Kiwanisfréttir - 01.08.1995, Page 22
Símaspjall
„Áhuginn var svo mikill að menn
voru á biðlista að ganga í klúbbinn"
Þorsteinn Sigurðsson, Heklu, í spjalli við K-fréttir
Hvenær kynntis þú Kiwanis-
hreyfingunni og hvað vakti
áhuga þinn á starfsemi
hennar?
Það má segja að ég hafi vitað af
Kiwanishreyfingunni frá því að
Iiekla var stofnuð, því ég þekkti
nokkra þeirra sem voru með frá
fyrstu sporum Heklu og þegar ég
fór að velta íyrir mér að gaman væri
að vera í félagsskap þar sem færi
saman að láta eitthvað gott af sér
leiða og eins að hafa ánægju af, þá
kom ekkert annað til mála en
Kiwanisklúbburinn Hekla.
Hvað ert þú búinn að vera
starfandi lengi í Heklu og
hvaða embættum hefur þú
gengt innan klúbbsins og innan
hreyfingarinnar?
Ég gekk í Heklu í september
1972 og byrjaði að sjálfsögðu í
móttökunefnd, síðan hef ég verið
formaður flestra nefnda og í stjórn
yfir 20 ár. Forseti tvisvar sinnum.
ritari tvisvar sinnum, formaður
K-dagsnefndar Heklu fyrstu þrjú
skiptin, í K-dagsnefnd umdæmis-
ins þrisvar sinnum. Svæðisstjóri
Þórssvæðisins og í haust tek ég við
sem ritari Heklu í þriðja sinn.
Hvaða styrktarverkefni hafa
verið efst á blaði hjá Heklu.
Árið 1965 var ákveðið að beina
kröftum okkar til styrktar öldruð-
um. Fyrir valinu var Hrafnista í
Reykjavík. Þá um sumarið var farin
fyrsta skemmtiferðin með vistfólkið
síðan hefur það verið árvisst, nú í
sumar var farin 30. ferðin. S.l. 18
ár hefur vistfólkið á Hrafnistu í
Hafnarfirði verið með. Gestir okkar
eru á bilinu 130-160 í hverri ferð.
Frá árinu 1968 höfum við haldið
kvöldvöku á Hrafnistu í febrúar-
mánuði, þá fáum við Jjjóðfræga
skemmtikrafta til liðs við okkur og
ljúkum skemmtikvöldinu með
dansi. Þá höfum við líka gefið mörg
lækninga- og hjálpartæki til Hrafn-
istu í Reykjavík.
Frá árinu 1973 höfum við farið
með börnin í Reykjadal í Mosfells-
sveit, í skemmtiferð en nú síðustu
árin höldum við pylsu-grillveislu og
tökum lagið saman með undirleik
tveggja félaga.
Þorsteinn Sigurðsson
Hefur ekki margt skeð hjá elsta
Kiwanisklúbbi landsins.
Það væri efni í langa grein allt
sem er minnisstætt. Þó langar mig
að geta þess að á fyrstu árum
Heklu var áhugi svo mikill að
ganga í Kiwanis að menn voru á
biðlista að ganga í klúbbinn. Eins
er það minnisstætt að Heklufélagar
hafa stofnað og verið með í að
stofna 13 klúbba.
Finnst þér Kiwanis hafa breyst
þessi ár, og þá hvernig?
Við í Heklu erum mjög fast-
heldnir á fundarvenjur og verkefni,
en hreyfingin í landinu hefur að
mínu viti haft blæbrigðabreytingar
en ekki grundvallarbreytingar.
Hvaða viðhorf hefur þú til
blandaðra Kiwanisklúbba?
Ég gekk í karlaklúbb og ég veit
að margar konur, sem eru í
kvennaklúbb vilja ekki að karlar
gangi þar inn, en ef vilji er fyrir
hendi sé ég ekki hvað mælir á móti
blönduðum Kiwanisklúbb.
Hvernig er sú tilfinning fyrir
Heklufélaga að eiga heims-
forseta innan klúbbsins?
Það er nú svo að innan klúbbs-
ins hafa verið margir duglegir
hæfileikamenn, sem hafa starfað
fyrir Kiwanis hérlendis og erlendis.
Eyjólfur Sigurðsson á að baki langt
og mikið starf fyrir Kiwanis-
hreyfinguna. Hann var umdæmis-
stjóri 1974 til 1975, síðan þá hefur
ekki fallið ár úr. Hann fer í Evrópu-
stjórn, verður Evrópuforseti 1982
til 1983, síðan í heimsstjórn KI. Nú
í haust tekur hann við sem forseti
heimsstjórnar. Við skulum gera
okkur grein fyrir því að til að ná
þessum einstæða árangri þarf
mikla vinnu og fórnfysi. Við í Heklu
og allir íslenskir Kiwanismenn og
konur erum stolt yfir þessum
frábæra árangri Eyjólfs Sigurðs-
sonar. Ég spái því að það líði
áratugir þar til Evrópubúi verður
heimsforseti næst. Ég óska Eyjólfi
Sigurðssyni gæfu og gengis í starfi
heimsforseta.
Eitthvað að lokum?
Að fá gott og dugmikið fólk til
starfa í Kiwanis.við eigum svo
margt ógert. Að vera í Kiwanis
gefur manni kost á að kynnast
mörgu góðu fólki ásamt því að taka
þátt í að láta gott af sér leiða.
22
KIWANISFRÉTTIR