Kiwanisfréttir - 01.08.1995, Qupperneq 17
K-dagur 1995
Áfram K-dagar
Á tíu ára afmæli Kiwanishreyf-
ingarinnar á íslandi, árið 1974 var
íyrsti K-dagurinn haldinn undir kjör-
orðinu „Gleymum ekki geðsjúkum" og
nú, rúmlega tuttugu árum síðar, árið
1995, höldum við aftur af stað. undir
sömu merkjum til stuðnings geðfötl-
uðu fólki. Markmið Kiwanishreyf-
ingarinnar hefur ávallt falist í því. að
skipa andlegum og mannlegum
verðmætum ofar öðrum. Þess vegna
hafa Kiwanisfélagar gert það að
reglubundnum atburði, að ganga i
hús og bjóða fólki K-lykilinn til sölu,
sem i táknrænni merkingu er lvkill
að betra lífi. Með starfi sínu að mál-
efnum geðsjúkra hefur Kiwanishreyf-
ingin unnið markvisst gegn fordóm-
um gagnvart geðsjúku fólki og um leið
aukið skilning hins almenna borgara
á málefnum þeirra.
K-dagar, 19. til 21. október
í ár er ákveðið að K-dagar verði
haldnir 19. til 21. október og er það
einlæg ósk K-dagsnefndar, að sem
flestir Kiwanisfélagir verði þá tilbúnir
að eyða tíma sínum og kröftum til að
gera geðfötluðu fólki lifið bærilegra.
K-dagsnefnd, sem skipuð er þeim
Sverri Karlssyni, Finni Baldurssyni,
Garðari Steinþórssyni, Guðmundi
Péturssyni, Hrafni Sveinbjömssyni og
Stefáni Jónssyni, leggur til, að
söfnunarfé K-dags í ár. verði varið til
kaupa á húsnæði og afhent
Geðverndarfélagi íslands til eignar.
Þetta húsnæði verði siðan nvtt sem
fiölskvlduheimili í tengslum við
Barnageðdeild Landspitalans við
Dalbraut. Ef meira fé safnast en það
sem þarf til kaupa á íbúðinni og sem
reyndar allar líkur benda til,
er það tillaga nefndarinnar að
það fé renni til verndaðra
vinnustaða að Sogni í Ölfusi
og að Bjargi á Akureyri.
Stuðningur við
geðfatlaða
Fyrir hóp, eins og geð-
fatlaða er það ómetanlegt að
njóta stuðnings Kiwanishrey-
flngarinnar. Þetta fólk á sér fáa
formælendur í samfélaginu en
Kiwanishreyfingin hefur tekið
það að sér að tala máli þeirra
og byggja upp þá aðstöðu sem
því er nauðsynleg. Ráðstöfun
söfnunarfjárins hefur allar
götur frá árinu 1974 miðast
við það að byggja upp aðstöðu
til meðferðar og endurhæf-
ingar á geðsjúku fólki. Stuðn-
ingur hreyfingarinnar hefur
verið tvíþættur, þar sem ann-
arsvegar er um bein fjár-
framlög að ræða en hinsvegar
það sem kalla mætti siðferð-
islegan stuðning og felst i þvi
að auka skilning á eðli
geðsiúkdóma og þörfum
geðsiúkra. Með það að leið-
arljósi var fyrsta söfnun-
arfénu, árið 1974 veitt til
byggingar Bergiðjunnar, verndaðs
vinnustaðar til endurhæfingar á
geðsjúkum. Bergiðjan var fyrsta
verkefni sem unnið var fyrir afrakstur
K-dags en þar hefur siðan starfað
fjöldi geðfatlaðs fólks við vörufram-
leiðslu sem seld hefur verið i verslun
vinnustaðarins. Árin 1980-1983 var
áfangastaðurinn við Álfaland reistur
í samvinnu við Geðverndarfélag
íslands en áfangastaður er endur-
hæfingarheimili þar sem lítill hópur
sjúklinga getur dvalist og notið
félagslegrar endurhæfingar. Árið 1986
var söfnunarfénu varið til upp-
byggingar unglingageðdeildar og árið
1989 til kaupa á sambýlum fyrir þá
einstaklinga sem dvalið hafa á
geðdeildum eða á endurhæfingar-
heimilum. Árið 1992 var tekin ákvörð-
un um byggingu nýrrar Bergiðju og
sama ár var lokið við sambýli á
Akureyri. Einnig hefur söfnunarfé
verið veitt til Geðdeildar Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri.
Framlag okkar skiptir sköpum
Af þessari upptalningu má ráða að
framlag Kiwanishreyfingarinnar hefur
skipt sköpum i málefnum geðfatlaðra
á íslandi. Aðstoð við geðfatlað fólk á
íslandi hefði aldrei þróast með þeim
hætti sem hún hefur gert, án
stuðnings hreyfingarinnar. Við getum
því litið stolt yfir farinn veg en
jafnframt því er okkur ljóst. að betur
má ef duga skal. Þess vegna verður
stuðningur okkar í mannúðarmálum
að vera sívirkur og stöðugur. K-
dagurinn árið 1995 er því jafnmikil-
vægur og hann var fyrir tuttugu og
einu ári síðan og þess vegna vil ég
hvetja alla Kiwanisfélaga að taka
virkan þátt í því starfi sem framundan
er 19. til 21. október. Það starf mun
enn á ný sýna styrk og getu hreyf-
ingarinnar til að hjálpa þeim sem
minna mega sín. Munum Kiwanis-
lvkilinn og kiörorð okkar á K-degi:
..Glevmum ekki geðsiúkum.“
Fyrir hönd K-dagsnefndar,
Hrafn Sveinbjörnsson.
Söfnunarfé K-dags 1980 og 1983 var
varið til að reisa áfangastað við Álfaland
í samvinnu við Geðverndarfélag íslands
Söfnunarfé K-dags 1989 var varið til
kaupa á sambýlum fyrir þá einstaklinga
sem verið hafa til dvalar á geðdeildum
eða á endurhæfingarheimilum
KIWANISFRETTIR
17