Kiwanisfréttir - 01.10.1977, Blaðsíða 39
landi er því um 125-faldur meðlimafjöld-
inn í Evrópulöndum.
Hvað má lœra af fenginni reynslu?
Nú er eðlilegt, í ljósi þeirra staðreynda,
sem ég hef nú þulið, að einhver spyrji,
hvort landið sé ekki orðið yfirmettað af
Kiwanis — hvort nokkur líkindi séu á því,
að þróun hreyfingarinnar geti orðið nokk-
uð í átt við það, sem hún hefur verið undan-
farin 10 ár. Ég vil svara því strax, að ég er
í engum vafa um það, að þetta er hægt.
Að vísu má segja, að líklega eru sjálfsögð-
ustu og auðveldustu staðirnir þegar orðnir
Kiwanisstaðir, og meira átak þarf hér eftir
en hingað til, ef takast á að halda þróun-
inni áfram á sömu braut. Það þarf meira
en umdæmisstjórn og einn og einn félaga
í klúbbunum til að hrinda stofnun klúbba
af stað. En nú erum við líka orðnir það
fjölmennir, að þetta á að vera hægðarleik-
ur með samstilltu átaki allra félaga, hvar
sem er á landinu, og góðri skipulagningu
og stjóm. Við skulum athuga málið að-
eins nánar.
Á mynd 2 er sýnt íslandskort, og á það
em dregnir hringir, sem tákna staðsetningu
Kiwanisklúbba — einn hringur fyrir hvem
klúbb. Eitt er það, sem við rekum strax
augun í, sem sé, hve langt er frá því,
aS jafnvœgi sé i Kiwanisbyggð landsins.
Við sjáum, að suðvesturhomið er vel sett
með 10 klúbba á stór-Reykjavíkursvæðinu
frá Mosfellssveit til Hafnarfjarðar, og 6
klúbba á Suðumesjum, Þorlákshöfn og Sel-
fossi, þ. e. helmingur Kiwanisklúbba lands-
ins er á þessu svæði. Eins má segja, að land-
nám Kiwanis sé á góðum vegi á austur-
hluta Norðurlands með 7 klúbba dreifða
yfir svæðið frá Siglufirði austur til Kópa-
skers. Aðrir landshlutar verða að teljast
fremur afskiptir, einkanlega Austurland og
Suðausturland og norðvesturhlutinn allt frá
K-FRÉTTIR
Skagafirði vestur og suður til Snæfellsness,
en þessir landshlutar eru að kalla má ónum-
ið Kiwanisland.
Skipulögð útbreiðslustarfsemi.
Að framansögðu má ljóst vera, að okkur
ber að taka upp skipulagSa byggðastefnu
í útbreiðslu Kiwanishreyfingarinnar á ís-
landi. Skipulagið gæti t. d. í stórum drátt-
um verið á þann hátt, sem nú skal greina:
1. Umdæmisstjórn fer með yfirstjórn út-
breiðslustarfs Kiwanis á íslandi Hún
útbýr lista yfir þá staði, sem til greina
koma til Kiwanisklúbbstofnunar. Ég
hef af handahófi gert eftirfarandi
lista, sem vafalítið má auka og endur-
bæta:
Hellissandur Borgarfjörður eystri
Gmndarfjörður Egilsstaðir
Stykkishólmur Seyðisfjörður
Búðardalur Eskifjörður
Króksfjarðames Reyðarfjörður
Patreksfjörður F áskrúðsfj örður
Tálknafjörður Stöðvarfjörður
Bíldudalur Breiðdalsvík
Þingeyri Djúpivogur
Flateyri Höfn í Hornafirði
Suðureyri Kirkjubæjarklaustur
Bolungarvík Vík í Mýrdal
Súðavík Hella
Hólmavík Þykkvibær
Hvammstangi Skálholt
(m/Laugabakka) (m/Laugarás)
Blönduós Laugarvatn
Skagaströnd Stokkseyri
Sauðárkrókur Eyrarbakki
Hofsós Irafoss (Sogsvirkjun)
Akureyri (kl. nr. 2) Hveragerði
Grenivík Sandgerði
Raufarhöfn Njarðvík
Þórshöfn V ogar
39