Kiwanisfréttir - 01.08.1995, Page 8
KIWANISKLÚBBURINN
ÞYRILL
Ágætu Kiwanisfélagar!
Við Þyrilsfélagar vonum
að allir lesendur Kiwanis-
frétta hafi þegar fengið
einhvern skerf af nýhöfnu
sumri, hvar á landinu sem
þeir kunna að búa. Ekki
veitir af eftir erfiðan vetur,
og við vonum að sem ilestir
njóti birtunnar.
Grænir fingur
Á sumrin færist starf-
semi Kiwanisklúbba gj'arn-
an út um víðan völl. Af okk-
ur er það að segja að trjá-
rækt hefur átt hug okkar
allan það sem af er sumri.
Nýverið var gengið endan-
lega frá samningi milli Akra-
nesbæjar annarsvegar og
Kiwanisklúbbsins og Sina-
wik hinsvegar, um leigu og
afnot af svokölluðu Mið-
vogslandi í eigu Akranes-
bæjar.
Undanfarin ár hafa
Þyrilsmenn ásamt fjölskyld-
um sínum stundað gróður-
setningu við Miðvogslæk og
miðað vel, en landið var
formelga afhent klúbbnum
þann 1. júní s.l. Samning-
urinn gildir til 20 ára og
mun ekkert leigugjald verða
aðstaða klúbbsins er ein-
mitt á efstu hæð þess sama
húss. Með kaupunum var
fyrst og fremst verið að búa
í haginn fýrir framtíðina, en
hin nýkeypta hæð verður
leigð út til að byija með.
Kandídatar kynntir
Á aðalfundi Þyrils þann
15. mai s.l. lagði uppstill-
inganefnd fram eftirfarandi
tillögu að stjórn fyrir
starfsárið 1995-1996:
Forseti: Stefán Lárus Pálsson
Kjörforseti: Halldór Fr.
Jónsson
Ritari: Einar Ásgeirsson
Erl. ritari: Guðm.
Vésteinsson
Féhirðir: Hinrik Haraldsson
Gjaldkeri: Ágúst Sveinsson
Fyrrv.forseti: Ármann
Ármannsson
Meðstj.: Pétur Þór Lárusson,
Þórður Jónsson. Guðjón
Elíasson
Endursk.: Ásgeir
Guðmundsson og Rúnar
Pétursson
Forseti og ritari ajhendajorstöðumanni Dvalarheimilisiris Höjða
hljóðbylgjutæki.
Frá undirrilun samnings milli Akranesbæjar annarsvegar og
Kiwanisklúbbsins Þyrils og Sinawik hinsvegar vegna leigu á
Miðvogslandi. Bæjarritari. Jón Pálmi Pálsson. (annar Jrá hægri)
undirritarjh. Akraneskaupstaðar.
Fleiri fermetrar
í apríl réðst Þyrill i að
stækka við sig húsnæði.
Keypt var miðhæð Vestur-
götu 48 (1702m), en félags-
Á aðalfundinum var
einnig samþykkt styrk-
veiting til viðbótar við þá
styrki sem afhentir voru á
afmælisfundinum í janúar.
Bjarni B. Ásgeirsson, Jorseti Ness, ajhendir Jorseta Þyrils
klúbbjána sinn.
greitt á tímabilinu, en
Þyrilsfélagar munu sjá um
allt skipulag svæðisins og
uppgræðslu sem verður í
formi tijáræktar og annars
gróðurs sem henta þykir til
gagns og yndisauka á þessu
fallega landsvæði. Akranes-
bær mun veita aðstoð við
gerð gatna og gangstíga eftir
þörfum.
Landsvæðið nær frá
Miðvogi að Akurprýði fyrir
neðan þjóðveg og er mest
gömul tún og hagar. Um-
ræddur samningur við
Akranesbæ um svo stórt
landsvæði til eins þjónustu-
klúbbs er nánast einsdæmi
svo Þyrilsmenn og konur
hafa mikla ábyrgð að axla.
Miðvogsland er fram-
tíðarútivistarsvæði Akur-
nesinga og er stefnt að því
að skapa sem fegurst um-
hverfi, fólki til ánægjuauka
og Kiwanishreyfingunni til
sóma.
8
KIWANISFRETTIR