betur, annars náum við aldrei neinum árangri né framförum.*) Ralp Waldo Emerson skrifaði: „Þessi tími, — eins og allir tímar, er ákaflega góður tími, — ef við aðeins vitum hvað við eigum að gera við hann.” Innan Kiwanishreyfingarinnar, — í klúbbunum, — í svæðisstjómum, í um- dæmisstjórn og fyrrverandi umdæmisstjórn- um — er mikið mannval, — menn sem eru fúsir til starfa og vita líka hvernig á að nýta sinn tíma í þágu Kiwanishreyfingar- innar og hugsjón hennar. — Það er ein- mitt þessi vissa, sem fyllir mann eldmóði og veitir manni styrk til þess að taka við stjóm Kiwanishreyfingarinnar á Islandi starfsárið 1977 — 1978. Maury Gladman, forseti Kiwanis Inter- national 1977 — 1978 hefur sett fram markmið sín, sem eru á þessa leið: Ólafur Jensson, umdæmisstjóri. Leitum eftir, betri skilningi á veraldlegum og andlegum gæðum lífsins. Leitum eftir, sem mestri fullkomnum í til- gangi og framkvæmd í þjón- ustu við samfélagið. Leitum eftir, betri árangri við að vernda líf og eignir með beinni sam- vinnu við æskuna. Leitum eftir, þátttöku einstaklinganna með skipulögðum samtökum ungmenna. Leitum eftir, stöðugri aukningu í félaga- tölu, — starfi og vináttu um allan heim. Forseti Kiwanis International Evrópu, Walter Frúh, hefur einnig sett fram sín markmið, sem eru: „TAKIÐ ÁBYRGД Markmiðin beinast að því, að: TAKA ÁBYRGÐ — sem einstaklingur TAKA ÁBYRGÐ — sem Kiwanismaður *) Við skulum skipuleggja vel starfið og TAKA ÁBYRGÐ — á störfum klúbbs starfa skipulega. — — þíns K-FRÉTTIR 11

x

Kiwanisfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.