Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Blaðsíða 41
Samtals eru þetta 46 staðir — sumir
c. t. v. nokkuð langsóttir, en alls staðar eru
möguleikar fyrir hendi.
2. Umdæmisstjórn sendir lista yfir þá
staði, sem í sigti eru sem væntanlegir
Kiwanisstaðir, til allra klúbbforseta
og óskar eftir upplýsingum um það,
hvort einhverjir félaga eigi vini og
kunningja á einhverjum staðnum,
sem líklegir væru til þátttöku í stofn-
un Kiwanisklúbbs. Vafalítið má finna
meðal félaga hinna ýmsu klúbba ein-
hverja meðlimi, sem eiga kunningja
á flestum eða öllum þeim stöðum,
sem til greina koma. Klúbbforsetar
senda upplýsingar um kunningja til
umdæmisstjómar.
3. Umdæmisstjórn vinnur úr fegnum
upplýsingum og tekur ákvörðun um
það, hvenær tímabært er að hefja til-
raunir til klúbbstofunar á einhverjum
staðnum og þannig myndast kjami,
sem nauðsynlegur er til að fara af
stað.
4. Umdæmisstjóm ásamt einum eða
fleiri klúbbum, sem fúsir eru til að
gerast stofnklúbbar, tekur nú málið
að sér og fylgir því eftir. Efnt er til
kynningafunda á hinum nýja stað og
starf Kiwanishreyfingarinnar kynnt
hugsanlegum stofnfélögum.
LokaorS.
Sú byggðaáætlun, sem ég hef sett fram
hér á undan, er að öllum líkindum lítið
umfangsmeiri eða ítarlegri en þær aðgerðir,
sem umdæmisstjórnir hafa fylgt við út-
breiðslustarfið á undanförnum árum. Ég er
þó á því, að þessi liður starfseminnar hafi
K-FRÉTTIR
ekki alltaf verið mjög skipulagður og oftar
en ekki hendingum háð, hvar niður var
borið hverju sinni. Hér eftir verður þó að
reikna með því, að mjög gaumgæfilega
þurfi að undirbúa þetta starf, ef sami ár-
angur á að nást og fram til þessa, og því
hef ég lagt slíka áherslu á það í þessu spjalli
mínu hér. Við verðum sem sé að taka hönd-
um saman, ekki aðeins þeir, sem sitja í
stjóm, heldur allir Kiwanismenn um allt
land, og þá er ég ekki í minnsta vafa um
það, að við náum settu marki. Það mark,
sem ég vil setja okkur, er þetta:
Á 20 ára afmœli hreyfingarinnar á íslandi
(1984) verði Kiwanisklúbbar á íslandi
ekki færri en þingmenn landsins, þ. e. 60,
og dreifðir um hin ýmsu kjördæmi á svip-
aðan hátt og þingmenn eru nú, þ. e. 1
þingmaður - 1 Kiwanisklúbbur.
Þetta er það, sem ég vil kalla byggða-
stefnu Kiwanis.
Ég mun svo kannski á 20 ára afmælis-
árinu líta aftur um öxl og gera úttekt á því,
hvemig til hefur tekist.
Seltjarnarnesi, 20. apríl 1977.
Þorbjörn Karlsson
41