Víkurfréttir - 30.09.2004, Side 20
Jakob Jónharðsson lyfti
bikarnum 1997 sem fyrir-
liði Keflavíkur og segir
hann tilfinninguna liafa vcrið
ógleymanlega.
„Það stendur alveg uppúr á ferl-
inum þó að maður hafi verið í
atvinnumennsku og spilað með
landsliðinu. Það var einhvern
veginn eins og okkur hafi verið
ætlað að vinna þennan titil.
Markið hans Gests og
vítaspyrnukeppnin... við áttum
að vinna!”
Keflvíkingar vöktu mikla athygli
fyrir skegg sitt og hár í úrslita-
leikjunum tveimur, en fyrst
mættu allir með litað skegg og i
seinni leikinn voru allir með
aflitað hár.
„Það var mikil samstaða í hópn-
um og skemmtilegir karakterar.
Fyrst lituðum við á okkur skegg-
ið en litlu strákarnir sem voru
ekki með skegg fengu það bara
tússað á sig! I seinni leiknum
voru svo allir með og nteira að
segja Hraíhkell læknir aflitaði á
sér hárið.”
Jakob segir liðið þá og nú vera
nokkuð ólik. „Við vorum
kannski ekki með besta liðið þá
en við andinn og karakterinn í
liðinu var mjög góður. Við
vorum með mikla baráttuhunda í
liðinu í bland við unga og spræka
stráka eins og Hauk Inga, Jóa B.
og Gumma Steinars. Núna vantar
þessa baráttumenn í liðið en
strákarnir eru miklu flinkari fót-
boltamenn en við vorum.”
Jakob, sem er aðstoðarþjálfari
Keflavikur i dag, bætir þó við að
eitt eigi liðin sameiginlegt.
„Liðið nú er samsett að mestu úr
heimamönnum eins og það var
þá. Það er líka rnikil samheldni
hjá strákunum og ég held að þeir
eigi að geta klárað þetta ef við
náunt upp góðri stemmningu og
fáurn góðan stuðning.”
-Gestur Gylfason er fullviss um
Keflavíkursigur
„Við áttum að vinna!'1
Gestur Gylfason skráði
sig rækilega í
sögubækurnar þegar
hann skoraði jöfnunarmark
Keflvíkinga gegn IBV í
bikarúrslitaleiknum 1997.
Staðan var jöfn, 0-0, að
loknum venjulegum leiktima,
en Eyjamenn komust yfir með
marki frá Leifi Geir
Hafsteinssyni í framlengingu.
Aðdragandi þess marks var
vafasamur svo ekki sé meira
sagt, en á lokasekúndum
lciksins jafnaöi Gestur lcikinn
með skoti sem virtist ekki vera
líklegt til að byrja ntcð. Boltinn
barst til Gests í miðjum teig
Eyjantanna og liann lét vaða á
markið.
„Það voru einhverjar 20-30
sekúndur eftir þegar ég fékk
hann í teignum og kingsaði
svona rosalega. Hann fór svo í
gegnum klobbann á tveimur
vamarmönnunt svo á milli han-
danna á markmanninum og milli
lappanna á honum og í netið.
Maður gleymir þessu aldrei!”
Gestur sá þoltann að visu ekki
fara yfir marklínuna þvi hann
hélt að Gunnar í markinu hefði
boltann. „Eg sneri mér bara við
þegar ég sá markmanninn fara að
taka hann upp með höndunum,
en svo missti hann bara boltann
inn, karlgreyið. Þetta sýnir að
mörkin þurfa ekki alltaf að vera
flott en þetta telur lika. Þetta
rnark var rnjög sætt og var fyrir
alla Keflvíkinga.”
Markið tryggði Keflvikingum
annan leik sem fór ffam mánuði
síðar. Hann réðst i vítaspyr-
nukeppni en Gestur var ekki á
rneðal spyrnumanna. „Ég tók
einu sinni víti 1989 að ég held og
brenndi af þannig að við urðum
úr í bikamunt það árið. Eftir það
tók ég ekki víti aftur fyrr en í
fyrrasumar.”
Gestur er ekki seinn til svara
þegar hann er beðinn að spá fyrir
unt úrslit. Hann segist þó ekki
hafa taugar í vítaspyrnukeppni
„Keflavík vinnur þetta. Það eru
hreinar línur, en þeir verða líka
að spila mikið betur en þeir
gerðu á sunnudag. KA-menn eru
stórhættulegir og þurfa ekki
nema eina eða tvær sóknir til að
refsa liðum eins og þeir sýndu
gegn FH. Það er alltaf erfíðara að
vera í stúkunni á svona leikjum.
Maður er miklu stressaðri þar en
inni á vellinum. Við vinnum
þetta sarnt það er engin spurn-
ing!”
Sérfræðingarnir:
Spá Keflavík sigri
Guðjón Guðmundsson
Stöð2/Sýn
„Fyrirfram má ætla að
Keflavík vinni þennan leik.
Þeir em með betra lið, en það
skiptir oft ekki máli þegar
komið er í bikarleiki.
Leikmenn Keflavíkur eru ungir
og það er spuming með hvort
þeir þoli álagið. Keflvíkingar
eiga að vinna nema þeir fari á
taugum. Þeirra hættulegustu
andstæðingar eru þeir sjálfir."
Bjarni Felixson RÚV
„Ég er nú ekki góður spámaður
en mér sýnist í fljótu bragði að
Keflavík eigi að vinna þennan
leik. KA rnenn eru hins vega
örugglega að vonast til að allt
verði þá þrennt er eftir tvö töp í
sumar, en á venjulegum degi
vinnur Keflavík. Þetta verður
örugglega tvfsýnn baráttu-
leikur.“
Henrý Birgir Gunnarsson
DV/Fréttablaðið
„Mín tilfinning er að Keflavík
vinni þennan leik. Þeir eru
klárlega skeinuhættari fram á
við og ef Stefán og félagar
halda sjó í vöminni detta þau 2
eða 3 frammi. Ef við emm að
spá í tölur lteld ég að þetta fari
3-1 og KA skori sitt rnark á 88.
mín eftir að hafa lent 3-0
undir.“
Guðni Kjartans þjálfaði fyrstu bikarmeistara Keflavíkur 1975
Glæsiskot Einars fyrirliða
Keflvíkingar unnu sinn
fyrsta bikarmcistaratitil
árið 1975 með 1-0 sigri
gegn Skagamönnum. Fyrir-
liðinn Einar Gunnarsson brá
sér í sóknina og skoraði eina
mark leiksins með þrumuskoti
af 25 metra færi á 34. mínútu.
Guðni Kjartansson var þjálfari
liðsins en gat ekki leikið með þvi
þetta tímabil sökum meiðsla.
„Leikurinn var mjög erfiður og
Skaginn fyrirfram talið sterkara
liðið,” sagði Guðni í samtali við
Vikurfféttir. „Við settum leikinn
því þannig upp að við spiluðum
mjög sterkan varnarleik.
Leikurinn sem slíkur var spenn-
andi eins og bikarleikur á að
vera, en svo fékk Einar boltann,
kom vaðandi upp völlinn og
negldi ltann í netið af löngu
færi.” Flestir töldu að Hörður
Helgason í marki Skagamanna
hefði átt að verja skotið en það
hafði viðkomu í Steinari
Jóhannssyni og breytti eilítið um
stefnu
Eftir markið pressuðu Skag-
amenn mikið en Keflvíkingar
héldu forystunni út leikinn.
Þeir fengu dauðafæri til að jafna í
restina en Þorsteinn Olafsson í
marki Keflavíkur varði ffá Jóni
Gunnlaugssyni af örstuttu færi.
„Við hömpuðum bikarnum að
lokum og það var gaman þó að
ég hafi ekki getað spilað sjálfúr.
Sérstaklega því að við höfðum
aldrei unnið Bikarinn á meðan ég
spilaði þrátt fyrir að hafa farið í
úrslit og vorum ekki taldir líkleg-
ir til þess þetta ár.”
Guðni telur að Keflvíkingar þurfi
að vara sig á KA mönnum á
laugardaginn því að ekkert er
fyrirfram gefið i fótboltanum.
„Keflvíkingar verða að átta sig á
því að þó að þeir séu ofar í
deildinni sýndu KA í síðasta leik
að þeir eru til alls líklegir. Ég
spái Keflavík auðvitað sigri en
það breytir engu hvað ég spái.
Það skiptir öllu hvað strákarnir
gera úti á velli. Það væri ekkert
garnan að þessu ef maóur vissi
úrslitin fyrirffam!”
„Erfíðara að
vera í stúkunni!
20
VI'KURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DACLEGA!