Víkurfréttir - 30.09.2004, Page 12
> www.stodkennarinn.is:
REYKJANESBÆR
Tjarnargötu 12 • Póstfang230 • S:42I 6700
Fax: 421 4667 • reykjanesbaer@reykjanesbaer.is
BREYTINGAR A UMFERÐ
HÁMARKSHRAÐI 30 KM
Hámarkshraði verður 30 km. á klst. á eftirtöldum
götum:
Mávabraut, Blikabraut, Sunnubraut, Háaleiti,
Faxabraut (milli Þverholts og
Hringbrautar), Vallartúni, Miðtúni, Sóltúni,
Lyngholti, Háholti, Baugholti,
Krossholti, Þverholti og Skólavegi (milli
Flugvallarvegar og Hringbrautar).
Breyting þessi tekur gildi 1. október n.k.
Framkvæmdastjóri.
Umhverfis- og skipulagssvið
t
Okkar elskulegi
Ásgeir Einarsson,
Smáratúni 35,
Keflavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítala, Fossvogi,
mánudaginn 27. september.
Pálína Gunnarsdóttir,
Svandís, Heiða, Bjarki og Brynjar,
Einar Þór Arason, Kolbrún Gunnlaugsdóttir,
Guðrún Stefánsdóttir,
Stefán G. Einarsson, Eydís Eyjólfsdóttir,
Ari Einarsson, Ása Guðmundsdóttir,
og bræðrabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
Hjálmfriður Guðný Sigmundsdóttir frá Hælavík,
Sunnubraut 16, Reykjanesbæ
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju,
föstudaginn 1. október kl. 13:00.
Reynir Jónsson,
Sævar Reynisson,
Guðmundur Óli Reynisson, Svala Rún Jónsdóttir,
Jóhanna Reynisdóttir, Ólafur Eyþór Ólason,
Guðný Reynisdóttir, Axel Arnar Nikulásson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Suðurneseamaður
með nýjan námsvef
Ungur Keflvíkingur,
Starkaður Barkarson að
nafni, starfrækir vefsíð-
una Stoðkennararann á slóð-
inni stodkennarinn.is, en þar er
um að ræða mikla og góða nýj-
ung í íslensku skólastarfi.
Stoðkennarinn er gagnvirkur
námsvefur þar sem hægt er að
nálgast námsefni og verkefni í
stærðfræði og íslensku fyrir elstu
bekki grunnskóla og fyrstu
áfanga í framhaldsskóla.
Starkaður, sem hefur B.A. próf í
íslensku, sagði í samtali við Vík-
urfréttir að hugmyndin hafi
blundað i honum en hafi orðið að
alvöru þegar liann fluttist út til
Berlínar árið 2002. „Þar fór ég að
reyna mig áfram með að setja
upp ýmis íslenskuverkefni fyrir
vefsíðu, en það var svo síðasta
vetur sem ég fór í gang með síð-
r
una. Allnokkrir framhaldsskólar
og grunnskólar notuðu vefinn en
í vetur var strax nokkur aukning
fram að verkfallinu.”
Starkaður segir viðtökumar hafa
verið góðar en leggur áherslu á
að einstaklingar geta líka keypt
áskrift að vefnum og fengið verk-
efni fyrir börn sín. Þau fá ein-
kunn fyrir öll verkefni sem þau
leysa og heldur síðan utan um
alla einkunnir svo hægt er að sjá
framfarir glögglega. Einnig
fylgja nákvæmar leiðréttingar
þegar um rangt svar er að ræða.
I dag opnar ókeypis aðgangur að
síðunni með notendanafninu og
lykilorðinu vf þar sem fólk getur
kynnt sér efni og möguleika síð-
unnar. Síðan veður opin alla
helgina.
„Þetta er sérlega hentugt fyrir
krakka sem eru ekki í skóla
vegna verkfallsins til að halda sér
við efnið,” segir Starkaður að
lokum og segist ætla að halda
áfram að styrkja síðuna frekar á
þeim greinum sem fyrir eru en
framtíðin verði að leiða í ljós
hvort hægt verði að taka inn fleiri
greinar.
> Mikilvægur stuðningur Kiwanis:
Kiwanisklúbburinn Keiiir
í Keflavík hefur undan-
farna áratugi verið einn
helsti styrktaraðili Þroska-
hjálpar á Suðurnesjum. I til-
efni af 30 ára afmæli klúbbsins
árið 2000 afhenti Keilir
Þroskahjálp bifreiða til afnota.
I sumar var kominn tími til að
endurnýja bifreiðina og ákvað
styrktarnefnd Keilis að styrkja
Þroskahjálp til að endumýja bif-
Kiwanisklúbburinn Keilir í Keflavík hefur styrkt Þroskahjálp á Suðurnesjum
með peningagjöf til kaupa á fólksflutningbíl. Bifreiðin er af gerðinni Renault.
reiðina og var keypt ný bifreið
Ford Transit. Það er Þroskahjálp
mjög nauðsynlegt að hafa bifreið
til umráða til að keyra fatlaða
einstaklinga á milli staða og hef-
ur bifreiðin nýst þeim vel. Þetta
er í þriðja skipti sem Keilir styrk-
ir Þroskahjálp til biffeiðakaupa.
Hið árlega og sívinsæla Lunda-
kvöld Keilis verður haldið í KK-
salnum fostudaginn 15. október
n.k. Lundakvöldið hefur verið
haldið tvívegis áður. A þessu
kvöldi er Lundinn afhentur til
þess einstaklings sem nefnd á
vegum Keilis telur hafa unnið
frábært starf á árinu. Fyrstu
Lundaviðurkenninguna hlutu
þeir Oskar Ivarsson og Vilhjálm-
ur Þorleifsson starfsmenn
Ahaldahússins og i fyrra hlaut
viðurkenninguna Ólafur Oddur
Jónsson sóknarprestur i Kefla-
víkurkirkju.
Miðar á Lundakvöldið verða til
sölu í Kiwanishúsinu við Iðavelli
föstudaginn 8. og laugardaginn
9. október og hægt er að panta
miða í síma 421-3339.
Keilir styrkir Þroskahjálp á Suðurnesjum
MiÖlun frétta og mynda
Meö öflugri fréttavakt Víkurfrétta eru Ijósmyndarar
og blaðamenn til taks allan sólarhringinn!
12
VIKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DACLEGA!