Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Blaðsíða 29

Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Blaðsíða 29
ferð fyrir 95 Norðmenn og var farið til Hveragerðis, Skálholts, Gullfoss og Geysis gegnum Laugarvatn og á Laugardalsvöll- um tóku Heklufélagar á móti þessum hóp og var boðið upp á ýmsar veitingar. Síðan var haldið til Þingvalla og Reykjavíkur. Ennfremur lánuðu Heklufélagar sumarbú- staði og hjólhýsi sín til þessara norsku fé- laga okkar. Gefin voru nokkur hundruð endurskins- merki til ungra og aldinna. Fangageymsl- unum að Skólavörðustíg og Síðumúla voru færð töfl og spil um jólin ásamt hælinu að Vífilsstöðum. Jólagjafir voru gefnar til 54 bama á vegum Athvarfs. Aðalstyrktarverkefni klúbbsins er við Dvalarheimili aldraðra sjómanna að Hrafn- istu og var haldin árleg skemmtun þar í marzmánuði við mikla ánægju vistfólks og Heklufélaga og nutum við þar aðstoðar margra kunnra skemmtikrafta. Flugeldasýning var haldin þar á þrett- ándanum og jafnframt vom gefin þangað spil og töfl á setustofur. Dagsferð var farin með vistfólkið að Hrafnistu 19. maí og var haldið sem leið liggur að Hvolsvelli þar sem Dímonsfélagar ásamt eiginkonum þeirra tóku á móti okkur með kaffi, en eiginkonur Heklumanna lögðu til allt með- læti og vil ég þakka öllum þeim sem gerðu þennan dag svo ánægjulegan sem hann varð. Fyrstu helgi í júlí var farin ferð í sam- vinnu við Esju með börnin í Reykjadal og var farið að Þingvöllum, þar sem slegið var upp tjaldborg fyrir bömin, grillaðar pylsur og dmkkið gos, sungið og leikið. Þessi ferð er orðin árlegt verkefni okkar og verður vonandi þannig áfram. Kiwanisklúbburinn Hekla afhenti 250.000 kr. til Kiwanisbílsins og jafnframt tóku Heklufélagar að sér akstur á bíinum eins og aðrir klúbbar gerðu. Enn fremur hafa Heklufélagar haldið áfram gróðursetningu á þeim lundi sem Heklu var úthlutað í Heiðmörk. Axel Bender, forseti Heklu. Hyggist þér selja, skipta, kaupa EIGNAMARKAÐURINN Austurstræti 6 - Sími 26933 K-FRÉTTIR 29

x

Kiwanisfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.