Kiwanisfréttir - 01.08.1995, Qupperneq 13
Viðtal við verðandi heimsforseta
meira frjálsræði og ekki eins hefð-
bundið fundarform. Mér tókst í vetur
að fá heimstjórn til þes að flytja tillögu
til breytinga á lögum samtakanna um
að heimila klúbbum i N-Ameríku að
halda fundi aðra hvora viku. Sú tillaga
var samþykkt með 64% atkvæða á
þinginu í Las Vegas nú nýlega.
Ég skipaði nýlega nefnd ungra Kiw-
anisfélaga sem ég nefni 2001. Þessi
nefnd á að fara ofan í stöðu hreyfing-
arinnar, meta hana og leggja síðan
fram hugmyndir um breyttar áherslur,
hvernig Kiwanishreyfingin ætlar að
mæta nýrri öld og nýjum kynslóðum.
Hreyfingin er eins og ílestir vita stofnuð
í Bandarikjunum og hefur alla tíð verið
undir miklum áhrifum úr þeim heims-
hluta. í sjálfu sér er það eðlilegt, þegar
tekið er tillit til þess að 75% hreyfingar-
innar kemur þaðan. En framtið hreyf-
ingarinnar liggur ekki þar. Hún liggur
í öðrum heimshlutum. Fjölgunin er
svotil eingöngu utan N-Ameríku í dag
og þá mest i Asíu. Evrópa hefur ekki
staðið sig jafnvel en þó fjölgar þar á
hverju ári. Ég legg mikla áherslu á
samvinnu Kiwanisklúbba um allan
heim. Ég vill sjá múra einangrunar
brotna niður, ég vill sjá aukin skilning
og virðingu fyrir lífsvenjum allra þeirra
sem tilheyra hreyfingunni, ég vil koma
í veg fyri að reynt sé að þvinga alla
undir lífshætti vesturlandabúa, líka þá
sem koma frá öðrum og ólíkum
menningarheimum. Ég vill sjá meiri
sjálfstjórn í höndum þeirra sem búa í
hinum ýmsu heimshlutum þrátt fyrir
að yfirumsjón og stjórnun verði áfram
í höndum heimsstjórnar.
Hver verða markmið nýs
heimsforseta?
Fýrsta marmið næsta árs er íjölgun
í hreyfingunni. S.l. tvö og hálft ár hefur
fækkað í Kiwanishreyfingunni í heim-
inum um 10000 félaga. Þá þróun verð-
ur að stöðva.
Ég hef lagt á það rika áherslu í
undirbúningi og fræðslu fyrir verðandi
embættismenn að við verðum sam-
eiginlega að snúa hjólinu við.
Hér á landi eigum við sama vanda-
mál. Félögum í hreyfingunni fer fækk-
andi og þjónustustarfið er umfangs-
minna en það hefur verið um árabil.
íslensk Kiwanishreyfing þarf að taka
sér tak, skoða stöðuna og meta fram-
tíðarhorfur sínar. Við lifum ekki enda-
laust á fornri frægð.
Á sama tíma og hreyfingin tekur á
sig umfangsmeiri skuldbindingar með
hinu alþjóðlega þjónustuverkefni,
baráttuna gegn joðskorti getum við
ekki sætt okkur við fækkun. Okkar
ábyrgð er meiri nú en áður, við þurfum
íleiri félaga til verksins.
Annað markmiðið er að efla
þátttöku Kiwanisfélaga í alþjóðlega
líknarverkefninu - baráttan við joð-
skortinn. Samstarf okkar við Barna-
í ^
[ * f
m ! J a
Íp uff o§
Stjórnendur Kiwanis 1995-1996. Eyjólfur Sigurðsson heimsforseti (fremsturfyrir miðju) ásamt umdæmisstjórum næsta starfsárs.
Stefán R. Jónsson umdæmisstjóri í öftustu röð.
KIWANISFRÉTTIR
13