Kiwanisfréttir - 01.08.1995, Qupperneq 23
ORÐ TIL UMHUGSUNAR
Ég hef stundum verið að hugsa
um það, hvað Kiwanishreyfingin
var heppin að velja þá leið að leggja
áherslu á þjónustu til almennra
heilla heldur en á þróun viðskipta.
Það hefur leitt til þess að við höfum
öðlast reynslu í þjónustu. „Við“
þýðir sérhver félagi í hinni stóru
fjölskyldu Kiwanis International,
sem yljar okkur um hartarætur og
hinn almenni borgari hefur kynnst
grundvallarviðhorfum sem liggja
að baki Kiwanis sem er þjónusta
og félagsskapur Kiwanis. Það ætti
að vera hverjum Kiwanisfélaga
ljóst að það er viðhorfið sem er
þungamiðja og hvati að öllu því
mikilvæga starfi sem Kiwanis-
félagar vinna að.
Við sjáum fólk einangrast í
sinni vinnu, það umhverfi skapar
þröngsýni sem gerir að fólk hugsar
oft ekki lengra. Með tilkomu sem
Kiwanisfélagi eru allir möguleikar
á að eignast góða vini, öðlast meiri
víðsýni, áhugamál og félagslega
reynslu sem nýtist viðkomandi,
jafnvel fengið viðskiptavini, allt í
gegnum Kiwanis.
Þegar við förum að vinna að
góðum málefnum, heimsækja bág-
statt fólk, syrgjendur á sorgar-
stundu, öðlumst við allt annað
gildismat á lífinu, öðlumst reynslu
sem í endurminningunni yljar á
þann hátt um hjartarætur sem
V iðurkenningar
frá KI
Eftirtaldir aðilar voru viðurkenndir
af KI fyrir störf sín fyrir Umdæmið
Ísland-Færeyjar starfsárið 1993-1994.
Þessir forsetar og ritarar urðu
Distinguished:
Guðjón Magnússon forseti og Sig-
urður Jóhannsson ritari, Kiwanis-
klúbbnum Höfða, Reykjavik.
Ólafur Jónsson forseti og Ingimar
Hólm Ellertsson ritari, Kiwanis-
klúbbnum Drangey, Sauðárkróki.
Tryggvi Gunnarsson forseti og
Oddgeir Gylfason ritari, Kiwanis-
klúbbnum Öskju, Vopnafirði.
Ámundi Eliasson forseti og Hákon
Halldórsson ritari, Kiwanisklúbbnum
Búrfelli, Selfossi.
Guðbrandur Einarsson forseti og
Elías Hafsteinsson ritari, Kiwanis-
klúbbnum Ölver, Þorlákshöfn.
Sigurður Jónsson forseti og Unnar
Már Magnússon ritari, Kiwanis-
klúbbnum Hof. Garði.
Hallberg Guðmundsson forseti og
Gunnar Magnússon ritari, Kiwanis-
klúbbnum Hraunborg, Hafnarfirði.
Þorleifur Markússon forseti og
Stefán Hallgrímsson ritari, Kiwanis-
klúbbnum Setberg, Garðabæ.
Ástbjörn Egilsson forseti og Kristján
Sveinsson ritari, Kiwanisklúbbnum
Esju, Reykjavík.
Björn Baldrinsson forseti og Guðni
Guðmundsson ritari, Kiwanisklúbbn-
um Geysi, Mosfellsbæ.
Eftirfarandi svæðisstjórar voru
útnefndir Distinguished:
Eddusvæði, Ólafur Þ. Jónsson
Smyrli, Borgarnesi.
Grettissvæði, Steinn L. Sigurðsson
Dragney, Sauðárkróki.
Óðinssvæði, Brynjar Þ. Halldórsson
Skjálfanda, Húsarik.
Sögusvæði. Jón Ó. Vilhjálmsson
Búrfelli, Selfossi.
Þórssvæði, Guðmundur B. Haga-
línsson Þorfinni, Flateyri.
Ægissvæði, Stefán R. Jónsson
Eldey, Kópavogi.
Þá var Umdæmið Ísland-Færeyjar
útnefnt Honorable Menition District
fyrir starfsárið 1993-1994 og fær um-
dæmið, umdæmisritari og umdæmis-
stjóri sérstakar riðurkenningar í tilefni
af þessum árangri.
Einnig var umdæmisstjóri Sæ-
mundur Sæmundsson útnefndur
Distinguished Governor.
Aðalsteinn Aðalsteinsson,
okkur hefði ekki dottið í hug að
mundi henda okkur.
Lífið er stutt. Hvers vegna að
eyða því í innri hræringar: áhyggj-
ur, vandamál, togstreytu? Því
gleymum við svo auðveldlega
hversu stutt mannsævin er og
gæfan hverful? Því ekki að gera allt
sem við getum til að gera lífið
ánægjufullt og innihaldsríkt, þetta
líf, dagstundina í dag, leiðin til
hamingjunnar er ekki svona tor-
farin. Áhyggjur skapa vandamál,
vanlíðan, sjúkdóma. Á sama hátt
skapar jákvætt hugarfar og vænt-
umþykja innri ánægju, heilbrigðan
hug og líkama. Hver sem ber
skinbragð á mikilvægi notkunar-
gildi jákvæðs hugarfars auðveldar
ekki aðeins sér lífið í leik og starfi
heldur linnir nauð margra.
Því er það svona til umhugs-
unar, þegar við erum að störfum
fýrir Kiwanis að velferðarmálum
hvort við eigum ekki að leggja
aukna áherslu á jákvætt hugarfar
og væntumþykju.
Það er mín skoðun að ef við
berum gæfu til að hafa það að
leiðarljósi þá séu engin takmörk
fyrir möguleikum okkar á
útbreiðslu Kiwanis. Það er að láta
hug fýlgja máli. Hugurinn er sterk-
asta aílið.
Verum kát, verum Kiwanis.
Aðalsteinn Aðalsteinsson,
Jjölmiðlafulltrúi
KIWANISFRETTIR
23