Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Blaðsíða 15

Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Blaðsíða 15
Sjúkrahúsi Vestmannaeyja afhent bókasafn. Helgafell 10 ara Þann 1. október var haldin 10 ára afmœlis- hátíð Helgafells í húsi klúbbsins Nausthamri Er það annað húsið sem klúbburinn eignast, fyrra hús klúbbsins fór undir hraun í gosinu. Fljótlega eftir gos keyptum við hús með óinnréttuðum kjallara og höfum við inn- réttað hann á hinn vistlegasta hátt, sem þeir fjölmörgu sem okkur hafa heimsótt geta best vitnað um. Á líðandi ári hafa margir heimsótt okkur. í maí kom glaðvær hópur Kiwanismanna af Reykjavíkursvæðinu og áttu með okkur ánægjulega daga og skemmtileg kvöld. í júlí komu tveir hópar, annar saman- K-FRÉTTIR stóð af nokkrum Kötlufélögum og Svíum, var farið í skoðunarferðir um eyna, skoðað var náttúrugripasafnið og sýnd kvikmynd um gosið, sama var gert fyrir hóp Norð- manna sem kom nokkru seinna. Félagsstarfið er með svipuðu sniði og undanfarin ár, almennir fundir annan- hvern fimmtudag, stjórnarfundir hinn. Nokkrir ræðumenn hafa verið á fund- um, þar á meðal Árni Johnsen, blaðamað- ur með meiru og Guðmund Kæmested, skipherra og er sá fundur talinn vera einn sá skemmtilegasti sem haldinn hefur verið hjá okkur. Jólafundur var haldinn að venju með 15

x

Kiwanisfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.