Víkurfréttir - 30.09.2004, Blaðsíða 17
úlku
isár
§m
- S'.v
VIKUR
FRÉTTIR
Myndin Úr einkasafni.
© Katrín Sveinbjörnsdóttir.
Afritun myndanna eða eftir-
prentun ermeð öllu óheimil.
ir læknaiia
slunn
jFRETTlRj
%
STYRKTARREIKNINGUR
0142-05-000300
kt:040603-3790
■
-
hennisegir Katrin en um tínia
leit út fyrir að Allý myndi missa
nokkrar tær.
Þriðja stigs bruni á
helmingi líkamans
Allý var flutt á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja og þaðan
beint á gjörgæsludeild Land-
spítalans. Slysið varð á laugar-
degi og þurfti að bíða fram á
mánudag til að sjá hve Allý væri
illa brunnin. A mánudeginum
var tekin ákvörðun um að senda
hana á sérstaka brunadeild
Ríkisspítala Danmerkur í
Kaupmannahöfn. „Þegar við
komum út kom í ljós að bruna-
sárin náðu yfir 50% líkamans og
nær allur bruninn var þriðja
stigs ” segir Katrín en þriðja
stigs bruni er lifshættulegur.
Á stofu í um 35 stiga hita
Þegar Allý var komin til Kaup-
mannahafbar var hún sett beint á
sérstaka stofu sem er sótthreins-
uð. „Þar var hún höfð nakin og
óvafin með sárin opin. Hitinn á
stofunni var um 35 gráður því
það var verið að þurrka upp
brunasárin, en einnig var verið
að passa að líkaminn hennar
væri ekki að hita upp húðina.
Hún er bundin bæði á höndum
og fótum svo hún geti ekki
skaðað sig með þvi að klóra sér,”
segir Katrín en foreldrarnir
verða að klæðast sérstökum
fötum til að vera hjá henni á
stofúnni. „Þeir biðu í 14 daga til
að sjá hvað mikið af hennar
eigin húð myndi gróa. Það kom í
ljós að það greri mjög lítið enda
eru sárin mjög djúp allsstaðar.”
/ fjóra og hálfan
tíma í aðgerð
Fyrsta aðgerðin sem Allý fór í
var mánudaginn 13. september.
Sú aðgerð tók fjóra og hálfan
tíma. I aðgerðinni var tekin húð
af heilbrigðum hluta líkarna
Allýjar og grætt á brunasárin.
Hendurnar, handarbökin og
andlitið voru einu staðimir sem
húð var ekki tekin af. I aðgerð-
inni missti Allý um 700 ml af
blóði sem þykir ekki mikið.
Læknarnir voru ánægðir með
árangurinn. „Eftir aðgerðina fór
hún á gjörgæsludeild og vaknaði
þar samdægurs. Hún var tekin úr
öndunarvélinni um kvöldið.
Tveimur dögum eftir aðgerðina
hækkaði hitinn. Hún átti erfitt
með andardrátt og læknarnir
héldu að hún væri komin með
lungnabólgu. „Til allrar ham-
ingju var hún ekki með lungna-
bólgu,” segir Katrín og brosir.
Syngur af og til
Þó Allý sé ekki nema 15 mánaða
gömul hefúr hún staðið sig vel.
Læknarnir á danska sjúkrahús-
inu segja hana mjög heilbrigða
og að það komi þeim á óvart hve
hress hún sé þrátt fyrir þessi
erfiðu veikindi. „Hún syngur af
og til fyrir okkur og læknanna
og það kemur þeim á óvart. Hún
grætur náttúrulega líka, fær
krampa um allan líkamann og
þolir matinn illa. Það er ýmislegt
sem hefúr komið uppá og það er
Húð af efri hluta líkama Allýjar var tekin og grædd á neðri hluta líkama hennar.
Hendurnar, handarbökin og andlitið voru einu staðirnir þar sem húðin var ekki
tekin af. Sýkingarhættan er mikil eftir aðgerð sem þessa. Allý gekkst öðru sinni
undlr húðágræðsluaðgerð á mánudag. Sú aðgerð gekk vel.
ýmislegt sem getur komið uppá.
Hún er í lifshættu og mikið slö-
suð,” segir Katrín og lítur á
mynd af litlu hetjunni sinni.
„Hún er algjör hetja þessi stel-
pa.”
Fáar hjúkrunarkonur
séð verri bruna hjá barni
Læknarnir á danska sjúkrahús-
inu voru mjög áhyggjufullir
vegna brunans. Katrin segir að
fáar hjúkrunarkonur á sjúkrahús-
inu hafí séð böm sem voru verr
brunnin en Allý. „Þeir voru jafn-
vel hissa á því að hún væri lif-
andi. Ég spurði lækninn hvort
hún væri í mikill hættu og hann
sagði við mig að hann gæti ekki
lýst hana úr lífshættu - það væri
bara ekki hægt. Hann sagði
hinsvegar við mig að þessi
stelpa ætti eftir að ná sér því hún
væri svo ofboðslega sterk. Guð
hvað ég var glöð þegar hann
sagði þetta,” segir Katrín og
brosir.
Greru fyrr en gert
var ráð fyrir
Rúmur hálfúr mánuður er síðan
Allý fór í fyrstu aðgerðina á
Tærnarfóru verstjjt
brunanum, en ní§;
komið í Ijóst að hægt
verðuraðbjarganíu
oghálfritá. %
danska sjúkrahúsinu. Læknamir
vora mjög ánægðir með árangur
þeirrar aðgerðar. „Sárin á Allý
eflir aðgerðina vora mun fljótari
að gróa en læknamir gerðu ráð
fyrir. Meira að segja ein af
tásunum hennar hefúr gróið af
sjálfsdáðum,” segir Katrín og
það er mikill sigur því um tíma
leit út fyrir að hún myndi missa
nokkrar tær.
Þurfti taka aðeins
framan af einni tá
A mánudaginn fór Allý í aðra
aðgerð þar sem húð var aftur
tekin af líkama hennar og grædd
á aftari hluta líkamans. Sú
aðgerð gekk vel og þurfti hún
ekki að fara á gjörgæsludeild
eftir þá aðgerð. í aðgerðinni
kom í ljós að það tekst að bjarga
níu og hálfri tá. Sýkingarhættan
er mikil eftir aðgerðina og
verður Allý í sóttlireinsuðu her-
bergi á meðan sárin gróa. „Við
skiptumst á að vera hjá henni.
Fyrst vorum við hjá henni 24
tíma á sólarhring og það var
gríðarlegt álag. Nú sitjum við
hjá henni frá 8 á morgnana til 11
á kvöldin. Á nóttunni eru lækna-
nemar hjá henni,” segir Katrín.
Framhald í næstu opnu!
VÍKURFRÉTTIR I 40.TÖLUBLAÐ2004 I FIMMTUDAGURINN 30. SEPTEMBER 2004 117