Kiwanisfréttir - 01.08.1995, Blaðsíða 11
Viðtal við verðandi heimsforseta
„Þjónustnstarjið
var mér að sJcapV*
Hvaðan eruð þið hjónin
upprunin?
Ég er fæddur í Reykjavík 1938,
sonur hjónanna Sigurðar Eyjólfssonar
prentara í Reykjavík og Ragnhildar
Siguijónsdóttur frá Vestmannaeyjum.
Ég gekk í skóla hér í Reykavík, en
yfirgaf borgina snemma á hverju vori,
um leið og hægt var vegna skóla-
göngunnar og hélt austur í Mýrdal á
gamla ættarsetrið í Pétursey. Þar
dvaldi ég á hveiju sumri frá maí til
október. Þegar ég var yngri dvaldi ég
um hríð hjá ömmu minni i móðurætt í
Vestmannaeyj um.
Ég er því sunnlendingur í húð og
hár og hef alltaf haft sterkar taugar til
sunnlenskra byggða.
Sjöfn Ólafsdóttir eiginkona min er
fædd á ísafirði dóttir hjónanna Guð-
rúnar Sigurðardóttur og Ólafs J. Ein-
arssonar en þau eru bæði fædd og
uppalinn þar. Fjölskyldan flutti til
Reykjavíkur og þar ólst hún upp.
Hvernær gekkst þú í Kiwanis-
hreyfinguna og hvers vegna?
Alheimsþing Kiwanishreyfingar-
innar sem haldið var í Toronto í
Kanada 1961 tók þá ákvörðun að gera
hreyfinguna að heimshreyfingu í stað
þess að binda starfsemina eingöngu
við Bandarikin og Kanada. Á þeim
árum var íslendingurinn Hilmar Skag-
field félagi í Kiwanisklúbb í Tallahassie
í Flórida og hafði verið það frá árinu
1952.
Þegar hann frétti af þessari skipu-
lagsbreytingu á hreyfingunni ákvað
hann að beita sér íyrir þvi að kynna
hreyfinguna fyrir íslendingum.
Einar A. Jónsson, heitinn, var
staddur í Flórida á þeim tíma, en hann
var umboðsmaður fegurðarsam-
keppna á íslandi. Hilmar hafði
samband við hann og sagði honum frá
hugmyndum sínum um að kynna
starfsemi Kiwanishreyfingarinnar á
íslandi. Einari leist vel á hugmyndina
og lofaði að kynna hana fyrir kunn-
ingjum sínum.
Hann kallaði saman hóp nokkurra
manna haustið 1963 og í þeim hópi
var tengdafaðir minn, Ólafur J. Einars-
son, sem varð síðar annar umdæmis-
stjóri íslenska umdæmisins. Þessi
hópur lagði grunninn að stofnun fyrsta
Kiwanisklúbbs á íslandi, Heklunnar.
Fljótlega eftir það bauð Ólafur mér
á fund og upp úr því var mér boðin
þátttaka. Ég var tregur til í upphafi,
taldi mig hafa nóg á minni könnu. Ég
var á kafi í öðru félagsstarfi. Frá upp-
Eyjólfur Sigurðsson og Sjöfn Ólafsdóttir
hafi leist mér vel á hugsjónir hreyf-
ingarinnar. Þjónustustarfið var mér að
skapi. Ég ákvað að láta til leiðast og
gerðist einn af stofnfélögum Hekl-
unnar.
Hver hafa störf þín verið innan
Kiwanishreyfingarinnar?
Þau hafa verið fjölbreytt. Það er
óhætt að segja að ekkert starf í hreyf-
ingunni hafi veirð mér óviðkomandi.
Ég var íljótlega valinn til forustustarfa
KIWANISFRÉTTIR
11