Víkurfréttir - 30.09.2004, Page 2
> Önnurvika kennaraverkfalls:
Á SUÐURNESJUM
Mma&tí :sjg$naðw
eMn b®rgara
Haustfagnaður eldri borgara
verður haldinn í Glaðheimum
laugardaginn 9. október kl. 15.00.
Vegna mistaka kom fram í Aftanskini að
hann færi fram sunnudaginn 9. október.
Örgjörvi: AMD Athlon XP-Mobile A2800+
Skjár: 15" XGA, (1024x740)
Minni: 256MB DDR
Harður diskur: 40GB
Drif: DVD/CD-RW skrifari
Fimm minniskortaraufar í einni
Innbyggt þráðlaust netkort: 802.11 b/g
Stýrikerfi: Microsoft Windows XP Pro
Ábyrgð: 2ja ára neytendaábyrgð
Aukabúnaður á mynd:
Tengilcví, mús og lyklaborð
Verðlækkun
HP Compaq nx9T05
A2800+
Verb kr. 139.900
Yéro uÖui L. 1^9.900
SAMHÆFNIr
= allt er framkvæmanlegt
Hringbraut96 • Sími 421 7755 • www.samhaefni.is • sala@samhaefni.is
Kennarar á barattufundi
með forystumönnum
Tugir kennara af Suður-
nesjum voru saman-
komnir í 88 Húsinu í
Reykjanesbæ á mánudags-
morgun þar sem Eiríkur Jóns-
son, formaður Kennarasam-
bands íslands, kynnti stöðu
mála ásamt öðrum forvígis-
mönnum kennara.
Hann kynnti grundvallarkröfur
kennara í samningaviðræðum og
fór einnig yfir undanþágumálin
sem hafa verið í brennidepli und-
anfarið.
Kennarar sættu gagnrýni fyrir að
leggjast gegn undanþágum frá
verkfallinu, en þeir vísa ábyrgð-
inni á hendur sveitarfélaga. Þeir
segja að sveitarfélögin hafi fyrir
löngu átt að vera búin að útbúa
undanþágulista vegna kennslu
barna sem eiga við heilbrigðis-
vandamál að striða sem yrði til
reiðu ef kæmi til verkfalls, en þá
væru þessi mál ekki í hnút eins
og raunin er.
Ef til þess kæmi að undanþágur
yrðu veittar yrði það ekki fyrr en
að búið væri að tryggja að þeir
kennarar sem færu til starfa
fengju borguð full laun.
Kennurum hefur einnig legið á
hálsi að hafa ekki sýnt samnings-
vilja með því að neita samninga-
nefhd Launanefndar sveitarfélag-
anna um hugarflæðisfund. Eirik-
ur sagði hins vegar tilgangslaust
að eyða tíma í að sækja fundi þar
sem öruggt væri að ekkert nýtt
kæmi í ljós.
Miklar umræður spruttu upp um
kennara í einkaskólum sem ekki
eru í verkfalli. Fannst sumum
fundarmönnum ósanngjarnt að
þeir fengju að njóta kjarabóta
sem myndu nást af baráttu ann-
arra. Kom Eiríkur þá inn á mál-
efni Isaksskóla, en félagsmenn
KÍ innan þess skóla hugðust fara
í verkfall ásamt öðrum. Eirikur
sagði það hins vegar hafa verið
dregið til baka vegna þess að
stjórnendur skólans hafi hrætt
kennara með því að segja að
skólinn yrði gjaldþrota ef kennar-
ar færu i verkfall.
Eiríkur gagnrýndi þau vinnu-
brögð Isaksskóla og tilkynnti
einnig að skólinn hafði ekki skil-
að vörslufé líkt og iðgjöldum í
lífeyrissjóð og félagsgjöldum í
verkalýðsfélög. Astæða þess að
hann tilkynnti þetta var sú að for-
ystunni fannst þau knúin til að
upplýsa félaga sína um framferði
sem þetta.
Annars lauk fundinum á góðu
nótunum þar sem fimdarmenn ít-
rekuðu stuðning sinn við samn-
ingamefndina. Lögð var áhersla
á að kennarar skrifuðu greinar í
fjölmiðla þar sem þeir lýstu sinni
afstöðu og kynntu sin málefni.
Unnur Kristjánsdóttir, kennari og
fulltrúi í samninganefnd Félags
grunnskólakennara, sagðist afar
ánægð með fundinn. Aðspurð
hvort ímynd kennara væri að
breytast til hins betra effir nokkur
áföll á síðustu vikum sagðist hún
óviss. „það er allavega gott að al-
mennir kennarar séu að skrifa í
blöðin og koma sinum sjónar-
miðum á ffamfæri. Svo er ég líka
hissa og ánægð að sjá stuðning-
inn sem við höfum fengið hjá
leiðarahöfundum Morgunblaðs-
ins á síðustu dögum.” Unnur
kvaðst einnig ánægð með um-
fjöllun Víkurfrétta um málið.
Að lokum vildi Unnur hrósa
sveitarfélögum á Suðumesjum í
hástert fyrir að virða verkfallið
að fullu. Sagði hún að ekki hefði
örlað á minnstu tilraunum til að
færa sig inn á verksvið kennara.
„Þau hafa ekki einu sinni farið
nálægt gráa svæðinu!”
> Skemmdarlysn unglingahópa?:
Spjöll unnin á gæsluvelli
Ljót sjón blasti við starfs-
fólki Frístundaskólans á
gæsluvellinum Heiðar-
bóli á mánudagsmorgun þar
sem spellvirki höfðu verið unn-
in.Talið er víst að unglingahóp-
ar komi þar saman um kvöld
og nætur og gangi svona um.
Þakrenna við húsið hafði verið
rifin niður og hefði hæglega get-
að stórslasað bömin sem sækja
gæsluvöllinn. Starfsfólk segir
slíka aðkomu því miður vera nær
daglegt brauð. „Það liður ekki sú
vika að ekki sé eitthvað eyðilagt
eða brotið hér,” sagði Magnea
Stefánsdóttir í samtali við Vikur-
fréttir. „Við erum alltaf að finna
sigarettustubba, bjórflöskur og
dósir á lóðinni. Þeir sem eru
héma á kvöldin liafa líka átt það
til að mölva glerflöskurnar á
grjótum þar sem yngri börn gætu
skorið sig illa á þeim.”
Þar með er ekki öll sagan sögð
því að rúður hafa verið brotnar í
húsinu og eitt skipti hafði einhver
m.a.s. hægt sér í sandkassann.
Þess konar hegðun er að sjálf-
sögðu ekki til eftirbreytni og get-
ur haft alvarlegar afleiðingar fyrir
spellvirkjana. I 257. grein al-
mennra hegningarlaga kemur
m.a. ffam að refsing við eignar-
spjöllum sé greiðsla sektar eða
fangelsisvist allt að 2 árum.
2
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJU5TU FRÉTTIR DAGLEGA!