Víkurfréttir - 30.09.2004, Side 21
Stærsti leikur sumarsins Keflavík - KA
-þegar Keflvíkingar mæta KA í úrslitaleik Visa-bikarsins á Laugardalsvelli á laugardag
KA-menn
vilja hefna
ófaranna í
deildinni
„Mætum til að spila fótbolta!”
Þórarinn Kristjánsson, framherji Keflvíkinga
segist bjartsýnn fyrir leikinn á laugardag
Bæði lið eru þekkt fyrir
góða frammistöðu í
bikarkeppninni, en KA
menn eru í úrslitum í annað
skiptið á fjórum árum, en þeir
liafa komist að minnsta kosti í
undanúrslit öll fjögur árin.
Bikarkeppnin hefiir verið huggun
Keflvíkinga í eyðimerkurgön-
gunni sem titilbarátta liðsins
hefur verið allt frá því að
„Gullöldin” leið undir lok 1973.
Þeir hafa tvisvar unnið titilinn,
1975 og 1997, en Akureyringar
hafa aldrei unnið bikarinn.
Keflvíkingar luku deildarkepp-
ninni með stórsigri á Fram, 6-2,
og settust með það i fimmta sæti
Keflvíkingar fögnuðu stuðningsmönnum sínum innilega þegar sigur lá fyrir í leiknum gegn HK. Mikil áhersla er lögð á
að Keflvíkingar og aðrir Suðurnesjamenn mæti á völlinn og styðji við bakið á strákunum. Stuðningur áhorfenda skiptir
miklu máli á leikjum - ekki síst úrslitaleikjum.
Kcflvíkingar lögðu KA-
menn að velli í báðum
dcildarleikjum
sumarsins. í fyrstu umferðinni
hristu Keflvíkingar af sér
nýliðaskrekkinn með tveimur
góðum mörkum í sinni hálfleik
og fögnuðu 2-1 útisigi á
Akureyrarvelli. Mörkin sko-
ruðu Jónas Guðni Sævarsson
og Hólmar Örn Rúnarsson.
Þegar leikið var i Keflavík voru
heimamenn að stíga upp úr lægð
þar sem ekkert hafði gengi hjá
þeim lengi. Leiknum lyktaði þó
með 1-0 sigri þeirra þar sem
Þórarinn Kristjánsson skoraði
markið úr vítaspyrnu í fyrri
hálfleik.
deildarinnar, KA vann hins vegar
aðeins einn leik frá júnilokum og
féll í 1. deild.
I síðustu tveimur bikarleikjum
hafa KA-menn hins vegar slegið
viðburður knattspyrnuferils
flestra leikmanna og munu menn
eflaust mæta reiðubúnir til að
leggja allt í sölumar fyrir lið sín.
út stórlaxa eins og FH og ÍBV og
munu sannarlega ekki sýna
Keflvíkingum minnsta vott af
auðmýkt eða virðingu.
Bikarúrslit eru einn stærsti
Hafa ekki
enn fengið á
sig mark í
bikarnum
Leið Keflvíkinga í
bikarúrslitin gegn
KA hefur verið
nokkuð örugg þar sem
þeir hafa ekki enn fengið á
sig mark í fjórum leikjum.
Enginn leikur hefur verið
spilaður á heimavelli en
átökin hófust í 32-liða
úrslitum þar sem Keflavík
vann öruggan sigur á
Völsungi á Húsavík 3-0.
Hólmar Örn Rúnarsson
og Magnús Þorsteinsson
skoruðu sitt markið hvor,
en heimamenn bættu við
sjálfsmarki áður en yfir
lauk.
Næsti leikur var gegn Fram
á Laugardalsvelli og vannst
hann 1-0. Leikurinn var ekki
mikið fyrir augað, en
Hóimar Örn skoraði eina
rnark leiksins í fýrri hálfleik.
Erfitt hlutskipti beið í 8-liða
úrslitum þar sem móther-
jarnir voru Fylkismenn á
eigin heimavelli. Leikurinn
var harður og mikil barátta
var út um allan völl. Svo fór
þó að Þórarinn Kristjánsson
skoraði eina mark leiksins
um miðjan síðari hálfleik og
tryggði Keflvíkinga í
undanúrslitin gegn HK.
Sá leikur vannst einnig 1-0
eftir að HL-maður varð fyrir
þvi að pota boltanum inn í
eigið mark í byrjun leiks.
Restin af leiknum var heldur
óspennandi, en sigurinn var
i höfn og möguleiki á fyrsta
stóra titlinum í sjö ár.
Stemmningin verður frábær
-Stuðningsmannasveitin lofar frábærum degi
Keflvíkingar hafa á vösku
liði stuðningsmanna að
skipa og er ekki nokkur
vafl á því aó þeir verða ákaft
hvattir áfram á Laugardals-
vellinum. Þeir mæta til leiks
kyrjandi stuðningssöngva,
vopnaðir trommum og lúðrum.
Víkurfréttir náðu tali af Jóa
Trommara, einum af forvígis-
mönnum Stuðningsmannasveit-
arinnar sem hefur mætt á alla
leiki Keflavíkurliðsins og látið
vel í sér heyra. Jói segir daginn
þaulskipulagðan allt frá morgni
til sigurveislu um kvöldið.
„Þeir sem sáu til okkar á HK
leiknum vita hvað er í vændum á
laugardaginn. Þar vorum við
með góða upphimn fyrir úrslitin.
Allir voru vel merktir með fána
og trefla. Við vorum með meira
en 20 stuðningsköll og eigum
nóg eftir í pokahorninu fyrir
næsta leik.”
Skemmtilegheitin munu hefjast á
Asbyrgi á Broadway klukkan 11
um morguninn. „Þar verðum við
með andlitsmálningu og einn
kaldan á kantinum. Við æfum
söngvana og veitum góð verð-
laun fyrir þann sem er í flottasta
gallanum. Urn eittleytið förum
við að týnast niður á völlinn og
ef veður leyfir verður marserað
niðureftir í stórum hóp.”
Jói og Stuðningsmannasveitin
eru ekki i vafa um úrsiitin. „Ég er
alveg sannfærður um að við
höldum hreinu og setjum tvö eða
þijú mörk á KA. Svo söltum við
þá auðvitað í stúkunni!
Þegar við erum búnir að vinna
verður farið heim og haldið sig-
urveislu með flugeldum og öllu
og strákarnir hylltir. Eftir það
verður fagnað um allan bæ.”
Jói segist engar áhyggjur af
strákunum í liðinu sem vita ná-
kvæmlega hvað þarf tii að sigra.
„Strákarnir eru reddý, þeir eiga
eftir að spila góðan bolta og
stemmningin verður frábær. Við
hvetjum alla til að mæta á völlinn
og lofum því að enginn verður
svikinn af þessum leik!”
Mér líst alvcg þrælvel á
þetta, en þessi leikur er
ekkert gefinn. KA eru
með hörkulið sem spilar af
mikilli baráttu og það skiptir
engu máli hvar þeir lentu í
deildinni. Það er alit annað
þegar er komið út í bikarleik.”
Þórarinn segir Keflvíkinga þó
ekki vera að spá of mikið í and-
stæðingunum heldur einbeiti þeir
sér að eigin leik. „Við pælum
ekkert í hinum heldur munum
við spila okkar bolta. Við
stefnum að þvi að láta boltann
ganga vel innan liðsins og fljóta
vel á milli manna. Við erum gott
sóknarlið og mitum á völlinn til
að spila fótbolta,” sagði þessi
mikli markahrókur að lokum.
VÍKURFRÉTTIR I 40. TÖLUBLAÐ2004 I FIMMTUDAGURINN 30. SEPTEMBER 2004 I 21