Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Blaðsíða 44

Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Blaðsíða 44
við höfum í huga, að fari svo sem farið hefur undanfarin ár, mun þessi upphæð þrefaldast til áramóta — að kostnaðurinn einn, sá mælanlegi mun verða um 250 milljónir króna, þá er þetta sannast að segja hrikalegt ástand. Enn má bæta við. Aðeins árin 1975, 76 og77 til og með júní, hefur þjóðin borið 625 milljón króna kostn- að vegna slasaðra í umferðarslysum. Og enn hrikalegra verður ástandið, þeg- ar við er bætt mælanlegu eignartjóni sem síðastliðið ár var, varlega áætlað um 2500 milljónir. Við berum kostnað af umferðar- slysum, sem nemur Kröfluverði hver þrjú ár eða svo. Er þetta þolandi fyrir okkur? Ég hygg að við getum verið sammála um, að hér bcr að vinna að endurbótum. Ekki er svo að skilja, að ekkert sé að gert. Lögreglan vinnur mikið starf, fyrirbyggjandi umferð- arfræðslu og annað. Umferðarráð vinnur einnig mikilvægt starf á sama sviði. Samt er þróunin svona hrikaleg og öll á verri veg. Það er til dæmis athygli vert, að árið 1968 þegar við skiptum frá vinstri til hægri, var umfangsmikill áróður hafður í frammi, vegna skiptanna. Það ár létust samt sex íslendingar í umferðarslysum en höfðu verið 20 árið áður og urðu 12 næsta ár á eftir. Þetta virðist vera vísbending um, að þeim 14 milljónum króna, sem varið var til umferðar áróðurs árið 1968 hafi ver- ið mjög vel varið. Því er það hryggilegt til að vita, að árið 1977 er ætlunin að verja 19 milljónum til fyrirbyggjandi áróðurs og betri umferðar, þrátt fyrir verðbólguna síð- an 1968. Líklega ættu um hundrað milljón- ir að vera sambærileg tala í dag. Spurningin er hvort Kiwanishreyfingin geti eitthvað gert. Jú, það getum við Kiw- anismenn. Við getum tekið til starfa á þess- um vettvangi, við getum unnið, ckki endi- lega til að safna fé, heldur til að virkja Kiwanismenn og aðra, sem áhuga hafa, til starfs gegn þessum bölvaldi. Við getum til dæmis unnið að því að fá aðrar þjónustuhreyfingar í samstarf. Ég veit, að Lionshreyfingin er tilbúin til sam- eiginlegs átaks og aðrir mjög líklegir einn- ig. Hvernig væri að þið létuð í té álit ykkar, og þið rædduð þennan hrikalega vanda þjóðarinnar ykkar á meðal og í klúbbum ykkar, að við tökum höndum saman um að virkja Kiwanishreyfinguna til starfs á þess- um vetvangi. Slíkt verkefni er mjög í anda hinna sex markmiða Kiwanishreyfingarinn- ar, sérstaklega þess síðasta — að vinna sam- an að myndun heilbrigðs almenningsálits, byggðu á góðvilja, réttsýni og skyldurækni. ímyndið ykkur augnablik, hve mikið starfsafl mun varðveitast ef vel tekst til, hve miklu fé yrði bjargað til nota á þeirn rnörgu öðrum sviðum sem við vinnum á nú þegar. Munum, að Kiwanishreyfingin hefur lyft Grettistökum á ýmsum sviðum og enn get- um við gert svo á þessu sviði. Ræðum málið, orð eru til alls fyrst. Þökk fyrir. Ingvar Magnússon, forseti Eldeyjar Kópavogi. 44 K-FRÉTTIR

x

Kiwanisfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.