Kiwanisfréttir - 01.08.1995, Blaðsíða 5
Frá umdæmisstjóra
Grétar J. Magnússon umdæmisstjóri:
Hugleiðing um
heimsþingið í Las Vegas
Heimsþing Kiwanis
sem haldið var í Las
Vegas var mjög ánægju-
legt og í marga staði
ógleymanlegt. Þessi
heimsþing eru mjög frá-
brugðin okkar umdæm-
isþingum enda margfalt
fjölmennari og fara fram
í stórum þinghöllum. Á
þessu þingi voru mættir
15 Kiwanisfélagar úr
okkar umdæmi ásamt
mökum svo og íjölskyldu
Sjafnar Ólafsdóttur og
Eyjólfs Sigurðssonar,
einnig voru með okkur
systir mín og mágur sem
búsett eru í Houston í
Texas. Þetta voru eril-
samir dagar og mátti
maður hafa sig allan við
að mæta á þá fundi og
annað sem ætlast var til
varðandi þingið.
Á þinginu var styrkt-
arnefnd verðandi heims-
forseta með bás þar sem
Grétar Jón Magnússon
kynnt var land og þjóð og
Flugleiðir kynntu starf-
semi sína. Einnig stóð
nefndin fyrir Islands-
veislu þar sem íslenskur
matur var á borðum.
Okkur hjónunum var
boðið i þessa veislu og
viljum við nota þetta
tækifæri og þakka kær-
lega íyrir gott boð.
KIWANISFRETTIR
Agúst 1995
Útgefandi:
Kiwanisumdæmið ísland - Færeyjar
Ábyrgðarmaður:
Grétar Jón Magnússon
Ritnefnd:
Guðmtmdur Þór Guðjónsson, ritstjóri
Svavar A. Jónsson
Sveinbjörn Árnason
Sigvaldi Einarsson
Prentun:
Stuðlaprent hf.
Hjálparstofnun Kiw-
anis eða KIF var með
móttöku fyrir Hixon
félaga og var konu minni
og mér boðið. í þessu hófi
var Sjöfn Ólafsdóttur og
Eyjólfi Sigurðssyni verð-
andi heimsforseta afhent
viðurkenning þess efnis
að þau eru nú Tablet of
Honor félagar. Þetta kom
okkur mjög ánægjulega á
óvart og óskum við þeim
innilega til hamingju.
Á heimsþingum er
það venja að kynna
embættismenn Kiwanis
International. Er þá
öllum embættismönnum
og mökum komið fyrir
baksviðs áður en at-
höfnin byrjar og missum
við sem þar erum af
mörgu sem fram fer og
sáum við því ekki þegar
þau Sjöfn Ólafsdóttir og
Eyjólfur Sigurðsson verð-
andi heimsforseti og Ásta
Guðjónsdóttir og Ævar
Breiðfjörð Evrópuforseti
voru kynnt en við heyrð-
um að þau fengu góðar
móttökur þegar þau stigu
fram á sviðið.
Á lokahófinu sátum
við svo öll saman í þing-
höllinni þegar verðandi
heimsforsetahjón voru
kynnt og þau lluttu sin
orð til þingheims með
glæsilegri framkomu
sinni.
Við óskum ykkur
Sjöfn og Eyjólfur til ham-
ingju með væntanleg
embætti og megi gæfan
fylgja ykkur.
Það má með sanni
segja að viss söknuður
haíi gert vart við sig að
afloknu þessu heims-
þingi. Þegar við gerðum
okkur grein fyrir því að
við hættum að hitta þá
mörgu félaga og vini frá
hinum ýmsu jDjóðlöndum
sem við höfum eignast á
þessum ferðum okkar.
Hafi þeir þakkir okkar
fyrir ánægjulegar sam-
verustundir.
Við Gréta þökkum
þeim sem voru með okk-
ur á heimsþingi ánægju-
legar samverustundir.
Sjáumst öll hress á
komandi umdæmisþingi.
Grétar Jón
Magnússon
umdæmisstjóri
Kiwanisumdæmið
ísland - Færeyjar
Engjateigi 11, Reykjavík
Sími 588 3636
Fax 588 0036
KIWANISFRETTIR
5