Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Page 13
Kœru Kiwanisfélagar.
Nú um miðjan september hafa öll svœðisþingin 5 verið haldin. Voru þau vel
sótt af flestum klúbbunum, sem lögðu fram ársskýrslur sínar. Er ánœgjulegt
til þess að vita hversu þróttmikið starfið er um allt land. Ég er vissulega stoltur
af því hve mikið hefur verið lagt af mörkum til styrktar einstaklingum, aðstoða
bœjarfélög og við uppbyggingu hreyfingarinnar.
Hver var hápunktur Kiwanisstarfsins á árinu? Var það þegar Kiwanisbíllinn
var afhentur? Var það á Evrópuþinginu, sem um 70 Islendingar sóttu? Var það
þegar ákveðinn klúbbur tilkynnti 5 nýja meðlimi? Eða var það þegar 2 nýir
klúbbar voru vígðir? Ég vil meina að Kiwanisstarfið og Kiwanishreyfingin hafi
verið á uppleið allt starfsárið og er það þakkarvert.
Hér er því rétt að þakka öllum þeim fjölmörgu, sem lagt hafa fram vinnu og
tíma í þágu hreyfingarinnar, hvort sem það hefur verið unnið innan klúbbanna,
svæðanna eða umdæmisins.
Að lokum vil ég óska nœsta umdœmisstjóra, embættismönnum allra klúbba,
og Kiwanisfélögum öllum velfarnaðar á næsta starfsári. Við byggjum.
Bjarni Magnússon.
K-FRÉTTIR
13