Kiwanisfréttir - 01.08.1995, Page 14
Viðtal við verðandi heimsforseta
hjálp Sameinuðuþjóðanna um að sjá
til þess að enginn jarðarbúi þjáist af
joðskorti eftir næstu aldamót er eitt
merkilegasta verkefni sem alþjóðleg
þjónustuhreyfing hefur tekið að sér.
Allir Kiwanisklúbbar hvar sem þeir eru
staðsettir verða þátttakendur í þessu
verkefni frá og með 1. október n.k. Hver
einasti Kiwanisfélagi staðfesti það með
nafni sínu þegar hann eða hún gekk í
hreyfinguna, að láta þjónustuhlut-
verkið vera sitt markmið. Þjónustan á
ekki eingöngu að vera bundin við
heimabyggð, heldur allan heiminn.
Þegar æðsta stofnun hreyfingarinnar,
alheimsþingið, tók þá ákvörðun að
beijast gegn joðskortinum, skuldbatt
þingið alla Kiwanisfélaga í heiminum
til þátttöku.
Mörg umdæmi hafa þegar tekið á
sig skuldbindingar og þegar unnið
mjög gott starf. Það þarf að gerast í
öllum umdæmum, og það þarf að
gerast fljótt.
Þriðja markmiðið er að auka al-
þjóðasamvinnu og skapa virðingu fyrir
mismunandi lífsvenjum einstakra
þjóða. Það hefur skort á skilning í sam-
starfi þjóðanna.
Við höfum á undanförnum árurn
ráðstafað miklu fé til þýðinga, bæði á
efni til útgáfu á fjölda tungumála og
auk þess til beinna þýðinga á fundum
og ráðstefnum. Þrátt fyrir mikinn
kostnað þessu samfara verður að gera
enn betur. Við verðum að geta haft
samskipti við allar þátttökuþjóðir í
hreyfingunni á því tungumáli sem
þeim er tamast. Hér er urn að ræða
íjárfestingu til framtíðar sem á eftir að
skila sér aftur þegar hreyfingin eflist í
viðkomandi löndum. Námsmanna-
skipti milli landa, fjölskylduheim-
sóknir á milli landa, vinaklúbba tengsl,
allt þetta verður að efla til að auka
skilning og virðingu þjóða á milli.
Fjórða markmiðið er að auka sam-
starf innan Kiwanis-fjölskyldunnar.
Fjölskyldan telur um 560 þúsund
félaga. Hreyfingar unga fólksins sem
starfa á ábyrgð og undir leiðsögn
Kiwanisklúbba eru þjóðfélagslega
mikils virði. Að skipuleggja þjónustu-
starf á vegum ungs fólks er nauðsyn-
legur hluti i uppeldi og menntun allra
stúlkna og pilta. Þetta hefur tekist vel
í vesturheimi eins og sjá má í starfi
Lykil-klúbbanna (Key-clubs). í þessum
samtökum eru nú rúmlega 170
þúsund ungmenni. Það þarf að kynna
þessa starfsemi fyrir þátttökuþjóðum
í hreyfingunni. Það er ekki nauðsynlegt
að ílytja út það skipulag sem er á
þessum klúbbum í N-Ameríku. Við
komum þessu í framkvæmd með því
að laga skipulagið að því sem best
þykir á hverjum stað. Við þurfum
aðeins að tryggja, að þjónustuhugsjón-
in sé í fyrirrúmi.
Sama er að segja um Byggjenda
klúbbana (Builders-clubs). Hér er
aðeins um enn yngra fólk að ræða,
nemendur í efri bekkjum grunnskóla.
Samtökin hafa nú um 55 þúsund fé-
laga. Tilraun með stofnun byggjenda-
klúbbs var gerð af Kiwanisklúbbnum
Hörpu hér á landi og þarf að fylgja
henni eftir.
Með því að efia starfsemi þessara
hreyfinga er Kiwanishreyfingin að
leggja sitt að mörkum til næstu kyn-
slóðar og það er mikilsvert.
Eru ferðalög ársins þegar
ákveðin?
Allt þetta starfsár höfum við verið
upptekin við að skipuleggja forseta-
árið. Áætlun liggur nú íýrir. Við hjónin
verðum á ferðalögum um heiminn í
260 daga.
Við heimsækjum allar heimsálfur
og mörg lönd í hverri. Mörgu höfum
við orðið að hafna því ekki er hægt að
gera allt á einu ári. Það gildir sú regla
að forseti skal heimsækja hvert um-
dæmi þriðja hvert ár. Þetta þýðir að
við heimsækjum 16 umdæmi, og
förum auk þess á ráðstefnur og þing
viða í heiminum. Við fáum að ráða sjálf
nokkrum heimsóknum og höfum valið
m.a. að heimsækja Kiwanisklúbbinn í
Tallahassie á Florída, en sá klúbbur
stóð að stofnun fyrsta Kiwanisklúbbs-
ins á íslandi. Við heimsækjum
Kiwanisklúbbinn í Gimli, Winnipeg í
Kanada, en margir félagar í þeim
klúbbi eru af íslenskum ættum. Þá
höfum við ákveðið að forsetinn heim-
sæki Kiwanisklúbba í Alaska, en það
hefur aldrei gerst áður í 60 ára sögu
hreyfingarinnar þar.
Við munum gera allt það sem í
okkar valdi stendur til að efla hreyf-
inguna, auka samstöðu þátttökuþjóða,
auka þátttöku félaganna í alþjóðlega
þjónustuverkefninu og styðja yngri
kynslóðina í mótun nýrra tíma. Hvort
þetta tekst kemur í ljós síðar.
Kiwanisfréttir vilja þakka Eyjólfi
fyrir viðtalið og óskar þeim Jijónum
velfarnaðar í starjl og íslenskum
Kiwanisfélögum til hamingju með
heimsforsetann.
----------------
Kiwanisfélagar!
Gleymum ekki
14
KIWANISFRÉTTIR