Kiwanisfréttir - 01.08.1995, Blaðsíða 6
Alex A. „Bo“ Shafer Jr.
Kiwanisklúbbnum Knoxville, Tennessee.
Fulltrúi í heimsstjórn
Ráðgjafi umdæmisins 1995-1996
Alex A. ,.Bo" Shaffer yngri frá
Knoxville í Tennesseeríki í Banda-
ríkjunum, var kjörinn fulltrúi í
Heimsstjórn til þriggja ára á
Heimsþinginu i New Orleans,
1994. Hann er fyrrverandi forseti
og hefur verið félagi í Kiwanis-
klúbbnum í Knoxville í 33 ár og
gegndi starfi umdæmisstjóra í
Kentucky-Tennessee umdæminu
árið 1988-89.
Bo er af annarri kynslóð Kiwan-
isfélaga, því faðir hans var um-
dæmisstjóri 1963. Áður en hann
var kjörinn fulltrúi í Heimsstjórn
hafði hann starfað í þremur
alþjóðanefndum Kiwanis. Hann er
ævifélagi í Kiwanis. Hann var
stofnfélagi í Lykilklúbbnum í West
High School og K-hringsklúbbnum
í Tennesseeháskóla.
Bo er eigandi tryggingafélags
sem hann rekur sjálfur, stjórnar-
maður í First Tennessee Bank og
fyrrverandi stjórnarmaður í Valley
Bank. Auk starfa sinna fyrir
Kiwanis er hann fyrrverandi vara-
forseti Verslunarráðsins og fyrr-
verandi forseti Knoxvill Executives
Club (klúbbur framkvæmdastjóra).
Hann hefur veitt mörgum félags-
málasamtökum og Qársöfnunum
foiystu, þar á meðal. United Way,
Bömirv jyrst
ocj fremsf
Barnaspítala Hjálpræðishersins,
Herat Fund, Ronald Macdonald
House, og Big Brothers/Big Sist-
ers. Honum var nýlega veitt viður-
kenning af Landssamtökum fram-
kvæmdastjóra fyrir Qársafnanir
(Nationas Society of Fund Raising
Executives) fyrir frábær störf.
Bo og kona hans, Maiy, eiga
eina dóttur og einn son. Bo er full-
trúi Ians Perdriaus Heimsforseta
á 25. umdæmisþinginu i Reykja-
vik, 18. - 20. ágúst 1995.
AlexA. ..Bo~ Shafer Jr.
SKYLDUR
ÞINGF ULLTR ÚA
Hver þingfulltrúi hefur skyldur gagnvart klúbbi sínum.
A umdœmisþingi er hann talsmaður klúbbsins.
Hann er fulltrúi klúbbsins í öllum málefnum
Kiwanishreyfingarinnar.
Kosning Imns sem fulltrúa, sýnir að honum er treyst.
Skyldur hans á þinginu eru að sitja alla þingfundi,
taka þátt í umrœðum og leggja fram sinn skerf.
Yfirvega vel hœfileika þeirra sem kosið er um í œðstu
stöðu innan hreyfingarinnar, og kjósa samkvæmt
sannfœringu sinni.
Nota hvert tœkifæri til að afla upplýsinga fyrir
klúbbinn, safna þeim sanian, oggefa síðan skýrslu
þegar heim er komið.
6
KIWANISFRÉTTIR