Kiwanisfréttir - 01.08.1995, Blaðsíða 16
K-dagur 1995
K-dagur í haust
Nú þegar tveir mánuðir eru til
K-dags er rétt að fara yfir helstu
áherslur varðandi væntanlega
söfnun og styrktarverkefni. K-dag-
ur verður laugardaginn 21. októ-
ber, en við höfum einnig leyfi til að
selja þann 19. og 20. Munum við
að sjálfsögðu nýta okkur þá daga
til húsasölu. Ekki veitir af þar sem
víða er um mikla yfirferð að ræða.
Vil ég hvetja klúbbana til að vera
búna að skipuleggja vel sín söfn-
unarsvæði, það skilar sér vel í betri
vinnu og sölu. Einnig er mjög gott
að klúbbar hafi góða samvinnu sín
á milli um yfirferð á sölusvæðum
og aðstoði hver annan eftir föngum
ef þörf er á. Aðalatriðið er að kom-
ast í öll hús, sem mögulegt er, það
skilar okkur mestum árangri. Mun
K-dagsnefnd að sjálfsögðu aðstoða
við allt skipulag á sölusvæðum eftir
því sem þörf er á.
Nefndin mun hafa aðalstöðvar
að Engjateigi 11 og væntir þess að
gott samband verði við tengiliði
klúbbanna rneðan átakið stendur.
Verð á lyklinum verður það sarna
og á síðasta K-degi eða 300 fcrónur.
Þá munum við bjóða nytsama
aukahluti til sölu. Nefndin stefnir
að því að afhenda klúbbunum af
landsbyggðinni söluvörur og önnur
gögn á umdæmisþingi. Það er bæði
minni kostnaður og fyrirhöfn. en
að senda til klúbbanna þegar nær
dregur K-degi. Mun nefndin hafa
sölutölur síðustu K-daga til við-
miðunar við afhendingu. Varðandi
fyrirtækjasölu munu klúbbarnir
hafa nokkuð frjálsar hendur, en
nefndin mun kynna hugmyndir
um þann þátt þegar nær dregur
K-degi.
Uppgjörsblöð munu fylgja sölu-
vörum og leggur nefndin mikla
áherslu á að klúbbar skili fljótt af
sér. Verður lögð áhersla á að síðasti
skiladagur verði ekki seinna en
einurn mánuði eftir K-dag, þannig
að nefndin geti skilað söluuppgjöri
1. desember 1995.
Á umdæmisþingi mun nefndin
leggja fram tillögur að styrktar-
verkefnum fyrir afrakstur K-dags.
Mun hann að sjálfsögðu fara til
styrktar geðsjúkum eins og fyrri K-
daga. Aðalstyrktarverkefni, sem
nefndin mun gera tillögu um, er
kaup á íbúð fyrir aðstandendur
þeirra sjúklinga á barnageðdeild
við Dalbraut, sem koma af lands-
byggðinni. Mun íbúðin verða af-
hent Geðverndarfélaginu að gjöf og
mun það sjá um rekstur og
ráðstöfun hennar í samráði
við Geðdeild Landsspítal-
ans. Þetta verkefni var valið
í samráði við sérfræðinga
Geðdeildar, sem hyggja á
miklar skipulagsbreytingar
á Barnadeðdeild í kjölfar
þessarar gjafar, þ.e. breyta
deildinni úr sólarhrings-
vistun í göngudeild. en við
það fæst betri nýting á hús-
næði og mannafla og hægt
að sinna mun fleirum á
deildinni.
Þetta verkefni fellur ein-
staklega vel að kjörorðum
okkar i íslenska umdæm-
inu BÖRNIN FYRST OG
FREMST og GLEYMUM
EKKI GEÐSJÚKUM.
Trúum við því og
treystum að þetta verkefni
verði samþykkt á umdæm-
isþingi. Við höfum áætlað
um 10 milljónir í þetta
verkefni. Ef miðað er við
fyrri K-daga mun þó safnast
yfir 10 milljónir og höfum
við ákveðið að gera tillögu
um að veita styrki til upp-
byggingar á Sogni í Ölfusi
og Plastiðjunnar Bjargi á Akureyri.
Við í nefndinni viljum skora á
Kiwanisfélaga að sameinast um að
gera K-dag 1995 að glæsilegum
sigri fyrir Kivvanishreyfinguna og
stórum vinningi fyrir geðsjúka.
Kiwanisfélagar, hjálpum þeim
sem geta það ekki sjálfir,
GLEYMUM EKKI
GEÐSJÚKUM.
Með Kiwaniskveðju
F.h. K-dagsnefndar
Sverrir Karlsson
Söfnunarfé K-dags 1974 og 1977 var
varið til byggingar Bergiðjunnar,
verndaðs vinnustaðar til endurhæfingar
geðsjúkra
Söfnunarfé K-dags 1986 var varið til
uppbyggingar unglingageðdeilar
Söfnunarfé K-dags 1992 var varið til
byggingar nýrrar Bergiðju
16
KIWANISFRÉTTIR