Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Blaðsíða 21

Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Blaðsíða 21
það fyrir augum að stofna í þeim Kiwanis- klúbba og um eitt þúsund Kiwanismenn unnu að þessu starfi. Þótt árangur þessa starfs sé ekki kominn í ljós að fullu enn er ég viss um að árangurinn kemur í ljós seinna á þessu starfsári. Þrátt fyrir þrótt- mikið starf að stofnun nýrra klúbba víða í Evrópu, þá eru þar viss svæði þar sem tilraunir til stofnunar nýrra klúbba hafa ekki verið reyndar og ég get aðeins vonað, að Kiwanismenn í þessum svæðum komist að þeirri niðurstöðu, fyrr en seinna, að tími sé kominn til þess að bæta starf sitt á þessu sviði. Fjárhagsaðstoð látin í té af Kiwanis- klúbbum hefur numið, í Svissneskum frönk- um, 594.560 alls og vinnustundir Kiw- anismanna í þjónustu og velferðarstörfum hafa numið 14.538 stundum á tímabilinu 1. október 1976 til 31. mars 1977. Þegar við athugum þá staðreynd, að þessar tölur eru byggðar á svörum frá 37% af öllum Kiwanisklúbbum í Evrópu og að- eins yfir sex mánaða skeið, hygg ég ekki ofætlað, að fjáröflun til velferðarmála af hálfu allra klúbbanna á ársgrundvelli nemi um 2 milljóna Svissneskra franka og að þjónustustarf Kiwanismanna sé um það bil 50 þúsund vinnustundir á ári. Hvaða gagn er af öllum þessum upplýs- ingum? Kiwanishreyfingin byrjaði starf sitt í Evrópu fyrir 14 árum síðan. Fyrstu árin og jafnvel enn í dag, höfum við stöðugt barist gegn mótbárum innan hreyfingar- innar, þegar við ræðum vaxtarmöguleika Kiwanishreyfingarinnar, svo sem að mögu- leikar vaxtar séu takmarkaðir, vegna mikils fjölda annarra þjónustuklúbba. Þrátt fyrir þetta eigum við í dag yfir 300 Kiwanis- klúbba í Evrópu, með yfir 8000 virkum félögum, sem allir vinna mikið starf undir merkjum Kiwanishreyfingarinnar. Starf Kiwanismanna er að BYGGJA. Höldum áfram þessu starfi með því, að vera virkir byggjendur innan klúbba okkar, innan um- dæma okkar og innan allrar Evrópu. Á þennan veg vinnum við best að sterkari Kiwanishreyfingu sem alþjóðlegri hreyf- ingu byggjenda. H AFNFIRÐIN GAR! EFLUM HAFNFIRSK VIÐSKIPTI EFLUM OKKAR EIGIN LÁNASTOFNUN 5PARIBJDÐUR HAFNARF J AR-QAR K-FRÉTTIR 21

x

Kiwanisfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.