Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Blaðsíða 12

Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Blaðsíða 12
TAKA ÁBYRGÐ — á vexti Kiwanis- — hreyfingarinnar Walter Fruh fylgir þessum markmiðum sínum úr hlaði og hann skrifar meðal ann- ars: Sú staðreynd, að sérhver einstaklingur er, — í fyrsta lagi ábyrgur eigin gerða og ætti því að hegða sér samkvæmt því, er oft að fullu gleymd. Með því að hlaða síaukinni og marg- slunginni ábyrgð á samfélagið, vex umfang opinberra aðila stöðugt og ógnvænlega og um leið verður stjóm einstakra þátta æ erfiðari, samhæfing minnkar og stjóm slakn- ar. Um leið og þetta gerist, verða undir- stöðuatriði lýðræðislegs jafnréttis ásamt tilhneygingu manna til værukærni eða ein- faldlega leti, til þess að skapa einhæfni við störf og vélrænan blæ á samfélagið. Þetta með öðm, leiðir til leynilegra valdahópa, sem virðast vilja framkvæma og viðhalda samfélaginu, en gera það ekki. Ákvarðana- taka er ekki lengur falin einstaklingnum, sem um leið ber ábyrgðina, heldur er í auknu mæli falið nefndum og ráðum af öllum tegundum og á öllum sviðum, en allt ber þetta yfirbragð vísinda og stjóm- semi þó hvorugt sé til staðar. Að síðustu er margt gert einfaldlega af skyldurækni við einhverjar venjur. Þetta ástand eykur á áhugaleysi einstaklinganna, sem finnst þeir vera hjálparlausir og máttlausir gegn stjórnbákninu. Til þess að brjótast úr þessum viðjum er þörf fyrir vaxandi fjölda fólks, sem gerir sér grein fyrir ábyrgð sinni fyrir sjálfu sér og fyrir samfélagið, fólk sem einnig hefur hugrekki til þess að taka á sig ábyrgð með því, að tjá skoðanir sínar, sýna hæfni sína, með því að berjast fyrir sannfæringu sinni, með því að framkvæma hugmyndir sínar markvissar en nokkum tíma fyrr. — TAK- IÐ ÁBYRGÐ — sem einstaklingur —. Umdæmisstjórn íslenska umdæmisins 1977 —• 78 hefur sett það markmið að auka félagatölu í klúbbunum um 10% og ekki færri en einn klúbbur verði stofnaður í hverju svæði. Ég treysti því og trúi að sérhver Kiwanis- maður taki öll þessi markmið og geri þau að sínum. Ég vænti þess að eiga góða samvinnu við alla Iviwanismenn í starfi að þessum markmiðum og hugsjónum Kiwanishreyf- ingarinnar. Við byrjum á því að sýna samtakamátt okkar og afl með sameiginlegu verkefni á K — degi 1977, 29. okt. n. k. — Styðjum geðsjúka —. Við höfum þegar tekið þá ábyrgð. — Bjarni Magnússon, umdæmisstjóri 1976 — 77 hefur unnið mikið og gott starf fyrir Kiwanishreyfinguna. Honum og hans um- dæmisstjórn vil ég færa sérstakar þakkir og óska þeim velfarnaðar um alla framtíð. Allt frá því að Kiwanishreyfingin festi rætur á Islandi hafa samskipti við aðrar þjóðir verið mikil og þátttaka íslenskra Kiwanismanna hefir ávallt verið virk og atkvæðamikil. Störf Kiwanishreyfingarinnar á íslandi á innlenndum sem erlendum vettvangi eru líka metin og virt um allan Kiwanisheim. Á starfsárinu 1976 — 77 hefur Bjami B. Ásgeirsson verið forseti Kiwanis Inter- national Evrópa. Hans mikla og heilla- drjúga starfs fyrr og nú ber að þakka og ég veit að allir Kiwanismenn taka undir þakkir til hans og óska honum og fjöl- skyldu hans blessunar og gæfu um ókomna tíð. — Lifið heilir — við byggjum. Ólafur Jensson, umdœmisstjóri. K-FRÉTTIR 12

x

Kiwanisfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.