Víkurfréttir - 30.09.2004, Blaðsíða 18
„Hún syngur af og til
fyrir okkur og lækn-
anna og þaö kemur
þeim á óvart. Hún
grætur náttúruleg*a
líka, fær krampa um
allan líkamann og
þolir matinn illa. Það
er ýmislegt sem hefur
komið uppá og það er
ýmislegt sem getur
komið uppá. Hún er
í lífshættu og mikið
slösuð.”
Slysin gera ekki boð á
undan sér
Þegar Katrín er spurð hvort þau
kenni sér um slysið segir að hún
að þau hafi ásakað sig í byijun.
„Það hjálpar manni ekkert að
vera að naga sig í handarbökin.
Eg veit með vissu að þetta var
bara hræðilegt slys. Hjúkrunar-
fólkið og fólkið sem hefur
annast Allý hafa sagt okkur það.
Þetta gerist á nokkrum sekúnd-
um. Þetta er bara eitthvað sem
gerir ekki boð á undan sér og
þetta er bara alveg hrikalegt
slys,” segir Katrín og bætir við.
„Það er samt svo hræðilegt sem
gerðist og auðvitað líður manni
hrikalega illa. Það skiptir samt
engu máli því það eina sem við
hugsum um er að hetjan okkar
nái sér.”
Kjaftasögurnar
gengið víða
Miklar kjaflasögur liafa gengið
um Suðurnes og víðar um
tildrög slyssins og eru útgáf-
urnar margar. Katrín telur að
kjaftasögumar verði til hjá fólk-
inu sem þykist vita allt best.
„Við þetta fólk vil ég segja að ef
því líður betur að vera með
þessar sögur í gangi þá er það
þeirra mál. Það er bara ágætt ef
fólk er svona fullkomið,” segir
Katrín og er ákveðin á svip.
Læknarnir eru mjög ánægðir með framfarir Allýjar og segja hana standa sig vel.
Sár hennar gróa vel og læknarnir leyfa sér að vera bjartsýnir.
Næstu 12 mánuði
í vafningum
„Við tökum bara einn dag í
einu. Eg þori ekki að hugsa
langt fram í tímann. Okkur var
sagt í byrjun að íyrstu dagamir
plötuðu oft og svo yrði þetta
verra. Við venjuleg veikindi
veikist maður og batnar í kjöl-
farið. í tilfellum sem þessum
getur ástandið versnað mikið þó
það hafi verið gott rétt á undan
þannig að við tökum bara einn
dag í einu,” segir Katrín en
næstu 12 mánuði þarf Allý að
vera í vafhingum og hún getur
liklega ekki verði í venjulegum
fotum. Húðin á neðri hluta lík-
ama Allýjar verður aldrei eðli-
leg. „Hún þarf alltaf að bera á
sig sólarvöm áður en hún fer út
í sólina og hún þarf reglulega að
bera á sig olíur. Þetta er ekkert
eðlileg húð. Til dæmis ef hún
færi út í sólarljós þá verður
húðin fjólublá.”
Þakka fyrir bænirnar
Katrín og Jósef hafa fúndið fyrir
miklum stuðningi frá Islandi í
veikindum Allýjar. Vinir og
vandamenn hafa staðið þétt við
bakið á þeim og allir tekið
höndum saman. Katrín segir að
bænir fólks hafi skipt rniklu
máli „Fyrirbænir fólks hafa
skipt gríðarlegu máli og þá
skiptir ekki hverrar tríiar fólk er
að mínu mati. Það er fullt af
fólki sem hefúr sent henni alls-
kyns bænir og ég veit að það
hefúr hjálpað mikið. Við viljum
þakka þessu fólki fyrir allan
stuðninginn - bænir þeirra og
hlýjan hug.”
Barátta Allýjar er bara rétt að
byija. Foreldrar hennar og aðrir
vandamenn standa þétt við hlið
hennar eins og þau hafa gert frá
upphafi. „Við munum gera allt
fyrir þessa litlu hetju svo hún
geti átt sem eðlilegast líf í
framtíðinni. Ekkert annað
skiptir máli.”
„Hún er algjör hetja þessi stelpa”
18
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I wwvu.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!