Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Síða 35
Bjarni Magnússon, umdæmisstjóri, ávarpar gesti á vígsluhátíð Boða í Grindavík. Forseti Boða, Eyjóf-
ur Guðmundsson heldur á vígsluskjalinu.
Fréttir fra Ægissvœðinu
Starfsemi klúbbanna á Ægissvæðinu
hefur verið með miklum blóma á starfs-
tímabilinu, allir klúbbarnir halda árlega
árshátíðir og er styrktarstarfið til mikillar
fyrirmyndar og er ekki úr vegi að kynna
nánar hvemig það starf hefur verið.
Hof í Garði hefur unnið undanfarin ár
í að koma upp elliheimili og heilsugæslu-
stöð í Garðinum og er það verk nú komið
á lokastig, risið er glæsilegt heimili og eru
vistmenn þegar komnir inn í húsnæðið,
Brú á Keflavíkurflugvelli hefur aðstoðað
Hof félaga við þetta framtak þeirra og
meðal annars gefið mikið af tækjum í
heimilið. Heimilið er Hof og Brú félögum
til mikils sóma, og er ótrúlegt hve vel þeim
hefur tekist til.
Keilir í Keflavík heldur enn áfram styrkt-
starfsemi sinni við sjúkrahúsið í Keflavík
og hefur meðal annars keypt nokkuð af
tækjum til sjúkrahússins á þessu ári. Nú
stendur til að Brú á Keflavíkurflugvelli
taki þátt í þessu starfi með Keilis félögum
og hafa Brú félagar þegar lagt til hliðar
dágóða fjárhæð til þeirra hluta.
Þá em uppi ráðagerðir um að Brú og
Keilir komi upp klambraleikvelli fyrir
böm í Keflavík og er undirbúningur að
því þegar hafinn Styrktarmál annarra
klúbba á svæðinu eru þau sömu og fyrr.
Samstarf klúbba á svæðinu hefur verið
mjög mikið, má þar nefna þátttöku í
skemmtunum hvers annars, sameiginlegt
starf, svo sem sumarmót, fjöldaheimsóknir
K-FRÉTTIR
35