Kiwanisfréttir - 01.08.1995, Blaðsíða 20
Frá umdæmisritara
Ágætu félagar
Nú þegar komið er að
lokum þessa starfsárs þá
er vert að líta yfir farinn
veg og skoða það sem
miður hefur farið og það
sem vel hefur verið gert.
Margs er að minnast
frá þessu starfsári, það
hefur verið litríkt og
skemmtilegt frá mínu
sjónarhorni séð og er ég
þakklát umdæmisstjóra
fyrir að hafa viljað mig
sem ritara hjá sér, ég fékk
aðra innsýn í Kiwanis-
hreyfinguna en ég hafði
og tel mig fróðari um mál-
efni Kiwanis en ég var
áður — Grétar hafðu
þökk fyrir þolinmæði
þína við mig og þann
fróðleik sem þú hefur
veitt mér.
Starf umdæmisritara
hófst í raun og veru með
undirbúningi fyrir um-
dæmisþingið á Akureyri,
en þar sá ég um fræðslu
hjá svæðisstjórum að
hluta til og síðan um
fræðslu ritara ásamt
Ástbirni Egilssyni fyrr-
verandi umdæmisstjóra.
Ég tel að sú fræðsla hafi
í alla staði tekist vel, en
á þessa fræðslu mættu
alls ritarar frá 38 klúbb-
um af 48. Ekki veit ég
ástæðu þess hvers vegna
vantaði 10 ritara til
fræðslu. Endurmat
fræðslunnar kom vel út,
ritarar töldu sig hafa haft
ánægju og gagn af
fræðslunni.
Raunverulegur undir-
búningur minn undir
þetta starf hófst með
fræðslu sem ég sótti til
Hunenberg í aðalstöðv-
um Kiwanis í Evrópu.
Það var rnjög ánægjulegt
að fá að taka þátt í
þessari fræðslu og ekki
síst að fá að kynnast öðr-
um riturum og þeim sem
stýra þessum málum
okkar frá Evrópu. Ég var
svo heppin að Evrópu-
stjórn var með fund á
sama tírna og fræðsla
okkar ritaranna var, svo
að ég hafði Evrópuforseta
sem ferðafélaga á leiðinni
út. Betri og skemmtilegri
ferðafélaga er vart hægt
að hugsa sér og vil ég
sérstaklega þakka Ævari
Breiðfjörð fyrir þennan
tíma.
Samvinna við ritara
og forseta klúbbana hafa
verið ágæt. Þó hafa
nokkrir ritarar dregið að
senda skýrslur og gögn
sem beðið hefur verið
um. á réttum tíma. Það
er kostnaðarsamt og
mikil vinna að reka á eftir
slíku. En ekki má gleyma
því sem vel er gert, flestir
ritarar skila verkefnum
sínum með miklum
sóma. Margir ritara eru
hreint frábærir, hafa sent
mér bréf með mánaðar-
skýrslum, þar sem þeir
greina ítarlega frá starf-
semi klúbbanna og kann
ég þeim hestu þakkir
fyrir. Eins og ég sagði hér
ofar þá er mjög kostnað-
arsamt og mikil vinna að
reka á eftir gögnum. í
sambandi við félagatalið
hef ég þurft að hringja 6
sinnum í einn klúbb og
finnst mér þá skjóta
Þyri M. Baldursdóttir
skökku við þegar við í
umdæmisstjórn erum
beðin af klúbbunum um
að spara. Ég held að við
verðum að fara að líta
okkur nær í sparnaði.
í upphafi starfsárs
þ.e.a.s. 1. október 1994
voru félagar í umdæminu
1.252 en strax í lok þess
mánaðar voru félagar
orðnir 1.239 eða fækkað
13 þann mánuðinn. Ég
læt hér fylgja með yfirlit
yfir stöðu rnála í svæð-
unum og á yfirlitið að
skýra sig sjálft.
Edda + Grettlr + . Óðinn + Svæðin Saga
1.10.94 214 0 4 72 0 2 194 0 9 174
1.11.94 210 1 1 70 0 0 185 0 3 175
1.12.94 210 3 1 70 0 0 182 0 1 175
1.1.95 212 4 2 70 0 0 181 2 1 172
1.2.95 214 0 2 70 0 0 182 2 1 173
1.3.95 212 4 2 70 1 0 183 1 5 173
1.4.95 214 2 1 71 0 0 179 9 1 173
1.5.95 215 0 0 71 3 3 187 0 0 174
Saintal.s 14 13 4 5 14 21
Þór
269
266
266
269
269
270
274
273
17 10
Æglr + - Alls Útstr Nýir Samtals
329 6 2 1.252 23 10 1.239 31.10.94
333 1 4 1.239 9 3 1.233 30.11.94
330 5 6 1.233 11 11 1.233 31.12.94
329 1 3 1.233 6 8 1.235 31.1.95
327 1 7 1.235 12 6 1.229 28.2.95
321 4 9 1.229 16 14 1.227 31.3.95
316 2 3 1.227 7 15 1.235 30.4.95
315 6 2 1.235 5 12 1.242 31.5.95
26 36 89 79 -10
t hregftngunnL Þá er hér einnig yfirlit yf
klúbbana í heild. og þá hvernig staðan hefur verið í enda mánaðar frá októberlokum 1994 til maíloka 1995.
Gleymum ekki I
geðsjúkum ■
1995
20
KIWANISFRETTIR